Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Page 52
Helgarblað 20.–23. febrúar 201552 Menning Skáldatími Gerðar kriStnýjar n kennir nemendum í fimmta bekk ritlist n Barnabók væntanleg Þ að er hluti af skyldu grunn- skóla að kenna börnum að tjá sig skipulega í rituðu máli og námskeiðið mitt, sem ég hef kallað Skáldatíma, þjálf- ar krakka í því,“ segir Gerður Kristný sem þessar vikurnar kennir fimmtu bekkingum í Lágafellsskóla ritlist og hélt fyrir áramót sams konar nám- skeið fyrir fimmtu bekkinga í Varm- árskóla. Námskeiðið kenndi Gerður fyrst í Melaskóla fyrir þremur árum: „Þá bað skólabókasafnsfræðingur- inn í Melaskóla mig um að koma og kenna fimmtubekkingum rit- list. Fyrirmyndin kemur frá Dan- mörku en þar var rithöfundur ráð- inn við skóla nokkurn veturlangt til að kenna nemendum skrif. Sá höf- undur virtist hafa fengið heila skóla- stofu til umráða þar sem sköpuð var ævintýraveröld með myndum úr barnabókum og komið fyrir teppum og púðum svo vel færi um nemend- ur þegar sögur voru sagðar. Hægt og rólega voru börnin síðan leidd inn í eigin sagnagerð. Ég fékk ekki alveg sömu aðstöðu og Daninn en það gerði ekki mik- ið til. Ég var í Melaskóla í nokkrar vikur og bjó til námsefni fyrir nem- endur sem ég styðst að miklu leyti enn við. Ég byrja á að segja börnun- um sögur og ræði þær við þau. Síðan yrkja þau ljóð eftir ákveðinni aðferð sem ég kynntist eitt sinn hjá kolleg- um mínum í London og virkar á börn jafnt sem fullorðna. Krakkarnir fræð- ast líka um hvernig rithöfundar hafa fengið hugmyndir að verkum sínum og hvernig hægt er að fá innblástur af að velta fyrir sér forvitnilegum mál- verkum. Smám saman fara krakk- arnir síðan að skrifa sjálfir og hafa þá ævintýraspjöld og söguteninga sér til aðstoðar ef þau þurfa.“ Næsti Nóbelsverðlaunahafi úr Mosfellsbæ? Gerður Kristný segir Mosfellsbæ mikinn menningarbæ, enda geti hann státað af heilum Nóbelsverð- launahafa. „Menningarmálanefndin fól mér að bjóða fimmtu bekkingum í Varmárskóla og Lágafellsskóla upp á Skáldatíma nú í vetur. Það hefur verið feikigaman og mér sýnist stutt í að næsti Nóbelsverðlaunahafi komi fram í Mosfellssveitinni.“ Að mati Gerðar Kristnýjar er það sjaldnast mikill vandi að fá 10 ára nemendur til að skrifa sögur. „Þau hafa mikið hugmyndaflug en auk þess að fá þau til að skrifa æfi ég þau í að lesa upp sögurnar sínar. Það besta við einmitt þennan aldur er hve já- kvæðir krakkarnir eru í garð bekkjar- félaga sinna. Þau njóta þess að hlusta á sögur hinna. Það er mikils virði fyr- ir höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref að fá að lesa upp í slíkum hópi. Allir virðast krakkarnir líka lesa bæk- ur og hafa skoðanir á þeim.“ Hvernig gengur að virkja alla nemendur í þessu verkefni, áhuginn hjá þeim hlýtur að vera mismikill? „Ég hef kynnst krökkum sem hafa aldrei skrifað heila setningu áður vegna þess að það hefur verið of erfitt fyrir þá en þegar allir hinir í bekknum eru byrjaðir að lesa upp skáldskap eftir sig leggja þeir það á sig. Innan um eru síðan krakk- ar með áberandi mikla skáldskap- arhæfileika sem virðast geta rutt upp úr sér ævintýrunum.“ Sögupersónur í lífshættu Eru einhver efni sem eru nemendum hugleiknari en önnur? „Margir snúa skemmtilega út úr hefðbundnum ævintýrum á meðan aðrir eru raunsærri og senda sögu- persónurnar á fótboltaæfingu og síðan í Bónus. Á einn bekkinn rann síðan hálfgert morðæði. Krakkarnir voru eflaust að reyna að yfirtrompa hver annan og ef þeir vilja leggja sögupersónurnar sínar í lífshættu er það alveg guðvelkomið. Hverju nám- skeiði lýkur með upplestrarstund og þá er jafnvel foreldrunum boðið.“ Gerði Kristnýju finnst ritlistar- kennslan skemmtileg. „Það er gam- an að koma inn í bekki og finna hvað stemningin er mismunandi og hvernig hún breytist þegar líða tek- ur á námskeiðið. Krakkarnir þurfa að venjast mér og ég að venjast þeim. Það er lærdómsríkt að heyra hvað þau eru að hugsa og hvað þau eru að lesa. Síðan er kennslan líka til- breyting frá því að sitja heima og skrifa sjálf. Ég hef líka boðið upp á ritlistarnámskeið fyrir börn á sumr- in á bókasöfnum bæði í Reykjavík og á Akranesi og það hefur ekki síð- ur verið áhugavert. Þá eiga nemend- ur til að mæta með fullbúin verk að heiman.“ Og talandi um skriftir, hverju mega lesendur Gerðar Kristnýjar búast við frá henni? „Ég er á loka- metrunum með barnabók með hrollvekjuívafi,“ segir hún og bæt- ir við að líklegt sé að hún komi út næsta haust. n Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is „Margir snúa skemmtilega út úr hefðbundnum ævin- týrum á meðan aðrir eru raunsærri og senda sögu- persónurnar á fótbolta- æfingu og síðan í Bónus. Á einn bekkinn rann síðan hálfgert morðæði. Gerður Kristný „Það er hluti af skyldu grunnskóla að kenna börnum að tjá sig skipulega í rituðu máli og námskeiðið mitt, sem ég hef kallað Skáldatíma, þjálfar krakka í því.“ MyNd SiGtryGGur Ari metsölulisti eymundsson 11.–17. febrúar 2015 Allar bækur 1 AfturganganJo Nesbø 2 Dansað við björninnRoslund & Thunberg 3 Hreint mataræðiDr. Alejandro Junger 4 Öræfi - kiljaÓfeigur Sigurðsson 5 Heimsmetabók Skúla skelfis Francesca Simon 6 Óvættaför 18Adam Blade 7 Hafnfirðinga-brandarinn Bryndís Björgvinsdóttir 8 Þekkir þú Línu langsokk ? Astrid Lindgren 9 Krúttlegt hekl fyrir litlar tásur Vita Apala 10 NáðarstundHannah Kent Íslenskar kiljur 1 AfturganganJo Nesbø 2 Dansað við björninnRoslund & Thunberg 3 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson 4 AlexPierre Lemaitre 5 Fimmtíu gráir skuggar E. L. James 6 LjónatemjarinnCamilla Läckberg 7 Bonita AvenuePeter Buwalda 8 UndurR.J.Palacio 9 Fimmtíu dekkri skuggar E. L. James 10 Fimmtíu skuggar frelsis E. L. James Jón Kalman og Þorsteinn tilnefndir Tilkynnt um tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs S káldsagan Fiskarnir hafa enga fætur eftir Jón Kalman Stefánsson og ljóðabókin Skessukatlar eftir Þorstein frá Hamri eru tilnefndar til Bók- menntaverðlauna Norðurlanda- ráðs í ár. Frá Danmörku eru tilnefndar ljóðabókin Avuncular eftir Piu Juul og skáldsagan Hvis det er eftir Helle Helle og frá samíska tungumálasvæðinu ljóðabókin amas amas amasmuvvat eftir Niillas Holmberg. Frá Finnlandi koma skáldsögurnar Transparente Blanche eftir Peter Sandström og Terminaali eftir Hannu Raittila og frá Færeyjum skáldsögurnar Hinumegin er mars eftir Sólrúnu Michelsen og HOMO sapienne eftir Niviaq Korneliussen. Framlag Noregs er skáldsagan Bare et menneske eftir Kristine Næss og skáldsagan Trilogien: Andvake. Olavs draumar eftir Jon Fosse og frá Svíþjóð kemur skáldsagan Den andra kvinnan eftir Therese Bohman og ljóðabókin Och natten viskade Annabel Lee eftir Bruno K. Öijer. Og frá Álandseyjum er tilnefnd skáldsagan Minkriket eftir Karin Erlandsson. Dómnefnd Bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs útnefnir verðlaunahafann og tilkynnt verð- ur um úrslit við hátíðlega athöfn í Reykjavík hinn 27. október. Í verð- laun eru 350 þúsund danskar krónur. n Jón Kalman og Þorsteinn frá Hamri Bækur þeirra eru tilnefndar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og af því tilefni var þeim afhentur blómvöndur í Gunnarshúsi. MyNd SiGtryGGur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.