Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2015, Síða 54
54 Menning Helgarblað 20.–23. febrúar 2015 Allsberir fótbolta- menn í faðmlögum n Málverkaserían View of Motivation eftir Rakel McMahon sýnd í Hverfisgalleríi K nattspyrna er ekki bara leik­ ur þar sem 22 einstaklingar sparka milli sín bolta. Fót­ bolti er geigvænlega stór iðnaður, hann er sjónarspil, afþreying, fréttaefni, lífsstíll, trúar­ brögð (segja sumir) og vettvangur fyrir óbeislaðar tilfinningar. Það er síðastnefndi þáttur þessarar vinsæl­ ustu íþróttar samtímans sem mynd­ listarkonan Rakel McMahon fæst við í sýningunni View of Motivation sem nú stendur yfir í Hverfisgalleríi. Rakel rannsakar hinar sterku tilfinn­ ingar sem vakna jafnt hjá áhorfend­ um og leikmönnum inni á vellinum. Þar er pláss til að tjá frummannlegar tilfinningar og snertast á hátt sem ekki er leyfilegur í öðrum rýmum samfélagsins: hérna mega karlmenn gráta og slást, faðmast innilega og kyssast. (hu)Man. Utd. Rakel hefur oft fengist við mismun­ andi stöðu kynjanna í verkum sín­ um. Hún segir að View of motivation hafi fæðst upp úr annarri seríu lista­ verka þar sem hún vann með kyn­ gervi. „Árið 2011 gerði ég ljósmynda­ seríu: portrett af karlmannstám sem voru naglalakkaðar. Þetta var einföld og kannski barnaleg tilraun til að má út kyn og kyngervi. En um leið og ég var farin að reyna að má það út sá ég að það er svo stutt á milli spurninga um kyn, steríótýpu og kynhneigð. Það er þunn lína þar á milli: við erum svo rosalega snögg að koma auga á ef það er eitthvað sem brýtur þessi hefðbudnu norm, þannig um leið og þú setur naglalakk á karlmann­ stær þá er maður farinn að túlka það sem transmanneskju eða samkyn­ hneigð. Þá seríu skýrði ég Man Utd – „human“ sameinað. En auðvit­ að er það líka tilvísun í fótboltaliðið Manchester United. Þar held ég að þetta hafi fæðst,“ segir Rakel. Við vinnslu verkanna vann hún náið með karlkynsfjölskyldumeð­ limum sínum sem hafa margir hverj­ ir mikinn áhuga á fótbolta. „Fyrst var ég mjög mikið að spá í áhorfendur og þeir voru meira kveikjan en fót­ boltamennirnir. Þar eru það nán­ ustu karlmenn í mínu lífi, til dæm­ is fósturpabbi minn sem er yfirleitt rosalega rólegur maður en þegar hann horfir á fótbolta þá hækkar hann mjög hátt í sjónvarpinu, stend­ ur upp og öskrar – allt sem maður þekkir við hann breytist. Það sama má segja um manninn minn, bróður og pabba. Þeir höfðu mikið að segja um þetta og ég vann seríuna í mjög nánu samtali við Einar, eiginmann­ inn minn. Þegar ég kom heim og var að sýna honum hvað ég var að gera þá gat hann sagt hvort ég væri algjör­ lega á villigötum og væri að velja mitt sjónarhorn of mikið,“ segir Rakel. Ástríða og tilfinningar Fylgist þú sjálf með fótbolta? „Nei, ég geri það ekki. Það sem kveikti áhuga minn var hegðun karlmanna í kring­ um þetta – þetta er vettvangur til samskipta. Til dæmis þegar við mað­ urinn minn erum í kringum margt fólk verður maður mjög oft vitni að því að hann er farinn að tala rosalega mikið við annan mann, ég geri þá bara ráð fyrir því að hann þekki hann því þeir eru í svo heitum umræðum. Svo veit hann ekkert hver þetta var heldur voru þeir bara að tala um fót­ bolta og halda með sama liði – en af einlægni. Stundum hugsa ég að það væri virkilega gaman að hafa ein­ hverja svona ástríðu og miklar til­ finningar til að deila með konum.“ Það er skiljanlegt að menn geti rætt um þetta. Mikill tími og orka hjá mjög mörgum, ungum (langoftast) karlmönnum fer í að velta sér upp úr fótbolta – tölvuleikir, drauma­ deildarveðmál, enska, spænska og íslenska deildin, úrslit, tölfræði, leikmannakaup. Fótboltinn er rými með tiltölulega einföldum reglum þar sem hver sem er getur orðið sér­ fræðingur og bundist liðum og leik­ mönnum sterkum tilfiningatengsl­ um. Og það er kannski það sem er aðlaðandi við fótboltann, tilfinn­ ingahitinn er því ekki bara inni á vellinum, heldur má maður öskra og faðma vini sína uppi í stúku þegar liðið manns skorar. „Já, áhorfandinn samsamar sig tilfinningum þeirra sem eru inni á vellinum. Svo verður þú rosa leiður í langan tíma ef liðið þitt tapar,“ segir Rakel. Skondnar hliðar á dramatíkinni „Ég fékk Einar til að senda mér linka á þessar fótboltasíður, þar er enda­ laust af mjögáhugaverðu og flottu myndefni: líkamstjáningin og stell­ ingarnar. Þarna eru afskaplega áhrifaríkar myndir sem höfðu líka rosalega mikil áhrif á mig sem ut­ anaðkomandi aðila. Ég reyndi að taka sem breiðastan tilfinningaskala, vonbrigði,“ segir Rakel. „Þegar ég var að velja myndir sem mér fannst fyndnar eða dá­ lítið skondnar þá fékk ég að heyra frá manninum mínum að fótbolti væri miklu meira en þetta: „fótbolti er vonbrigði, fótbolti er sigur, fót­ bolti er von, fótbolti er vænting,“ sagði hann. Þannig að við vorum í mikilli samræðu.“ Það er vissulega húmor í verkunum, þegar aðstæð­ ur sem eru mjög tilfinningaþrungn­ ar í samhengi fótboltaleiksins eru færðar inn í annað samhengi, þar sem naktir líkamar leika þær í hefð­ bundnu rými. „Mér finnst mikil­ vægt að fólk geti séð fyndnar hlið­ ar, bæði í sjálfu sér og öðrum, hvort sem það er ástríða eða ekki. Fyrst og fremst fannst mér bara mjög gaman í vinnuferlinu. Ég var inni á þessum fótboltasíðum að skoða ljósmyndir og var ekkert að breyta neinu. Ég tek bara ljósmyndir beint af leikjum og vel þær sem tala sterkast til mín og tjá sterka tilfinningu meira en aðr­ ar. Fyrst byrjaði þetta svolítið meira í árásarhneigð, líkamlegum átökum, en svo þegar maður tekur þetta úr samhengi og strípar niður þá verð­ ur þetta svolítið kómískt, það eru kó­ mískar hliðar á öllu, meira að segja sorginni og dramatíkinni.“ Sigurvegarar og taparar Varðandi kómíkina þá velti ég því reyndar líka fyrir mér hvort þetta væri ekki öðruvísi ef um nakta kven­ mannslíkama væri að ræða, mann grunar að við séum nánast alin upp til að sjá nakinn karlmanns­ líkama sem eitthvað skondið fyrir­ bæri frekar en erótískt viðfang. „Já, sérstaklega þegar þeir eru í sokkum líka. Að vera nakinn bara í sokkum gerir mann svo berskjaldaðan. Mér finnst fötin bara segja of mikið, mér finnst þau segja of mikið um hver þú ert, þú setur mann í jakkaföt þá segir það okkur strax eitthvað. Ef ég færi að setja þá í einhverja búninga sem gæfu upp um í hvaða liðum þeir væru, myndi það verða allt annað verk. Þannig að ég ákvað að hafa þá í mesta lagi í sokkum.“ „Ef við horfðum á þetta í okkar venjulega lífi og hegðun, þá væri það yfirleitt ekki þannig að ég myndi fagna á meðan einhver annar lægi grátandi. Þá væri ég dálítið mikið fífl, en í fótbolta má einn fagna og annar gráta á sama tíma og hann þarf ekkert að fara að hugga hinn né sá hinn sami að samgleðjast með mótherja sínum. Þegar ég horfi á fótbolta verð ég stundum svo­ lítið meðvirk og spyr hvort að hann þurfi ekki að fara að hugga hinn og segja honum að þetta gangi betur næst. En þetta myndi ekki gerast í venjulegum kringumstæðum – tveir faðmast og einn labbar niðurlútur í burtu. Það er engin samúð með andstæðingnum,“ segir hún og vitn­ ar í eitt verkið sem gæti nánast ver­ ið leikræn tjáning á undirliggjandi tilfinningum í dramatískum ástar­ þríhyrning. „Þetta er svolítið frum­ stætt. Þarna ráða einhverjar grunn­ hvatir, eitthvert siðferði sem manni hefur verið kennt hverfur á vellin­ um. Þegar maður vinnur annars staðar en á fótboltavellinum þá tekur maður því af ró en er ekki að fagna því of mikið – þá væri maður dálítið óþolandi. En það má þarna,“ segir Rakel. n Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Fótbolti er von- brigði, fótbolti er sigur, fótbolti er von, fót- bolti er vænting. Rannsakar tilfinningar á knattspyrnuvellinum Rakel McMahon myndlistarkona. Mynd SiGtRyGGUR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.