Læknablaðið - 01.11.2016, Side 3
Pradaxa® ábenging: Fyrirbyggjandi meðferð gegn heilaslagi og segareki í slagæðum hjá fullorðnum sjúklingum með gáttatif sem ekki tengist hjartalokum, ásamt einum eða fleiri áhættuþáttum,
til að mynda að hafa áður fengið heilaslag eða tímabundna blóðþurrð í heila; aldur ≥ 75 ára; hjartabilun (NYHA flokkur ≥ II); sykursýki; háþrýstingur. Meðferð hjá fullorðnum við segamyndun í
djúplægum bláæðum og lungnasegareki og til fyrirbyggjandi meðferðar við endurtekinni segamyndun í djúplægum bláæðum og endurteknu lungnasegareki.
▼ Praxbind® ábenging: Praxbind er sértækt viðsnúningslyf fyrir dabigatran og er ætlað fullorðnum sjúklingum sem eru á meðferð með Pradaxa (dabigatran etexílat) þegar nødvendigt hurtigt at
modvirke dabigatrans antikoagulerende virkning: 1) Vegna neyðarskurðaðgerðar/áríðandi aðgerða, 2) Vegna lífshættulegrar blæðingar eða blæðingar sem ekki næst stjórn á.
Heimildir: 1. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Praxbind. 2. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Eliquis (apixaban). 3. Samantekt á eiginleikum lyfs fyrir Xarelto (rivaroxaban).
*Í flokknum ný segavarnarlyf til inntöku (novel oral anticoagulation, NOAC)
eru lyfin Pradaxa® (dabigatran), Xarelto (rivaroxaban) og Eliquis (apixaban).
IS
P
R
A
1
6
-0
3
2
0
1
6
▼ Þetta lyf er undir sérstöku eftirliti til að nýjar upplýsingar um öryggi lyfsins komist fljótt og örugglega til skila. Heilbrigðisstarfsmenn eru hvattir til að tilkynna allar aukaverkanir sem grunur er um að tengist lyfinu.
Í kafla 4.8 eru upplýsingar um hvernig tilkynna á aukaverkanir.
NÝJUNG
PRADAXA® - EINA NÝJA
SEGAVARNARLYFIÐ TIL INNTÖKU
(NOAC)* MEÐ SÉRTÆKT
VIÐSNÚNINGSEFNI, PRAXBIND®1-3
Anna Júlía Friðbjörnsdóttir (f. 1973) er listamaðurinn
að baki forsíðumyndinni sem sýnir að þessu sinni forsíðu
annars tímarits, National Geographic.
Eins og sjá má er ekki um upprunalega
blaðið að ræða, heldur grafík-eftirmynd
sem unnin er með einum lit á gifsplötu.
Nýverið var Anna Júlía með einkasýn-
ingu í Harbinger galleríi á Freyjugötu
sem bar heitið 1:1. Þar voru nokkur
ólík verk til sýnis í heildstæðri innsetn-
ingu en uppistaðan var verkaröð 7
gifsafsteypa með svokallaðri intaglio
ætingu: Áfangastaðir í purpuralit
(2016). Hvert verk er í raunstærð dæmi-
gerðrar tímaritaútgáfu. Heildarmynd
sýningarinnar var leynt og ljóst tilvísun
í yfirstandandi hörmungar sem spretta
af flótta fólks undan stríðsátökum yfir
Miðjarðarhaf. Valdar forsíðumyndir af
ferðamannastöðum við Miðjarðarhaf,
hótelhandklæði á stöpli, vídeóverk
af hvítum fjörusandi og uppstilling með kuðungum eru í
hrópandi mótsögn við stöðugar fréttir af neyð fólks sem
hættir lífi sínu til að ná þessum sömu ströndum. Mót-
sögnin er ítrekuð með hinum sérstaka purpuralit sem
minnir á storknað blóð. Á sýningunni mátti sjá kuðunga
af Muricidae-ætt sem finnast við strendur Miðjarðarhafs.
Þeir eru skrautlegir og fjölbreyttir að lit og byggingu.
Sæsnigill þessi nýttist í fornöld til þess að framleiða hinn
einstaka purpuralit, en heimildir
eru um notkun hans frá 16. öld f.
Kr. Lítið magn fékkst með mikilli
fyrirhöfn og því varð liturinn eftir-
sóttur og táknmynd auðs og valds.
Titill sýningar Önnu Júlíu, 1:1, vísar
til samnings sem Evrópusam-
bandið setti fram sem viðbragðs-
áætlun við straumi flóttamanna.
Þar er mælst til þess að senda fólk
sem kemur með ólöglegum hætti
inn í Evrópu til baka en taka þess í
stað einstaklinga úr flóttamanna-
búðum; einn þaðan á móti hverjum
sem sendur er heim. Hugmyndin,
sem mjög hefur verið gagnrýnd,
er að sporna gegn sjóflutningum
glæpamanna sem nýta sér eymd
flóttafólksins og hvetja til þess að
það fari í gegnum búðirnar. Sýning Önnu Júlíu dregur á
látlausan hátt fram forréttindastöðu okkar Vesturlanda-
búa gagnvart hinu hjálparlausa og alsnauða fólki sem flýr
stríð í heimalandi sínu.
Markús Þór Andrésson
LÆKNAblaðið 2016/102 475
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
www.laeknabladid.is
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Gerður Gröndal
Hannes Hrafnkelsson
Magnús Gottfreðsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og
ljósmyndari
Hávar Sigurjónsson
Auglýsingastjóri og ritari
Sigdís Þóra Sigþórsdóttir
sigdis@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Prentun, bókband
og pökkun
Prenttækni ehf.
Vesturvör 11
200 Kópavogi
Áskrift
12.900,- m. vsk.
Lausasala
1290,- m. vsk.
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu. Blað þetta má eigi
afrita með neinum hætti, hvorki að hluta
né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráð-
ar (höfundar, greinarheiti og útdrættir)
í eftirtalda gagnagrunna: Medline
(National Library of Medicine), Science
Citation Index (SciSearch), Journal Cita-
tion Reports/Science Edition, Scopus
og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic
Medical Journal are indexed and
abstracted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
L I S T A M A Ð U R M Á N A Ð A R I N S
Á aðalfundi í september urðu breytingar á stjórn
Læknafélags Íslands einsog lög gera ráð fyrir.
Samkvæmt lögum eru í stjórn 9 manns: for-
maður, varaformaður, gjaldkeri, ritari og 5 með-
stjórnendur, og einn þeirra er skipaður af Félagi
almennra lækna. Formaður, ritari, varaformaður
og gjaldkeri eru kosnir til tveggja ára í senn. Ann-
að árið skal kjósa formann og gjaldkera og var
það síðast gert 2015 þegar Þorbjörn Jónsson var
endurkjörinn formaður og Björn Gunnarsson, sem
verið hafði meðstjórnandi í stjórninni var kjörinn
gjaldkeri. Hitt árið skal kjósa ritara og varafor-
mann og var það gert á aðalfundinum núna. Orri
Þór Ormarsson var endurkjörinn varaformaður og
Magdalena Ásgeirsdóttir endurkjörin ritari. Fjórir
meðstjórnendur eru kosnir til eins árs í senn.
Í stjórn LÍ starfsárið 2016-2017 eru Þorbjörn
Jónsson formaður, Orri Þór Ormarsson varafor-
maður, Björn Gunnarsson gjaldkeri, Magdalena
Ásgeirsdóttir ritari og meðstjórnendurnir Arna
Guðmundsdóttir, Hjalti Már Þórisson, Jóhanna
Ósk Jensdóttir og Þórarinn Ingólfsson. Af hálfu
Félags almennra lækna situr Agnar H. Andrésson
í stjórn LÍ. Ný í stjórn þetta starfsár eru því Agnar,
Hjalti Már og Jóhanna Ósk.
Á aðalfundinum voru samþykktar breytingar á
lögum LÍ sem fela í sér að framvegis verður stjórn
LÍ kosin af öllum félagsmönnum í rafrænni kosn-
ingu eins og fram kemur í pistli formanns aftar í
blaðinu. Á fundinum var jafnframt samþykkt að
hækka árgjald félagsins frá og með næstu áramót-
um, og verður það 110.000 kr.
Ný stjórn Læknafélags Íslands
Á myndinni eru frá vinstri: heimilislæknarnir Magdalena Ásgeirsdóttir, Þórarinn Ingólfsson og Jóhanna Ósk Jensdóttir, Agnar H. Andr
ésson almennur læknir, Arna Guðmundsdóttir lyflæknir, Hjalti Már Þórisson röntgenlæknir og Þorbjörn Jónsson ónæmislæknir.
Hér vantar varaformanninn Orra Þór Ormarsson barnalækni og gjaldkerann Björn Gunnarsson svæfingalækni. Mynd Sigdís.