Læknablaðið - 01.11.2016, Side 14
486 LÆKNAblaðið 2016/102
lista og ekki kom fram marktækur munur á milli þeirra sem höfðu
garnarauf og hinna. Við teljum því óhætt að draga þá ályktun að
þrátt fyrir að algengt sé að breytingar verði á líkamsstarfsemi eftir
aðgerð sé það ekki í þeim mæli að það valdi fólki ama í daglegu
lífi.
Niðurstöður okkar úr starfræna listanum sýndu að hátt hlutfall
sjúklinga með innri garnapoka lýsti einhverjum hægðaleka. Í er-
lendri rannsókn sem mat starfræna útkomu innri garnapoka með-
al 191 sjúklinga með sáraristilbólgu kom í ljós að 68% sjúklinga
hafði hægðir 8 sinnum á dag en 29% þeirra sjaldnar en 6 sinnum
á dag. Auk þess lýstu 6,5% sjúklinganna viðvarandi hægðaleka
en tíðni hægðaleka var hærri á næturnar, eða 39%.20 Önnur rann-
sókn meðal finnskra sjúklinga sýndi fram á hægðaleka að nóttu
til í 32% tilvika.21 Okkar hlutfall er töluvert hærra miðað við fyrr-
greindar rannsóknir. Hluti ástæðunnar gæti verið að ekki voru
notaðir sömu spurningalistar. Starfræni listinn okkar er ítarlegur
og var hannaður aðallega til að meta fylgikvilla aðgerðar frekar en
ávinning og spyr því nákvæmlega út í fyrrgreinda þætti.
Um þriðjungur lýsti breytingum á þvaglátum. Það er erfitt að
bera þessar niðurstöður saman við erlendar rannsóknir þar sem
fæstar þeirra fjalla sérstaklega um breytingar á þvaglátum.
R A N N S Ó K N
Fjörutíu prósent okkar sjúklinga lýsti breytingum á kynlífi
til hins verra. Niðurstöðum erlendra rannsókna varðandi áhrif á
kynlíf (sexual function) ber ekki alltaf saman en ljóst er að áhrifin
geta verið bæði neikvæð og jákvæð. Rannsókn meðal 59 sjúklinga
með sáraristilbólgu sem fóru í innri garnapokaaðgerð mat sér-
staklega áhrif aðgerðar á kynlíf þeirra. Samkvæmt niðurstöðum
hafði aðgerð ekki marktæk áhrif á kynlíf karlmanna en bætti kyn-
líf kvenna svo um munaði.22 Niðurstöður japanskrar rannsóknar
bendir hins vegar til þess að aðgerðir sem þessi geti haft töluverð
neikvæð áhrif á kynlíf sjúklinga eftir aðgerð. Nítján af 60 sjúkling-
um (31%) lýstu neikvæðum áhrifum á kynlíf, 24% karlmanna og
38% kvenna.23 Þessar niðurstöður samræmast frekar niðurstöðum
okkar. Engin kona í rannsókn okkar lýsti því að kynlíf væri betra
eftir aðgerðina. Það að rannsóknarniðurstöður varðandi kynlíf séu
svo ólíkar vekur spurningar um hvort spurningalistar þess efnis
séu nógu góðir.
Rannsóknir hafa staðfest að lífsgæði sjúklinga með virkan sjúk-
dóm eru minni en meðal almenns þýðis. Lífsgæði sjúklinga sem
svara lyfjameðferð samsvara hins vegar almennu þýði.24 Þátttak-
endur í rannsókn okkar, bæði konur og karlar, höfðu lífsgæði í sam-
ræmi við almennt bandarískt þýði samkvæmt SF-36v2-spurninga-
Tafla II. EORTC-niðurstöður (miðgildi (interquartile range)). Tölugildin sem gefin eru eru milli 0 og 100. Fyrir lífsgæði í almenna lífsgæða- og virkniskalanum þýðir
hærra gildi meiri lífsgæði. Fyrir einkennaskalana þýðir hærra gildi verri/meiri einkenni. Í þessari töflu eru niðurstöður birtar fyrir hópinn í heild og eftir kyni og tegund
aðgerðar.
Virkniskali Allir (n=80) KVK (n=36) KK (n=44) Garnarauf (n=44) Án garna raufar (n=36)
Líkamsímynd 88 (50-100) 88 (67-100) 88 (44-100) 88 (44-100) 88 (67-100)
Kvíði 67 (67-100) 67 (67-100) 67 (33-100) 67 (67-100) 67 (33-100)
Þyngd 100 (100) 100 (67-100) 67 (67-100) 67 (67-100) 100 (67-100)
Kynlíf kk 33 (0-67) x 33 (0-67) 33 (17-33) 33 (0-67)
Kynlíf kvk 67 (33-75) 67 (33-75) x 67 (67-100) 67 (33-67)
Einkennaskali
Tíðni þvagláta 17 (0-33) 17 (0-33) 17 (0-33) 17 (0-33) 17 (0-33)
Blóð og slím í hægðum 0 (0) 0 (0-17) 0 (0-8) 0 (0) 8 (0-21)
Tíðni hægðalosunar 17 (0-50) 33 (0-67) 17 (0-42) 0 (0-17) 50 (33-67)
Þvagleki 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Sársauki við þvaglát 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Kviðverkir 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33) 33 (0-33)
Verkir í rasskinnum 0 (0-33) 17 (0-33) 0 (0-33) 0 (0) 33 (0-33)
Kviðþensla 0 (0-33) 33 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33) 33 (0-33)
Þurr munnur 0 (0-33) 0 (0-42) 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33)
Hárlos 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Bragðskyn 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0)
Vindlosun 33 (0-33) 33 (0-67) 33 (0-33) 33 (33-67) 0 (0)
Hægðaleki 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33)
Húðeymsli 33 (0-33) 33 (33-67) 33 (0-33) 33 (33) 33 (0-33)
Blygðun 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33) 0 (0-33) 33 (0-33)
Umönnun garnaraufar 0 (0) 0 (0) 0 (0) 0 (0) X
Risvandamál 0 (0-33) x 0 (0-33) 33 (0-50) 0 (0-33)
Verkir við samfarir 0 (0-33) 0 (0-33) x 33 (0-67) 0 (0-25)
KVK=kvenkyn; KK=karlkyn; EORTC = European Organization for Research and Treatment of Cancer. x = á ekki við.