Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.11.1985, Side 26
m.t.t. áhrifa kjara, en kjör eru í
sjálfu sér beinhörð viðurkenning
á gildi starfanna, sem unnin eru í
þjóðfélaginu.
Að vísu má ætla að þeir, sem leggi
hjúkrunarstörf og önnur skyld
störf fyrir sig, séu ekki beint að
sækjast eftir vellystingum og
pragtugheitum hér í heimi, heldur
vaki öllu heldur fyrir þeim sú trú,
að lífsfylling sé fólgin í starfi, sem
bætir hag þess samferðarfólks,
sem eigi við sárt að binda.
En það er hætt við, að náungakær-
leikurinn fari að missa sín, þegar
erfitt er að brauðfæða sig og sína -
hafa í sig og á - og lifa mannsæm-
andi lífi fyrir fullt dagsverk - þó
munaður sé ekki hjartans mál.
Og það má spyrja hvert sú þróun
stefnir í þjóðfélaginu, sem metur
mannúðarstörf svo lágt til launa,
að þeir sem slík störf inna af hendi
fari að efast um gildi þeirra og
eigið ágæti.
Reyndar ætla ég ekki að fjölyrða
um kjaramál í þessum orðum
mínum - heldur tengsl þeirra við
viðhorf okkar til hjúkrunarstarfs-
ins. Það hefur sem sé mjög vakið
furðu mína í öllum þeim
umræðum, sem fram hafa farið að
undanförnu um hjúkrunarfræð-
ingaskort og launamál, hve hljótt
hefur verið um, hvers virði störf
okkar eru fyrir þá, sem þeirra
njóta, og hvaða afleiðingar það
hefur fyrir heilbrigði og velferð
skjólstæðinga okkar og sjúklinga -
þegar hjúkrunarþjónustu er veitt
af vanefnum.
Kröpp kjör og hjúkrunarþjónusta
veitt af vanefnum grafa eflaust
undir trú okkar á gildi hjúkrunar-
starfsins.
En það má líkaspyrja-hver hefur
viðleitni okkar verið - hver hefur
samstaða okkar verið til þess að
veita sem mesta og besta þjónustu
fram á þennan dag? Hvað er orsök
og hvað er afleiðing?
Læknirinn Hal Lear segir í bók-
inni Heart Sounds:
„Hver skyldi halda, að hjúkrun-
arfræðingar skipti svo miklu meira
máli fyrir sjúklinginn en læknarn-
ir?
Alla vega ekki læknarnir.
Sem læknir hafði hann alltaf
hugsað sér hjúkrunarfræðing sem
nokkurs konar fulltrúa - og það
kom honum mjög á óvart sem
sjúklingi - hvað hann hefði getað
verið þröngsýnn.
í hans augum hafði hún - hjúkrun-
arfræðingurinn (og það var alltaf
hún) haldið öllu í röð og reglu -
vitað hvað sjúklingunum liði -
fylgt eftir fyrirmælum af
nákvæmni - gefið réttum sjúklingi
rétt lyf og svo frv. og hún var
góður hjúkrunarfræðingur, ef hún
leysti þessi verk vel af hendi.
Sem sjúklingur sá hann nú bet-
ur"-“ (Lear, 1979, bls. 40)
Sem sjúklingur sá Lear, að hjúkr-
unarfræðingurinn var líka sá
bjargvættur, sem hélt öllum
endum saman, og veitti honum
hald og traust allan sólarhringinn,
með umhyggju og hjúkrunarmeð-
ferð.
Það er mér stundum til efs - í þeim
barning, - sem staðið er í, við að
halda hjúkrunarþjónustu nokkurn
veginn gangandi þessa dagana -
hvort hjúkrunarfræðingum sé það
öllum fullkomlega ljóst, hvað þeir
skipta miklu máli fyrir sjúklinginn
og aðra skjólstæðinga sína?
Mér er spurn - hver er trú okkar
„á ábyrgð okkar til þess að vaxa og
helga hug, hönd og sál starfi
okkar, sem við virðum og fólkinu,
sem við þjónum“ (Styles, 1982,
bls. 61).
Það er trú mín - að hjúkrunar-
fræðingar þurfi að taka höndum
saman og vaxa fyrir eigin tilverkn-
að.
Með því móti getum við gert veg
hjúkrunarstarfsins sem mestan við
að auka velferð fólksins, sem við
þjónum - en fyrir það erum við
orðin til sem stétt.
Ef vel til tekst er von til þess, að
störf okkar verði metin að verð-
leikum.
HEIMILDIR
Donaldson, S.K. & Crowley, D.M. The
discipline of nursing. Nursing Outlook,
1978,26 (2), 113-120.
Fuller, S.S. Holistic man and the science
and practice of nursing. Nursing Outlook,
1978, 26 (11), 700-704.
Kalisch, P.A. & Kalisch, B.J. Theadvance
of American nursing. Boston: Little,
Brown, & Co., 1978.
Lear, M.W. Heart Sounds. New York:
Simon and Shuster, 1979.
Mc Murrey, P.H. Toward a uniquc know-
ledge base in nursing. Image, 1982,14 (1),
12-15.
Stainton, M.C. The birth of nursing sci-
ence. The Canadian Nurse, 1982, 77 (11),
24-28.
Styles, M.M. On ntirsing Toward a new
endowment. St. Louis: The C.V. Mosby
Company, 1982.
Átt þú Hjúkrunarfræðingatalið?
Ef ekki, er ekki seinna vænna að eignast það áður
en upplagið þrýtur.
Sendum í póstkröfu um land allt.
Verð kr. 700, og er póstkröfugjald innifalið.
Nafn _____________________________________
Heimilisfang _____________________________
Póstnúmer/Staður__________________________
24 HJÚKRUN 3 "4/85-61. árgangur