Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Blaðsíða 11
eða kannski til að fá uppörvun eða faðmlag, einhverja
huggun, og náttúrlega líka til að hugga aðra — þetta varð
hálfgerð stoppistöð. Að auki var töluvert um að hjálpar-
og björgunarmenn kæmu til að fá áfallahjálp og umferð
fréttamanna var mikil þó að aðgengi þeirra væri tak-
markað.“
Frábært starfsfólk
Hörður er stoltur og þakklátur starfsfólki sjúkrahússins
og heilsugæslustöðvarinnar fyrir störf þess þessa erfiðu
daga. „Allir lögðu sitt af mörkum eins og þeim var unnt,“
segir hann. „Vinnutími margra var frekar talinn í sólar-
hringum en klukkustundum og ekkert verkefni var þeim
óviðkomandi. Hér var allt á hvolfi í hálfan mánuð en
enginn kvartaði undan álagi. Þvert á móti var frekar
heðið um íleiri verkefni. Starfsfólkið var í einu orði sagt
frábært. Svona ástand verður hins vegar ekki þolað á
neinum spítala til lengdar. Utanaðkomandi hjálp er
nauðsynleg. Það þarf aðstoð fólks með fagþekkingu við
hæfi og afleysingafólk til að yfirkeyrt starfsfólk geti fengið
hvíld.“ Hörður telur sig eftir á að hyggja ekki hafa staðið
nógu vel að afleysingum eftir að mesta álagstímanum
lauk. „ Starfsfólkið hér vildi fá að klára sitt verk, var
ófúst að draga sig til baka og gerði sér vart grein fyrir
hvenær nóg var komið,“ segir hann. „Það hefði ég átt að
sjá og gera viðeigandi ráðstafanir. Ef til vill villti það mér
sýn að allt gekk svo vel að ég leit á örþreytt starfsfólkið
sem ofurmenni.“
Þá segir Hörður að það hafið verið mikilvægt að
finna hvað það voru margir sem hugsuðu til þeirra meðan
á erfiðleikunum stóð. „Það var gott að heyra frá öllum
þarna syðra, frá Félagi íslensltra hjúkrunarfræðinga og
fjölda annarra sem hringdu og spurðu hvernig okkur liði
og hvort það væri eitthvað hægt að gera fyrir okkur. Það
var ófært á landi, sjó og lofti og við fundum vissulega til
einangrunar á tímahili. Það var því notalegt að fá )>ennan
stuðning.“
Engir græningjar
A FSÍ eru nokkrir nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar við
störf. Hörður segir að sér hafi lengi fundist hjúkrunar-
nemar við Háskóla Islands vera aldir upp í þeirri trú að
eftir 4 ára háskólnám þurfi að leiða þá lengi áður en
óhætt sé að sleppa þeim lausum í sjálfstæðri vinnu. „Mín
reynsla af nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum er, að við
ýmsar krefjandi aðstæður, þar sem hefur þurft að taka
mjög sjálfstæðar ákvarðanir, hafa þeir staðið sig með
sóma,“ segir hann. „Eg hef ekki fundið að viðfangsefnin
hafi verið þeim ofvaxin. Eg er mjög ánægður með þá
nýútskrifuðu hjúkrunarfræðinga sem ég hef haft reynslu
af hérna á FSI. Birna og Þóra, sem fóru til Súðavíkur,
stóðu sig t.d. eins og hetjur. Sömu sögu má segja um
reyndari kollega þeirra, Ingibjörgu Olafsdóttur, sem var
nýorðin deildarstjóri á legudeild þegar slysið varð.“
Sjúkrahús á landsbygg&inni
Hörður segir að forsenda fyrir rekstri bráðasjúkrahúss á
landsbyggðinni sé þörfin fyrir slíka þjónustu allan ársins
hring. FSÍ er langt frá sérfræðisjúkrahúsum og J)arf að
búa við takmarkaða ófærð á stundum, sérstaklega á
veturna. „Það þarf að vera hægt að reiða sig á þá þekk-
ingu og aðbúnað sem er til staðar til að veita fullkomn-
ustu heilbrigðisþjónustu sem á hverjum tíma er tök á að
veita,“ segir hann og heldur áfram: „Til þess þarf nauð-
synleg fagþekking að vera á staðnum, því þó að sími sé
þarfaþing þá er ekki alltaf hægt að lækna í gegnum hann.
Eg legg áherslu á að uppbygging sjúkrahússins miðist við
þessar þarfir. Ef hægt er að leggja bráðaþjónustu niður
tímabundið á sjúkrahúsi, til sparnaðar eða annars og
beina henni annað, er spurning hvort hún sé ekki óþörf
restina af árinu.
FSI hefur ekki farið varhluta af niðurskurði og
sparnaði. Þó að þjónustan á undanförnum árum hafi
vaxið hröðum skrefum þá hefur hún, hvað sértekjur
varðar, náð hámarki miðað við núverandi mannafla. Arið
1995 er spítalanum ætlað að ná um 16% af rekstrarfram-
lagi inn með sértekjum, eða tæpum 33 milljónum, þó sýnt
sé að hámarki var náð árið 1993 með lækkun sértekna
um 6 inilljónir króna. Þetta setur spítalann í mikinn
vanda og er ekki útséð með hvernig það dæmi gengur
upp. Að vísu gæti FSI þjónað stærra svæði, því fáir skjól-
stæðingar koma sunnan Dýrafjarðar. Vesturbyggð gæti
hæglega nýtt sér þjónustu okkar og ekki er ólíklegt að
það breytist með batnandi samgöngum. FSI er byggt sem
fjórðungssjúkrahús og getur fylhlega staðið undir því
nafni,“ segir Hörður að lokum.
Þ.R.
Fjórbungssjúkrahúsib á ísafirbi
Hjúkrunarfrædingar
FSl óskar að ráða í 2 stöður hjúkrunarfrœðinga
á legudeildir (bráðadeild og öldrunardeild) frá
1. september nk. og 2 til viðbótar frá 1. október.
Um er að rœða fjölbreytt og spennandi störf við
framúrskarandi vinnuaðstœður. Framundan er
vinna við frekari uppbyggingu á hjúkrunarferli
og að koma áfastri sjúklingaflokkun.
Upplýsingar um störfm, launakjör, húsnœði og
hugsanlega kynnisferðir til ísafjarðar veitir
hjúkrunarforstjóri FSI í síma 456 4500 eða
heimasíma 456 4228.
TIMARIT HJUKRUNARFRÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 árg. 1995
59