Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Blaðsíða 55

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Blaðsíða 55
ákvæði um að skipaður skuli vinnuhópur aðila frá danska hjúkrunarfélaginu og vinnuveitendum og er verkefni hópsins að skoða kjör og starfsaðstæður danskra hjúkrunarfræðinga og hera þau saman við kjör og starfsaðstæður annarra opinherra starfsmanna sem hafa svipaða menntun og bera sambærilega ábyrgð í starfi. Þessi vinnuhópur á að ljúka störfum fyrir 1. október 1995 og munu þá, á grundvelli niðurstöðu vinnuhópsins, hefjast aftur samningaviðræður milli danska hjúkrunarfélagsins og hins opinbera og skal þeim samningaviðræðum ljúka fyrir 1. nóvember 1995. Ef aðilar ná ekki sam- komulagi fyrir þann tíma mun sáttasemjari skera úr í þeim ágreiningsefnum sem eftir standa. Finnland Finnskir hjúkrunarfræðingar voru í verk- falli frá 24. febrúar til 24. mars 1995 eða í heilan mánuð. Upphafleg krafa finnskra hjúkrunarfræðinga var um liðlega 10.000 ísl. kr. hækkun á föstum mánaðarlaunum en vinnuveitendur buðu í upphafi um 2.500 ísl. kr. hækkun á föstum mánaðar- launum. Eftir mánaðarlangt verkfall var miðlunartillaga samþykkt en hún fól í sér samning til tveggja ára um 5.000 ísl. kr. hækkun á föstum mánaðarlaunum. Finnskir hjúkrunarfræðingar fengu í þessum samningi um tvöfalt meiri hækkun en aðrir launþegar á þessu samn- ingstímabili. Verkfallið hafði víðtæk áhrif á alla heilbrigðisþjónustu í Finnlandi og kom af stað miklum umræðum um kjör og starfsaðstæður kvenna í Finnlandi. VJ KYNFRÆÐSLUMIÐSTÖÐ HEILSUVERNDARSTÖÐVAR REYKJAVÍKUR Ný kynfræðslumiðstöð er tekin til starfa sem deild innan mæðradeildar Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur en þar hefur verið rekin kynfræðsludeild eins og kunnugt er. Tildrögin að stofnun kynfræðslumiðstöðvarinnar eru meðal annars þau að nýlega samþykkti sam- starfsráð heilsugæslunnar í Reykjavík tUlögur nefndar sem skipuð var til að gera tillögur um endurskipulagningu á kynfræðsludeild mæðradeildar og kyn- fræðslu á vegum heilsugæslunnar í Reykjavík. Helstu verkefni með starf- semi kynfræðslumiðstöðvarinnar eru unnin upp úr þeim tillögum. Hlutverk miðstöðvarinnar er að veita fræðslu- og ráðgjöl’ um kynferðismál og kynsjúk- dómavarnir og gefa út fræðsluefni þar að lútandi. Skal þannig leitast við að upp- fylla ákvæði laga um kynfræðslu og ráðgjöf nr. 25 frá 1975 og laga um heil- brigðisþjónustu nr. 97 frá 1990 (19. gr.). Miðstöðin sinnir heilsugæslunni í Reykjavík en þó er öllu starfsfólki heilsugæslu í landinu frjálst að leita þangað eftir upplýsingum og ráðgjöf. Opið er alla virka daga. Jóna Ingibjörg Jónsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur, M.S. Ed., hefur verið ráðin fræðslustjóri kynfræðslumiðstöðvarinnar. Starfsemi kynfræðsluiniðstöðvarinn- ar byggist fyrst og fremst á námskeiðs-, fræðslu- og útgáfustarfsemi í Jiví skyni að styrkja kynfræðslu og ráðgjöf á vegum heilsugæslunnar en hefur ekki opna mót- töku. Ekki er |>ó útilokað að starfrækt verið sérhæfð kynfræðsludeild með opna móttöku en ein af tillögum kynfræðslu- nefndarinnar, sem voru samþykktar, var að kanna Jjyrfli í samstarfi við aðra ósk- ir notenda um Jjjónustu á þessu sviði. Hlutverk kynfræðslumiðstöðvarinnar er hins vegar í fullu samræmi við tillögur um framtíðarhlutverk Heilsuverndar- stöðvarinnar sem heilsuverndarstofn- unar. A Jiessu ári er meðal annars fyrir- hugað að halda námskeið um kynlífs- vanda, kvnfræðslu foreldra til barna og unglinga, kynsjúkdómavarnir og kynlíf á meðgöngu og eftir fæðingu. Plúsar Rá&herra er hjúkrunarfræ&ingur Eins og landsmönnuin er kunnugt var Ingibjiirg Pálmadóttir, hjúkrunarfræð- ingur, valin til að gegna embætti heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Hjúkrunar- fræðingar eru stoltir af að hún skuli vera úr þeirra röðum. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar Ingibjörgu alls velfarnaðar í starfi. Anna Birna Jensdóttir í samn- inganefnd Reykjavíkurborgar í janúar sl. greindi borgarstjóri, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, frá skipan nýrrar samninganefndar Reykjavíkur- borgar. Anna Birna Jensdóttir, hjúkr- unarframkvæmdastjóri á Éorgarspít- ala, er einn af aðalmönnum nefnd- arinnar. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga óskar Onnu Birnu velfarnaðar í hlut- verki sínu Jjar. ÞR TÍMARIT HJÚKItUNARFKÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 árg. 1995 103
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.