Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Blaðsíða 53
LYKTIR MALA
Uppsagnir á ráðningarsamningum
hjúkrunarfræöinga á landsbyggóinni
í síðasta tölublaði Tímarits hjúkrunar-
fræðinga var greint frá uppsögnum á
ráðningarsamningum hjúkrunarfræð-
inga á sjúkrahúsum og heilsugæslu-
stöðvum úti á landi. Markmiðið með
þessum aðgerðum var að lækka laun
hjúkrunarfræðinga úti á landi með því
að hætta að greiða þeim umsamdar
yfirborganir umfram lágmarksákvæði
kjarasamninga. Pessar uppsagnir áttu
að koma til framkvæmda 1. júní 1995.
Hjúkrunarfræðingar á sjúkrahús-
um og heilsugæslustöðvum úti á landi
litu flestir svo á að uppsagnir á yfir-
borgunum myndu valda þeiin svo
mikilli kjaraskerðingu að með þeim
væri brostin forsenda fyrir áframhald-
andi starfi við stofnunina frá og með 1.
júní 1995. Um miðjan maí leit út fyrir
að um 200 hjúkrunarfræðingar víða
um land myndu láta af störfum 1. júní
1995. Fyrir mánaðarmótin inaí-júní
náðist hins vegar samkomulag milli
hjúkrunarfræðinga og vinnuveitenda
um allt land um það að hjúkrunar-
fræðingar myndu halda óbreyttum
kjörum. í þessari kjaradeilu stóðu
hjúkrunarfræðingar um allt land sain-
an sem einn maður og náðu að hrinda
þessari aðför að launakjörum sínum.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
óskar hjúkrunarfræðingum um allt
land til hamingju með árangurinn.
Kjarabót - og þaðféll ekkert á hann.
Moli
VEIKINDAFJARVISTIR
I apríl sl. kom út skýrsla um veikinda-
fjarvistir heilbrigðisstarfsfólks á sér-
fræðisjúkrahúsum. Skýrslan er unnin af
Ólafi Ólafssyni, landlækni, Ástu Ólafs-
dóttur, hjúkrunarfræðingi, Magnúsi
Baldurssyni, landfræðingi, og Vilborgu
Ingólfsdóttur, yfirhjúkrunarfræðingi.
Fjarvistatíðnin er lægst meðal
lækna, síðan hjúkrunarfræðinga en hæst
meðal starfsstúlkna og sjúkraliða. Af
sjúkrahúsunum í Reykjavík er fjar-
vistartíðnin lægst á Landakoti. Meðal
margra starfsstétta, sérstaklega á bráða-
deildum, s.s. hjúkrunarfræðinga, rönt-
gentækna, sjúkraliða og ræstingar-
kvenna, hefur fjarvistum fjölgað 50 -
90% á árunum 1993 - 1994. Pað bendir
til orsakasambands að með auknum
fjarvistum hafði álag aukist verulega,
t.d. meðal hjúkrunarfræðinga Borgar-
spítala. Sömuleiðis jukust veikinda-
fjarvistir á bráðadeildum, ferildeildum
og rannsóknardeildum samfara auknu
vinnuálagi, t.d. meðal hjúkrunar-
fræðinga, um sama leyti og bráðasjúkra-
húsum í Reykjavík var fækkað úr
þremur í tvö.
ÞR
SSN 75 ára
í tilefni af 75 ára afmæli Samvinnu hjúkr-
unarfræðinga á Norðurlöndum (SSN)
verða hátíðahöld í Kaupmannahöfn 6. - 8.
september nk.
SSN hefur boðið 11 íslenskuni full-
trúum Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga að vera viðstaddir á hátíðina og hafa
þeir þegið boðið.
1. Asta Möller, formaöur Félags íslenskra hjúkr-
unarfrœðinga
2. Sigríður Guðmundsdóttir, I. varaformaður
Félags íslenskra hjiikrunarfraiðinga
3. Hildigunnur Friðjónsdóttir, stjórnarmaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
4. Dr. Helga Jónsdóttir, dósent við námsbraut í
hjiikrunarfraiði við HI
5. Hildur Helgadóttir, hjiikrunarframkvæmda-
stjóri á Borgarspítala
6. María Pétursdóttir, fyrrverandi formaður
Hjúkrunarfélags Islands
7. Sigþrúdur Ingimundardóttir, hjúkrunarfor-
stjóri og fyrrverandi formaður Iljúkrunar-
félags Islands, fuiltrúi Islands í söguritunarhóp
SSN
8. Vilborg Ingólfsdóttir, yíirhjúkrunarfræðingur
og fyrrverandi formaður Hjúkrunarfélags
Islands
9. Þorgerdur Ragnarsdóttir. ritstjóri Félags
íslenskra hj úkruna rfneðinga
10. Þóra Akadóttir, starfsmannatjóri hjúkrunar á
FSA og formaður Norðurlandsdeildar eystri
innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
11. Olöf Asta Olafsdóttir, hjúkrunarfrainkvæmda-
stjóri á Landspítala og formaður siðanefndar
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Dagskráin hefst með hátíðahöhlum
síðdegis 6. septemher í Kristjánsborgar-
höll og n;óttöku hjá Dansk Sygeplejerád.
Seinni dagana tvo verður ráðstefna í Vil-
vorde KursusCenter. Verður efni hennar
framtíðarhlutverk SSN. Dr. Ilelga Jóns-
dóttir, Hildur Ilelgadóttir og Sigjirúður
Ingimundardóttir inunu, fyrir hönd
Félags íslenskra hjúkrunarfræðina, flytja
erindi sem her heitið „SSN og faget“.
Dagskránni lýkur um hádegi, föstudaginn
9. september.
I tilefni af merkisafmælinu hefur saga
SSN verið rituð og er útgáfudagurinn
áaitlaður 6. september, eða saina dag sem
hátíðahöldin hefjast.
TIMARIT HJUKRUNAHFRÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 árs. 1995
101