Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Síða 23
VETRARORLOF 1
UthSutunarregSur
■■■ orlofssióðs
Nýjar úthlutunarreglur orlofssjóðs hafa
verið teknar í notkun og eru þær birtar
hér á síðunni.
Stjórn orlofssjóðsins auglýsir eftir
umsóknum um styrk til orlofsferða sem
farnar verða á tímabilinu 1. október -
31. desemher 1994. Umsóknir um
orlofsstyrk skulu berast fyrir
20. septemher 1994.
Um er að ræða 20 styrki að upphæð
20.000 kr. hver, sem verða greiddir
gegn framvísun kvittana fyrir útlögðum
kostnaði vegna orlofsferðar. Staðfesting
verður að vera vegna kaupa á gistingu
eða farmiða innanlands eða utan.
Frádráttur fyrir orlofsstyrk er alltaf 36
punktar skv. nýjum úthlutunarreglum.
Bent skal á að þeir sem fá úthlutað
orlofsstyrk þurfa að nota hann innan
þess orlofstímabils sem hann er veittur
fyrir ella fellur hanit niður. Sumar-
orlofstímabil er frá 15. maí til
1. október 1994.
Haustleiga í orlofshúsum
félagsins
Orlofssjóður festi sl. vetur kaup á
tveimur orlofshúsum í landi Húsafells í
Borgarfirði. Húsin, sem sjóðurinn hef-
ur haft á leigu undanfarin ár, huðust á
sérstaklega góðum kjörum, eða
6 milljónir fyrir bæði húsin. Að
athuguðu máli reyndist ódýrara að
kaupa og reka þau en að hafa þau á
leigu áfram. Þau eru 34 og 40 fm að
stærð með sjónvarpi, útigrilli og annað
er með heitum potti. Fyrir átti sjóður-
inn Bláskóga við Úlíljótsvatn og
Kvennabrekku við Reykjalund.
Orlofshúsin í Húsafelli og Blá-
skógar eru til leigu í vetur. Sótt er um
helgar- eða vikuleigu hjá Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga í síma
5687575. Verð er 1200 kr. á sólarhring.
Ilaust og vetur dragast 3 punktar frá
fyrir helgarleigu og 6 punktar fyrir
vikuleigu samkvæmt nýju úthlutunar-
reglunum. Hægt er að sæltja um haust-
og vetrardvöl í orlofshúsunum óháð
úthlutun orlofsstyrks.
Fyrir göngugarpa
Orlofssjóður á tvo bakpoka og eitt
göngutjald. Þeir sem óska eftir að nota
áðurnefndan búnað hafi samband við
skrifstofuna. Gjald fyrir afnot af bak-
poka er 500 kr. og 500 kr. fyrir tjaldið.
Hámarkslánstími er ein vika.
íbúð a& Su&urlandsbraut
Ibúð Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga að Suðurlandsbraut 22 er leigð
hjúkrunarfræðingum yfir helgi eða í
viku allt árið. Hafið samband við skrif-
stofuna til að fá nánari upplýsingar.
Verð: 1200 kr. nóttin.
Salur ab Su&urlandsbraut
Salur Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga er leigður félagsmönnuin til funda-
og veisluhalda. Salurinn rúmar 70 - 80
manns og allur nauðsynlegur borð-
búnaður fylgir. Verðið er 8000 kr. á
dag/kvöld. Nánari upplýsingar fást á
skrifstofu félagsins.
Ný verkefni
A fulltrúaþinginu 18. - 19. maí sl. komu
fram nýjar hugmyndir og óskir frá full-
trúum um starfsemi orlofssjóðs. Spurt
var um möguleika á að festa kaup á
tjaldvagni, íhúð á Akureyri, samstarfi
við útlönd með íbúðaskipti í huga o.fl.
Ný orlofsnefnd mun taka þessar hug-
myndir til athugunar á starfsárinu.
Uthlutun úr orlofssjóði reiknast út frá
áunnum punktum skv. eftirfarandi
reglum:
Pkt Reglur
12 Við stofnun félagsins (stofnfélagar, þ.m.t.
ellilífeyrisþegar)
12 Að loknu hverju starfsári. Fyrst í janúar
1995 (stofnfélagar og nýir félagar á árinu,
t.d. útskrifaðir 1994).
12 Ellilífeyrisþegar að loknu hverju ári. Fyrst í
janúar 1995.
2 Fyrir hvert fimni ára tímahil í lífaldri eftir
20 ár, við stofnun félagsins. Mest 16 punkt-
ar. (Aðeins stofnfélagar, fært inn við kaup á
kerfí).
12 Ef greitt er meðalgjald í orlofssjóð á árinu
(þó viðkomandi sé ekki í starfi).
6 Fyrir ólaunaða vinnu fyrir orlofssjóð t.d.
vinnuferð vegna húsa. Seta í nefndum á
vegum félagsins þ.m.t. í orlofssjóði, gefur
ekki punkta.
Frádráttur vegna úthlutana
36 Sumarhús á tímab. 1. júlí -2. föstudagur í
ágúst
Páskar
24 Suinarhús á tímab. 1. júní - 30. júní
2. föstudagur í ágúst - 30. ágúst
12 Sumarliús á tímab. 1. maí - 30. maí
1. september - 30. september
4 Ilelgar á tímah. 1. maí - 30. maí
1. september - 30. september
36 Orlofsstyrkur
Uthlutun á Suðurlandshraut og Kvennabrekku:
Sami frádráttur og tímabil og fyrir sumarhús.
Frádráttur skv. þessu gilti líka fyrir
úthlutun árið 1994. Ef eftirspurn eftir húsum
um lielgar eða í vikuleigu að vetri verður meiri
en framboð, mun stjórn orlofssjóðsins skoða
punktafrádrátt á því tímabili. Frádráttur fyrir
viku að vetri er 6 punktar en helgar 3 punktar.
Aunnir punktar vegna lífaldurs við stofnun
félagsins: (A aðeins við um stofnfélaga). Ekki er
hægt að fá fleiri en 16 punkta vegna lífaldurs.
Punktar Aldur á stofnfundi
2 21-25
4 26-30
6 31-35
8 36-40
10 41-45
12 46-50
14 51-55
16 56-60
Anrtað
Uthlutun samkvæmt hlutkesti er hætt. Ef
umsaikjendur um sama tíma hafa jafnmarga
punkta. [)á ræður lífaldur.
Hjúkrunarfræðingur sem hættir tímahundið
að greiða í orlofssjóð getur ekki áunnið sér
punkta á meðan en getur sótt um úthlutun og
ra;ður þá fjöldi áunninna punkta hvort hann fær
úthlutun.
Ekki er haigt að kaupa réttindi afturvirkt í
orlofssjóðnum.
Fyrstu eitt til tvö árin getur verið að þeir
sem fá úthlutað fái mínuspunkta.
Greiða skal fyrir sumarúthlutun húsa fyrir
15. maí til staðfestingar á leigu.
Samþykkt áfundi orlofssjóðs 15. 2. 1995 og
staðfest á fulltráaþingi félagsins 18.-19. 5. 1995.
Umsókn um orlofsstyrk haustid 1995
Nafn:____________________________________ Kt.:__________________
Heiinilisfang:__________________________________________________
Póstnúmer:____________ Sveitarfélag:____________________________
Vinnustaður:____________________________________________________
Heimasími:_________________ Vinnusími:__________________________
TÍMARIT HJÚKRUNARKHÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 ár(-. 1995