Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Page 26
Fyrir greinahöfunda
Stefna
Stefnt er að útgáfu Tímarits hjúkrun-
arfræðinga sex sinnum á ári. Pað er
vettvangur fræðilegrar og félagslegrar
umræðu um hjúkrun. I faglega hluta
tímaritsins eru birtar greinar um
hjúkrunarstörf, nýjar rannsóknir í
hjúkrun, viðtöl við fólk um hjúkrun og
aðrar faglegar upplýsingar sem eiga
erindi til hjúkrunarfræðinga. I félags-
lega hluta blaðsins eða fréttahlutanum
er greint frá kjaramálum og því sem er
að gerast hjá félaginu.
Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, út-
gáfa og rekstur blaðsins sé í samræmi
við ritstjórnarstefnu þess í samvinnu
við ritnefnd.
Formaður l'élagsins ber ábyrgð á
félagslegu efni J>ess öðru en aðsendum
greinum. Höfundar aðsendra greina
bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir
sem í þeim birtast þurfa ekki að sam-
rýmast stefnu Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga.
Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur
metnað í að tímaritið sé vantlað að því
er varðar málfar, útlit og efni. Áhersla
er lögð á að faglegar greinar standist
vísindalegar kröfur. Þess vegna setnr
ritnefnd reglur um J>að hvernig höf-
undum ber að skila efni til blaðsins.
Ritnefnd áskilur sér rétt til að
birta greinar eða hafna Jteim og til að
setja greinar upp og aðlaga að útliti
blaðsins. Avallt er leitað umsagnar
utanaðkomandi aðila um rannsókna-
og fræðigreinar.
Leiðbeiningar um ritun
fræðigreina
Greinahöfundar eru vinsamlegast
beðnir um að skila greinum til Tímarits
hj úkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut
22, 108 Reykjavík. Ef um rannsókna-
greinar er að ræða J)á tekur vinnsla
þeirra lágmark tvo mánuði eftir að þær
berast til blaðsins. Yl'irleitt tekur
skemmri tíma að ganga frá öðru efni í
blaðið.
Greinum skal skilað í þríriti hverju
sinni. Endanlegri gerð skal skila á
tölvudisklingi. Hafið 4 sentimetra
spássíu á alla vegu. Þannig verður línu-
lengdin 13 sentimetrar á A4 en 14 senti-
metrar á „US letter“ síðustærð. Jafnið
vinstra megin en ekki hægra megin,
notið tvöfalt línubil og 12 punkta Times
letur. Heimildalisti takmarkast af tilvís-
unum í viðkomandi grein.
Málfar: Vandið málfar og íslenskið
erlend orð ef unnt er. Sé um sjaldgæfa
þýðingu orða að ræða skal setja er-
lenda orðið aftan við það íslenska í
sviga. Skammstafanir skulu útskýrðar í
fyrsta skipti sem J)ær koma fram.
Myndir og teikningar skulu vera nægi-
lega skýrar til að hægt sé að prenta
eftir þeim.
Uppsetning greinanna skal vera
samkvæmt reglum ameríska sálfræð-
ingafélagsins. Upplýsingar um þær er
að finna í bókinni Publication Manual
of tlie American Psychological Associa-
tion (APA) og í íslenskri þýðingu í bók-
inni Gagnfræðakver handa háskóla-
nemum eftir Friðrik H. Jónsson og
Sigurð J. Grétarsson.
Heimildir: Fylgið reglum APA og
J)á sérstaklega íslensku þýðingunni í
Gagnfræðakverinu. Fylgið J)essum regl-
um nákvæmlega og frá byrjun, J>að
sparar mikla vinnu áður en yfir lýkur.
Ljósrit af reglum J)essum er hægt að fá
hjá Tímariti hjúkrunarfræðinga.
Rannsóknagreinar
Auk framangreinds gildir um rann-
sóknagreinar sérstaklega:
Titilsíða: Þar skal koma fram nafn
greinar og höfunda(r), starfsheiti og
upplýsingar um náms- og starfsferil.
Utdráttur: Utdráttur á að vera
stuttur (hámark 150 orð) og ensk þýð-
ing á honuin skal fylgja. I útdrættinum
á að koma fram: Tilgangur rannsókn-
arinnar, aðferð í grundvallaratriðum,
helstu athuganir, niðurstöður og álykt-
anir.
74
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 árg. 1995
Fræðilegur bakgrunnur: í inngangi
J)essa kafla á tilgangur rannsóknarinn-
ar að koma skýrt fram. I fræðilegri
umfjöllun skal vísa á nauðsynlegar
heimildir en ekki gera víðtæka fræði-
lega úttekt á viðfangsefninu. Athugið
vel að heimildalistar og tilvísanir séu
rétt og samræind.
Aðferð: Lýsið úrtaki, rannsókn-
araðferð (tilraun, könnun, magnbund-
in, gæðahundin o.s.frv.), mælitæki/-
spurningalista og tölfræðiathugunum
nægilega vel til að aðrir geti endurtekið
rannsóknina. Vísið í heimildir að J)eim
aðferðum sem beitt er ef J)ær eru til.
Getið þess ef leyfi rannsókna- eða siða-
nefnda var fengið til að gera rannsókn-
ina.
Niðurstöður: Niðurstöður skulu
settar skipulega fram með töflum og
myndum sem skal vísað skýrt í í texta.
Endurtakið ekki nákvæmlega í textan-
um það sem töflurnar sýna heldur
dragið saman aðalatriði. Stundum næg-
ir að setja einstaka niðurstöður fram
með fáum orðum í texta.
Umfjöllun: Hér skal leggja
áherslu á þau atriði í rannsókninni sem
eru ný og ályktanir sem draga má af
þeim. Dragið ekki saman niðurstöður
úr næsta kafla á undan. Látið koma
fram hvaða máli niðurstöður rann-
sóknarinnar skipta, takmarkanir
þeirra og tengsl við aðrar rannsóknir.
Skoðið niðurstöðurnar út frá tilgangi
rannsóknarinnar en varist alhæfingar
sem ekki eru studdar af niðurstöðum.
Gefið hugmyndir að nýjum rannsókn-
um og tilgátum.
Þakkir: Berið einungis fram þakkir
til fólks sem hefur veitt mikla aðstoð
við verkefnið og að fengnu leyfi við-
komandi.