Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Blaðsíða 48
ALÞJOÐLEG HJUKRUNARRAÐSTEFNA
I REYKJAVIK
Kœru vinir
Tilefni þessara lína er að þakka ánœgjulegt samstarf
vegna nýafstaðinnar alþjóðlegrar hjúkrunarráðstefnu -
„Connecting Conversations - Nursing Scholarship and
Practice“, sem haldin var dagana 20. - 23. júní 1995 í
Háskólabíói.
Fyrir rúmum tveimur árum vaknaði hugmynd um
samstarf milli nokkurra háskóla um að mynda alþjóðle-
ga ráðstefnukeðju („Connecting Conversations in
Nursing“), sem hefjast skyldi á íslandi og hefði það að
markmiði að hvetja til samtals og samvinnu á milli
hjúkrunarfrœðinga frá öllum heimsálfum. Stórliuga
hugmynd og varla framkvæmanleg að margra mati. Nú
eru liðin tvö ár og ráðstefnan nýafstaðin, við erum enn á
lífi og okkur líður vel. Þökk sé þvi að mörg ykkar trúðu
að þetta myndi ganga og tókuð þátt í undirbúningi m.a.
með því að senda inn umsóknir um að halda erindi og
sýna veggspjöld um rannsóknir á sviði íslenskrar
hjúkrunar, þjó>nustuverkefni í hjúkrun og kynningu á
starfsemi deilda og stofnana, sem öll tengdust hjúkrun á
Islandi og með því að skrá ykkur sem almenna þátt-
takendur á ráðstefnuna. Einnig var tekið vel undir það
þegar ráðstefnunefndin falaðist eftir aðstoð sumra ykkar
við að stýra dagskráratriðum á ráðstefnunni. Framlag
og þátttaka ykkar var íslenskri hjúkrun til sótna og átti
stóran þáilt í því að ráðstefnan tókst eins vel og raun bar
vitni.
Sérstaklega ber þó að þakka forseta Islands, frú
Vigdísi Finnbogadóttur, fyrir frábœra opnunarrœðu og
stuðning við ráðstefnuna með nœrveru sinni, einnig heil-
brigðisráðherra, Ingibjörgu Pálmadóttur, fyrir liðsinni
hennar, borgarstjóranum í Reykjavík, Ingibjörgu Sól-
ránu Gísladóttur, fyrir gestrisni við þátttakendur ráð-
stefnunnar og Astu Möller, formanni Félags íslenskra
hjúkrunarfrœðinga, ogfrœðslunefnd félagsins fyrir
þeirra framlag, sem ég tel hafa orðið til að styrkja
einingu íslenskra hjúkrunarfrœðinga innávið sem og
útávið. Rektor Iláskóla Islands, Sveinbirni Björnssyni,
skal þakkað sérstaklega fyrir allan stuðning í orði og á
borði og einnig starfsfólki og stádentum námsbrautar í
hjukrunarfrœði. Fjöldi fyrirtœkja sýndu vörur sínar og
þjónustu á ráðstefnunni og styrktu hana á annan hátt.
Þorgerður Ragnarsdóttir, hjúkrunarfrœðingur, var
fjölmiðlafulltrúi ráðstefnunnar. Einnig skal þakka þeim,
sem sátu í nefnd til að yfirfara innsendar beiðnir um
erindi og veggspjöld fyrir vel unnin störf. Síðast en ekki
síst vil égfœra samstarfskonum mínum í undirbúnings-
nefndinni, Herdísi Sveinsdóttur, dósent, Ástu
Thoroddsen, lektor, og Hlíf Guðmundsdóttur, deildar-
stjóra, kœrar þakkir fyrir gott og árangursríkt
samstarf.
Eins og í öðrum faggreinum sem jafnframt erufræði-
greinar og beita þekkingu sinni í beinni þjónustu við
almenning er hjúkruji á þröskuldi nýrra tíma Ijósleið-
arasamskipta. Þó hugurinn beri okkur hálfa leið og
tœknin e.t.v. eitthvað lengra, dugir það ekki til að koma
okkur á áfangastað. 1 hjúkrun liljóta hjarta og hönd að
eiga samleið með huganum til aðfarsœl þróun verði í
öflun þekkingar og útkoman samrœmist þeim gildum
sem hjúkrujiarþjónustan ávallt hefur að leiðarljósi, sem
er virðingin fyrir einstaklingnum og fjölskyldunni út yfir
líf og dauða. A ráðstefnuJini var lögð áhersla á
fordójjialausa skoðun á aðferðum og hugmyndum, sejji
nýst geta í hjúkrun og gœtu kojnið skjólstœðingujji
hjúkrunar tilgóða, hvort heldur einstaklingum, heil-
brigðum eða sjúkujn -, fjölskyldum, hópum, þjóðarbro-
tujn, sajnfélagsheildum eða heimsálfum. Fulltrúar frá
öllum sviðum hjúkrunar ogfrá öllum heimsálfum voru
með framlag ogfluttu 247 erindi eða sýndu veggspjöld.
Heildrœn sýn hjúkrunar var í öndvegi og ujnrœðan um
ábyrgð hjúkrunar í sajjifélaginu seni heild var eins og
rauður jjráður í frámlögum þátttakenda. Það erfátt í
umhverfi mannsins og aðstœðujji sejn kejjiur hjúkrun
ekki við eru skilaboð ráðstefnunnar. Stóra spurningin í
framhaldinu er, hvernig við getuni eflt okkar störf og
rannsóknir með aukjiu samstarfi og samtali milli sjónar-
horna í hjúkrun og milli lajidamœra og nýtt okkur nýjar
leiðir í sajnskiptujn íþeim tilgangi. Okkar allra er að
taka þátt í að svara jjeirri spurningu með áfram-
haldandi sajjitali og sajjistarfi til góðra verka.
Með þakklœti fyrir veittan stuðning og gott samstarf.
Virðingarfyllst,
Guðrún Kristjánsdóttir, dósent, forseti ráðstefnunnaj'.
96
TIMARIT HJUKRUNARFRÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 árg. 1995