Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Page 49
Þankastrik
Þankastrik erfastur dálkur í blaðinu og höfundur hvers pistils stingur upp á þeim nœsta.
í Þankastriki gefst hjúkrunarfrœðingum fœri á að tjá sig um ýmislegt sem varðar hjákrun og
er þeim hjartfólgið. Pistlarnir getafjallað um ákveðin málefni, sögur af kynnum við sjúklinga
eða starfsfólk, eitthvað sem hefur orðið höfundum til hugljómunar eða hvaðeina annað sem
tengist starfinu og hugmyndafræði þess. Sigríður Antonsdóttir, sem skrifaði Þankastrik síðasta
blaðs, skoraði á Ingibjörgu S. Guðmundsdóttur sem hér tekur upp þráðinn.
Ofið úr mörgum þráðum
Ingibjörg Guðmundsdóttir
M
■ Vlér hefur alltaf fundist hygmyndin um hjúkrun sem fræðigrein ákaflega heillandi. Þekkingin,
sem hjúkrunarfagið byggir á, er sótt mikið til annarra fræðigreina sem hafa verið að móta og prófa kenn-
ingar sínar á mislöngum tíma og eru sífellt að bæta nýrri þekkingu við.
Nú höfum við fengið að upplifa að hjúkrunarfræðingar eru farnir að sannprófa sínar eigin aðferðir,
aðferðir sem eru byggðar á þekkingu frá öðrum fræðigreinum og hjúkrunarreynslu kynslóðanna. Hjúkrun
er farin að tala máli vísindanna og bæta við þekkingu.
Hjúkrunarrannsóknir hafa mikið beinst að hjúkrunarfræðingum sjálfuin sem manneskjum og
fagmönnum og að hjúkrunarmenntuninni. Við höfum þegar lært mjög mikið af þeim rannsóknuin. Nú beinist
athyglin að klínískum rannsóknum, rannsóknum á því sem við erum að gera, árangri verka okkar og
viðbrögðum sjúklinga við því sem við veljum að gera. Hugmyndir um shkar rannsóknir fáum við oft í
daglegum störfum okkar.
Við ættum að æfa okkur í að segja sögur úr starfinu; sögur sem vekja okkur til umhugsunar og skapa
tilgátur. Með því að hjálpast að, spyrja spurninga, hlusta hverjir á aðra og vinna vísindalega vinnu í störium
okkar, tekst okkur að fá svör við spurningum og skapa fræðimennsku í hjúkrun.
Við skulum VEFA VEF ÚR MÖRGUM ÞRÁÐUM.
Við erum að koma á laggirnar sérgreinadeild um fræðslu, rannsókna- og menntamál innan Félags ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga. Hún mun trúlega fá nafn sem tengist fræðimennsku og rannsóknum. Látið það
ekki hræða ykkur frá þátttöku, hún er öllum opin.
Eg hvet alla hjúkrunarfræðinga, sem hafa áhuga á að stunda eða fylgjast með klínískum rannsóknum og
fræðimennsku í störfum sínum, að koma á fund í deildinni og athuga hvort þeir finni ekki eitthvað við sitt
hæfi og til að leggja inn hugmyndir um aðferðir og leiðir. Við eigum einnig ýmislegt tiltækt efni. Við skulum
kynna öðrum það. Gerum Tímarit hjúkrunarfræðinga að enn þá stærri vettvangi fyrir kynningu á því sem
við erum að gera í hjúkrunarstarfinu og fyrir athuganir og vísindalega vinnu.
Eigum við ekki að kasta af okkur „hæverska hamnum“ og fara að segja frá því sem við erum að gera?
Við getum öll tekið þátt í því ævintýri.
Ingibjörg skorar ó Kristínu Norðmann að skrifa næsta þankastrik.
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 árg. 1995
97