Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Page 54
HJUKRUNARFRÆÐINGAR A NORÐURLONDUM BERJAST FYRIR
BÆTTUM KJORUM
Hjúkrunarfræðingar á Norðurlöndum hafa
undanfarin ár barist fyrir því að bæta kjör
sín. Þeir benda á að niikill launamunur er
á milli hjúkrunarfræðinga og annarra
starfshópa sem bera sambærilega ábyrgð í
starfi og hafa svipaða menntun og krefjast
þess að starf þeirra sé metið að verðleikum
í launum. Hjúkrunarfræðingar í Noregi,
Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi eru til-
búnir að nota öll tiltæk og lögleg vopn í
baráttunni fyrir bættum kjörum. Hér á
eftir verður gerð grein fyrir því helsta sem
er að gerast í kjaramálum hjúkrunar-
fræðinga á hinum Norðurlöndunum.
Noregur
I Noregi hafa hjúkrunarfræðingar barist
hart fyrir því að hækka laun sín til jafns
við aðrar starfsstéttir sem bera sambæri-
lega ábyrgð í starli og hafa svipaða mennt-
un. Norskir hjúkrunarfræðingar segja
skýringuna á lágum launum hjúkrunar-
fræðinga vera þá að hjúkrunarfræðingar
eru kvennastétt, þeir hafa haldið því fram
að launin væru ekki svona lág ef meirihluti
hjúkrunarfræðinga væru karlmenn.
Norskir hjúkrunarfræðingar fóru í
verkfall í júní í fyrra (1994). Eftir þrjá
daga var verkfallið afnumið með lögum og
hjúkrunarfræðingum var gert skylt að
koma aftur til starfa. Norskir hjúkrunar-
fræðingar fóru aftur í verkfall 31. maí sl.
ásamt öðrum háskólamenntuðum opinber-
um starfsmönnum í Noregi. Það verkfall
var einnig afnumið með lögum viku seinna.
I síðasta tölublaði af Sykepleien Journalen
(tímarit norska hjúkrunarfélagsins) eru
birtar niðurstöður úr samanburði á meðal-
talslaunum hjúkrunarfræðinga og verk-
fræðinga sem starfa hjá hinu opinbera í
Noregi. Niðurstaðan leiðir í ljós að mánað-
arlaun verkfræðinga eru að meðaltali
29.000 ísl. kr. hærri en mánaðarlaun
hjúkrunarfræðinga. Samkvæmt upplýsing-
um frá norska hjúkrunarfélaginu myndi
það kosta um 10 milljarða íslenskra króna
á ári að leiðrétta laun norskra hjúkrunar-
fræðinga þannig að þau verði sambærileg
launum verkfræðinga í opinberri þjónustu.
Verkfall norskra hjúkrunarfræðinga í
ár og í fyrra hefur ekki enn skilað þeim
mjög mörgum krónum en barátta þeirra og
áróður þess efnis að greiða beri jöfn laun
fyrir jafnverðmæt störf hefur samt sem
áður haft töluverð jákvæð áhrif. í des-
ember 1994 og janúar 1995 fóru fram
samningaviðræður um sérsamninga milli
einstakra sveitarfélaga í Noregi og stéttar-
félaga starfsmanna. Niðurstaða þessara
samninga var góð fyrir hjúkrunarfræðinga,
þeir fengu um 20% af þeirri fjárhæð sem
var til ráðstöfunar í þessum samningum á
meðan Iaunaútgjöld til hjúkrunarfræðinga
nema um 10% af heildarlaunaútgjöldum
sveitarfélaga í Noregi. Vinnuveitendur
hjúkrunarfræðinga í Noregi hafa nú lagt
fram tilboð þess efnis að launahækkun
„dæmigerðra kvennastétta” (starfsstétt þar
sem hlutfall kvenna er yfir 75%) skuli vera
um 1.800 ísl. kr. á mánuði umfrarn það
sem aðrir hera úr býtum á þessu samnings-
tímabili. Hjúkrunarfræðingar hafa hins
vegar ekki sætt sig við þetta tilboð og
benda á að ef þessi leið yrði farin myndi
það taka um 10-15 ár fyrir hjúkrunarfræð-
inga að ná sönnx launum og aðrir starfs-
hópar (t.d. verkfræðingar) og svo lengi geti
hjúkrunarfræðingar ekki beðið.
Svíþjóð
Þessa dagana eiga sér stað samningavið-
ræður milli sænskra hjúkrunarfræðinga og
atvinnurekenda um gerð nýs kjarasamn-
ings. Sænskir hjúkrunarfræðingar eru
staðráðnir í því að ná fram verulegum
launahækkunum í þessum samningum og
benda á það að laun þeirra eru umtalsvert
lægri en laun annarra starfshópa sem bera
sambærilega ábyrgð í starfi og hafa svipaða
menntun. Einnig benda þeir á að hjúkrun-
arfræðingar eigi verulegan þátt í sparnaði
og hagræðingu á sænskum hedbrigðisstofn-
unum og þeim beri því hærri laun. Það eru
liðin níu ár frá því að sænskir hjúkrunar-
fræðingar fóru síðast í verkfall (1986), nú
er hins vegar mikill hugur í sænskum
hjúkrunarfræðingum og þeir virðast vera
tilbúnir að grípa til aðgerða til að ná kröf-
um sínum fram. Sænsku heilbrigðissamtök-
in (Svenska Halso- och Sjukvárdens Tjan-
stemannaförbund) hafa nú undir höndum
undirskriftir frá nærri fimmtán þúsund
sænskum hjúkrunarfræðingum sem krefj-
ast þess að Iaun þeirra hækki um 50.000
ísl. kr. á mánuði.
í sænskum jafnréttislögum er kveðið á
um það að greiða skuli jöfn laun fyrir jafn-
verðmæt störf. Sænskir hjúkrunarfræðing-
ar ætla í sinni kjarabaráttu m.a. að nýta
sér þessi ákvæði laganna. Sem dæmi má
nefna að um 200 gjörgæsluhjúkrunarfræð-
ingar hafa lagt fram kæru til sænsku jafn-
réttisnefndarinnar þar sem þeir bera laun
sín saman við laun verkfræðinga. Þessir
hjúkrunarfræðingar hafa látið meta störf
sín með starfsmati sem unnið var af
hjúkrunarfélaginu í Ontario í Kanada en
sænsku heilbrigðissamtökin hafa látið þýða
það og staðfæra.
L_ I— Danmörk
Verkfall danskra hjúkrunarfræðinga hófst
á miðnætti 1. maí sl. og stóð það í 4 vikur.
Þetta er í annað skipti sem danskir hjúkr-
unarfræðingar nýta sér verkfallsvopnið til
að freista þess að ná fram sínum kröfum.
Síðast fóru danskir hjúkrunarfræðingar í
verkfall árið 1976. Verkfalli danskra
hjúkrunarfræðinga nú lauk með laga-
setningu á danska þinginu 24. maí sl. og
hjúkrunarfræðingum var gert skylt að
koma aftur til starfa. Samkvæmt þessum
lögum eiga lijúkrunarfræðingar að fá sömu
launahækkanir og aðrir opinberir starfs-
menn til að byrja með. I lögunum er einnig
102
TÍMAKIT HJÚKRUNAKFRÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 árg. 1995