Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Page 2

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Page 2
Er konudagurinn versti dagur ársins? Histasín er áhrifaríkt lyf við ofnæmi og hjálpar þér aó njóta lífsins til fulls. Huer tafla inniheldur: Cetirizinum INN, díhýdróklóríö, 10 mg. Eiginleikar: Cetirizín blokkar H1-viðtaka, en hefur nánast engin áhrif á H2-viðtaka. Lyfið hefur lítil andkólínvirk, adrenvirk og serótónínlik áhrif. Lyfið hindrar histamíntengda snemmsvörun í ofnæmi og minnkar sækni eósínófíla og þar með losun ýmissa boðefna í seinsvörun boðefnisins, hefur lítil slævandi áhrif á miðtaugakerfið og eykur hvorki verkanir etanóls ná diazepams. Frásogast hrattfrá meltingarvegi og blóðþéttni nær hámarki eftir 1 klst. Próteinbinding í plasma er um 93%. Helmingunartími lyfsins í blóði er um 10 klst. Verkun lyfsins hefst eftir u.þ.b. 25 mínútur frá inntöku, nær hámarki eftir 4 klst. og varir i a.m.k. 24 klst. Lyfið skilst að mestu óbreytt út i þvagi. Lyfjahvörf breytast lítið með aldri en helmingunartimi lengist við nýrnabilun. Ábendingar: Ofnæmisbólgur í nefi. Útbrot og kláði, sem stafa af histaminlosun. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum lyfsins. Meðganga og brjóstagjöf: Skaðleg áhrif á fóstur hafa ekki komið fram við dýratilraunir. Reynsla af notkun lyfsins á meðgöngutíma er hins vegar lítil sem engin og ætti því að forðast slíka notkun. Lyfið skilst út í móðurmjólk í verulegu magni og ætti ekki að nota það handa konum með barn á brjósti. Aukaverkanir: Algengar (>1 %): Munnþurrkur. Þreyta og syfja. Milliverkanir: Ekki þekktar. Athugið: Lyfið getur, stöku sinnum, haft slævandi verkun á heilann með minnkaðri eftirtekt og viðbragðsflýti. Þetta getur verið varasamtfyrir stjórnendurvéla og ökutækja. Sjúklingarmeð skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi geta þurft minni skammta en aðrir. Skammtastærðir handa fullorðnum: Ein tafla (10 mg) á dag. Skammtastærðir handa börnum: Börn eldri en 12 ára: Ein tafla á dag. Lyfið er ekki ætlað börnum 12 ára og yngri. Pakkningar: 10 stk., 30 stk. og 100 stk.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.