Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Page 11

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Page 11
Mynd 1. Hugsanlegar skýringar á takmörkuðu aðgengi að neyðargetnaðarvörn south cooperation in reproductive health, 1995). Eg tel aö allir þessir þættir eigi við hér á landi. Heilbrigðisstarfsfólk hefur skort upplýsingar um hana og það hefur líklega haft áhrif á að sjaldan hafi verið bent á hana. Eins hafa konur/stúlkur almennt ekki vitað um tilvist hennar nema þær sem höfðu kynnst henni erlendis. Þekkingarleysið gerði það að verkum að lítil eftirspurn var eftir henni. Lítið hefur verið gert til þess að auglýsa hana opinberlega og koma vitneskju til kvenna/stúlkna (para). Fremur stutt er síðan sérstök lyfjapakkning var skrásett hérlendis. Hér er gerð nánari grein fyrir ýmsum þáttum, einkum þekkingar- skorti og neikvæðum viðhorfum, sem varpað geta Ijósi á takmarkað aðgengi erlendis sem hérlendis (mynd 1). Þekkingarskortur Alls kyns þekkingarskortur og misskilningur hefur verið ríkjandi um neyðargetnaðarvörn bæði meðal fagfólks og almennings. Glasier (1995) bendir á að þekkingarskortur um tilvist neyðargetnaðarvarnar hafi verið töluverður meðal kvenna í Bretlandi. Þekking þeirra hafi þó farið töluvert vaxandi á síðustu árum. Nefnir hún t.d. að árin 1990 og 1994 hafi Schering gert rannsókn meðal breskra kvenna og niðurstöður sýnt að 75% - 90% þeirra hafi haft vitneskju um neyðargetnaðarvörn. Rannsókn Bromham og Cartmill 1993 (sjá í Goldsmith, 1995) fjallaði um viðhorf kvenna, sem fóru I fóstureyðingu, til neyðargetnaðarvarnar. Niðurstöður sýndu að um 20% vissu um neyðargetnaðar- vörn, hvar væri hægt að fá hana og hvenær væri best að nota hana (sjá í Goldsmith, 1995). Samkvæmt rannsókn höfundar frá árinu 1996 á viðhorfum ungs fólks hér á landi til sérhæfðrar þjónustu um kynlíf og barneignir kom fram að aðeins 36% ungmenna á aldrinum 17-20 ára höfðu vitneskju um neyðargetnaðarvörn. Náði þessi rannsókn til ungmenna alls staðar af landinu og svöruðu alls 1359 þátttakenda þessari spurningu (Sóley S. Bender, 1999a). Geta má þess að áður en þessi könnun var gerð var ekki til hér á landi neinn sérstakur bæklingur sem fjallaði eingöngu um neyðargetnaðarvörn. Glasier (1995) greinir frá því að konur hafi iðulega vantað upplýsingar um hvar þær gætu nálgast neyðar- getnaðarvörn. Það komi fyrir í Bretlandi að heimilislæknar veiti ekki þjónustu varðandi getnaðarvarnír. Þó að kona geti farið til annars læknis en þess sem hún er skráð hjá segir Glasier að almenningur viti sjaldnast um það. Hér á landi hefur fólk almennt ekki aðgang að sérhæfðri getnaðarvarnamóttöku. Það getur leitað til heimilislæknis síns. í Ijós hefur komið að ungt fólk veit oft ekki hvert það getur ieitað til að fá neyðargetnaðarvörn. Iðulega kemur fyrir að ungt fólk, sem leitar til ráðgjafa FKB í Hinu húsinu, er þegar búið að reyna annars staðar. Eins hefur gætt 135 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.