Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Page 28

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Page 28
feðrum barna með sérþarfir upplýsingar um viðkomandi sjúkdóm og meðferð hans með hjálp Internetsins og voru niðurstöður kynntar á ráðstefnunni. Rannsakendur: David N. Ekstrom, P. Gilleaudeau, E. Pottoore, J. Shepard. Hvers vegna fara ungar konur í brjóstastækkun? Brjóstastækkunaraðgerðum hefur farið fjölgandi hér á landi á undanförnum árum. Viðhorf almennings sem og heilbrigðisstétta til slíkra aðgerða eru mjög blendin og því þótti full ástæða til að kynnast nánar hvað lægi að baki ákvörðun um að fara í slíka aðgerð. í rannsókn á nokkrum íslenskum konum, sem höfðu farið í brjóstastækkun, kemur fram að þarna eru ýmsar ástæður að baki en jafnframt að konunum fannst aðgerðin nauðsynleg til að bæta líf sitt. Rannsakendur: Kristín Sigurðardóttir, G. Ólafsdóttir, H. Þorgilsdóttir. Minni árangur af endurhæfingu eftir hjartauppskurð hjá konum en körlum Uppbygging endurhæfingar eftir hjartauppskurð hefur hingað til að mestu verið miðuð við karla enda mun algengara að karlar fari í slíka aðgerð. Könnun á árangri slíkrar meðferðar hjá konum sýndi að endurhæfing, sem miðast við þarfir karla, hefur ekki tilætluð áhrif hjá konum og að nauðsynlegt er að vera með kynbundna endur- hæfingarmeðferð eigi konur að hafa jafnmikið gagn af henni og karlar. Rannsakandi: Bengt Fridlund. Líðan eftir legnám Margar konur óttast legnám jafnvel þótt þær fái að vita að við það losni þær við verki og miklar blæðingar. Margar telja að það muni leiða til breytinga sem þær geta ekki sætt sig við, m.a. að þetta hafi áhrif á kynlíf þeirra, og kjósa því heldur að þjást. En nýleg íslensk rannsókn á líðan kvenna, sem farið hafa í legnám, sýnir að eftir aðgerðina finna þær mikinn mun á líðan sinni til hins betra. Rannsakendur: Bryndís Þorvalds- dóttir, Margrét Pálsdóttir, Súsanna Davíðsdóttir. Ungar konur og þunglyndi Hvers vegna verða ungar konur þunglyndar? í íslenskri rann- sókn er talað við íslenskar konur sem þjáðst hafa af þung- lyndi, þær m.a. spurðar hverjar þær sjálfar telji vera ástæð- una fyrir þunglyndi, hvort koma hefði mátt í veg fyrir það og þá hvernig. Rannsóknin sýnir að konur, sem orðið hafa fyrir miklum áföllum og búa við álag, eiga á hættu að verða þunglyndar. Konurnar töldu að ef þær hefðu fengið stuðning á þeim tíma sem fyrstu einkenni fóru að gera vart við sig hefði sjúkdómurinn líklega ekki náð að þróast þar til hann var orðinn alvarlegur. Rannsakendur: Þórunn Guðmundsdóttir, Kolbrún M. Haukdal Jónsdóttir, Valgerður Hermannsdóttir. Er miðlun mikilla upplýsinga alltaf til góðs? Sjúklingar hafa gjarnan kvartað yfir því að fá ekki nægilega miklar upplýsingar um ástand sitt. En hefur það betri áhrif að veita sjúklingum ýtarlegar upplýsingar um meðferð áður en þeir fara í hættulegar aðgerðir? Rannsókn, sem miðaði að því að fá svar við þessari spurningu, gefur vísbendingu um að svo sé ekki. Rannsakendur: Marjolein J. van Vliet, M. Grypdonck, J.A.M. Winnubst, F.L. van Zuuren. Einsemd ungs fólks Áhyggjuefni er að ungt fólk virðist í vaxandi mæli vera einmana en getur einsemdin verið af hinu góða? Kannað var hjá ungu fólki hvaða áhrif einsemd hefði á líf þess, hvernig það skynjaði einmanaleikann og hvernig einmana- leiki tengist heilsufari þessa fólks. í Ijós kom að tala má um einmanaleika sem hefur slæm áhrif en einnig einmanaieika sem getur leitt til nokkurs þroska. Því má líta svo á að einmanaleiki geti haft góðar afleiðingar. Rannsakendur: Lisbet Lindholm, Unni Lindström, Ebba Granström. Árangur „kinaesthetic" hreyfimeðferðar Sjúklingar sem hafa farið í hjartauppskurð eiga við ákveðin öndunarvandamál að glíma í kjölfar uppskurðarins. Ákveðinni tækni er beitt til að hjálpa þeim en ef hjúkrunarfræðingar beita ,,kinaesthetic“ hreyfimeðferð virð- ist hægt að ná enn betri árangri. Rannsakendur: Anna Maria Eisenschink, H. Bauder, E. Kirchner. Álag og áhrif á líf aðstandenda Alzheimersjúklinga Búast má við að sjúklingum með Alzheimersjúkdóm fjölgi mjög á komandi árum. Þessi erfiði sjúkdómur hefur ekki síst áhrif á aðstandendur slíkra sjúklinga. Mikilvægt er að öðlast þekkingu og skilning á þeim áhrifum sem sjúkdómurinn hefur á þá sem einkum annast þessa sjúklinga, þ.e. aðstandendur. Rannsóknir, sem farið hafa fram á því sviði sýna að þarna er málefni sem taka þarf föstum tökum í heilbrigðiskerfinu. Rannsakendur: Ercole Vellone, F. Micci, J. Sansoni, N. Sinapi og C. Cattel. Hægt að kynna sér nánar Á bókasafni Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er hægt að skoða dagskrá ráðstefnunnar og ef einhver hefði áhuga á að fá meira að vita um rannsóknirnar eru þarna allar upplýsingar um hvernig hægt er að nálgast höfundana. Auðveldara er auðvitað að kynnast nánar íslensku rann- sóknunum og vafalaust væri hægt að fá höfunda þeirra til að koma á fundi og flytja erindi ef þess væri óskað. Þá má kannski koma aftur að upphafsorðunum, þ.e. hvort rannsóknir komi á einhvern hátt inn í dagleg störf hjúkrunarfræðinga. Þegar ég var að funda með undirbún- ingsnefnd ráðstefnunnar þar sem við vorum að skipuleggja kynningarefnið sagði Anna Birna að leggja þyrfti áherslu á að rannsóknir hjúkrunarfræðinga ættu stærstan þátt í því að framfarir og þróun yrðu í starfinu. En til að þær nýjungar og þekking, sem rannsóknirnar leiða af sér, nýtist f starfinu þarf að sjálfsögðu að kynna þær. Ráðstefna eins og þessi WENR-ráðstefna er stór þáttur í því. 152 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.