Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Page 53

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Page 53
Bækur og bæklingar Bæklingurinn „Ofbeldi á vinnustað" er kominn út á vegum geðsviðs Landspítala-háskólasjúkrahúss. Þar eru gefin hagnýt ráð til að aðstoða við að greina hvort ofbeldi er vanda- mál hjá starfsfólki og ef svo er hvernig á að sporna við því. Ráð- leggingarnar eru ætlaðar vinnuveit- endum en geta einnig gagnast starfsfólki og öryggisfulltrúum. Ábyrgðarmaður er Þórunn S. Rálsdóttir. Námskeið Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands Heilsuefling - almannaheilsa Fjallað verður um heilsueflingu í víðum skilningi en áhersla lögð á hvernig hægt er að fá fólk til að hreyfa sig reglubundið sér til heilsubótar. Umsjón: Svandís Sigurðardóttir, lektor í námsbraut í sjúkraþjálfun, HÍ Tími: 30. ágúst kl. 9:00-16:00 og 31. ágúst kl. 9:00-13:00 Verð: 3.900 Heilbrigðisstofnunin, Siglufirði Hjúknmarfræðingar! Okknr vantar hjúkrunarfræðinga strax í fastar stöður og til afleysinga. Mikil vinna fyrir þá sem það vilja. Góð laun í boði. Hafið samband og/eða komið í heimsókn og kynnið ykkur aðstæður. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 467 2100. Stómavörur .= Coloplast Coloplast býður upp á fj Ibreytt úrval af stómavörum við allra hæfi, bæði eins og tveggja hluta kerfi. Assura húðplatan hefur sérstaka eiginleika. Hún situr vel og örugglega en fer jafnframt vel með húðina og er auðveld í notkun. Pokar af öllum stærðum og gerðum fyrir allar gerðir stómía svo og fjöldi aukahluta eins og þéttihringir, næturpokar o.fl. Stómalínan okkar er í stöðugri þróun sem leiðir til fjölda nýjunga á hverju ári. Margar stærðir af ileostómíupokum bæði eins og tveggja hluta. Öruggt og einfalt lokunarkerfi. Mjúkar sjálflímandi klemmur. Kólóstómíupokar Margar stærðir, góður filter, öruggt og einfalt lokunarkerfi, mjúkir og þægilegir pokar. Margar stærðir af urostómíupokum bæði eins og tveggja hluta. Öruggur ventill sem hindrar bakflæði. Mjúkur og þægilegur losunartappi sem einfalt er að eiga við, líka fyrir þá sem eiga erfitt með fingrahreyfingar. Fullkomin lína fyrir börn. Litlir þægilegir pokar með sömu góðu húðplötunni og öruggri læsingu. Ó.JohnsonSt Kaaber hf Sætúni 8, 105 Reykjavík S. 535 4000 • Fax: 562 1 878 Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 2. tbl. 76. árg. 2000 177

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.