Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Síða 58

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2000, Síða 58
Þankastrik Þankastrik er fastur dálkur í blaðinu og höfundur hvers pistils stingur upp á þeim næsta. I Þankastriki gefst hjúkrunarfræðingum færi á að tjá sig um ýmislegt sem varðar hjúkrun og er þeim hjartfólgið. Þistlarnir geta fjallað um ákveðin málefni, sögur af kynnum við sjúklinga eða starfsfólk, eitthvað sem hefur orðið höfundum til hugljómunar eða hvaðeina annað sem tengist starfinu og hugmyndafræði þess. Björg Pálsdóttir, sem skrifaði Þankastrik síðasta blaðs, skoraði á Hildi Magnúsdóttur sem tekur hér upp þráðinn. 'Hjúkrun í ktim þAv stm í AÆr er k worjuR Samvínna hugar, handar og hjarta Hildur Magnúsdóttir Lífið í dag einkennist af örum breytingum, óvissu og umróti. Gær- dagurinn er eiginlega orðinn að morgundeginum. Og það er ekkert sem bendir til að um fari að hægjast. Hvert stefnum við? Mér finnst vera talsverð teikn á lofti í þá átt að bæði skriðdrekar og skjaldbökur nútímans muni ekki þola sólarupprás framtíðar og því umbreytast í steingerð tröll. Er ég þá ekki eingöngu að vísa til tileinkunar á tækni- legum nýjungum heldur einnig til uppbyggilegrar Irfs- og samskipta- leikni. Hin hefðbundnu vísindi, sívaxandi sérhæfing, hraði, tækni og rafræn samskipti eru ekki lausn allra þeirra viðfangsefna er bíða okkar né munu þau leiða til framþróunar ein sér. Ég held þau svari ekki öllum spurningum né þörfum okkar. Vissulega hefur nútíminn haft í för með sér stórkostlega möguleika. En við megum þó ekki gleyma því að lífsvon mannlegs samfélags byggist á grundvallargildum sam- vinnu, samhæfingar, kærleiks og skilnings manna á meðal. Þeir sem hafa siglt niður straumharða á stefnulaust vita að kraftmikill hringiðustraumur ber mann þangað sem honum þókn- ast. En þeir vita líka að hægt er að hafa áhrif á stefnuna. En hvað kemur þetta hjúkrun við? Ég sé margar ár innan stéttarinnar. Sumar bara sprænur, aðrar straummeiri. Á spildunum milli hinna ýmsu áa búa hópar hjúkrunarfræðinga. Margar ánna eru óbrúaðar. Það vantar brýr milli hinna ýmsu hópa stéttarinnar - stjórnenda, almennra og sérhæfðra hjúkrunarfræðinga, fræðimanna og kennara. Ég held að ef við brúum ekki þessar ár muni straumur framtíðarinnar renna fram hjá okkur og við verðum eftir á árbakkanum sem áhorfendur, verðum ekki virkir þátttakendur í framtíðinni vegna þess að við áttuðum okkur ekki á kalli tímans. Allar óbrúaðar ár eru ógnun við tilvist mannfélagsins. Við sjáum merki þess um allan heim því bilið stækkar milli vannærðra og auðugra og stríð og ófriður breiðist út. Hjúkrunarfræðingar eru fjölmennasta fagstétt heilbrigðiskerfisins og stéttin ber sem slík talsverða ábyrgð. Hjúkrun, sem ekki svarar kalli framtíðar varð- andi fag-mannlega brúarsmíði, ógnar bæði sjálfri sér og heil- brigðisþjónustunni. Heilbrigðisþjónusta, sem ekki svarar kalli framtíðar, ógnar velferð þjóðarinnar. Það þarf auðvitað að byrja að telja ofan frá (stjórnvöld) og frá hlið (aðrar heilbrigðisstéttir) - en hugtakið „maður líttu þér nær" er enn í fullu gildi. Hjúkrun er fagstétt sem mörkuð er af hinum kvenlegu gildum. Þau gildi eru í vaxandi mæli skoðuð á ný sem þau gildi er nauð- synleg eru fyrir velferð mannkyns. Ekki bara í sambandi við umönnun heldur t.d. einnig í stjórnun. Þetta eru gildi samhæf- ingar, samvinnu, tillitsemi, einlægra samskipta og umhyggju og þau krefjast þess að fólk setji sig í spor annarra og vinni saman af víðsýni að lausnum fyrir heildina. Þetta eru gildi brúaðra áa. Þetta eru gildi sem heilbrigðisstéttir mættu sýna meira á borði, minna í orði. Hlutverk okkar sem leiðtoga og stjórnenda er ekki síst mikilvægt í þessu sambandi. Sérhæfing er af hinu góða en samhæfð sérsýn er betri. Hún fæst með samvinnu og auknum skilningi milli hinna ýmsu hópa stéttarinnar. Fagdeildirnar geta t.d. unnið saman. Yfirstjórnendur og almennir hjúkrunarfræðingar þyrftu líka að byggja brýr. Ein er sú brú sem ég held að geti styrkt hjúkrun verulega, bæði greinina sjálfa og einstaklingana. Það er brúin milli almennra hjúkrunar- fræðinga og reyndra fræðimanna, milli rannsókna í hjúkrun og klínískrar hjúkrunar. Við eigum geysilegan auð af þekkingu hjá almennum hjúkrunarfræðingum sem hægt er að nýta betur. Hann má t.d. virkja með því að almennir hjúkrunarfræðingar afli sér aðferðafræðilegrar menntunar svo þessir ólíku hópar geti átt öflugt samstarf á jafnréttisgrundvelli. Til þess þurfa hjúkrunar- fræðingar ekki endilega að fara í meistaranám. Rannsóknarstofa í hjúkrun hefur boðið upp á leiðsögn, og aðferðafræðileg nám- skeið meistaranáms í Reykjavík og á Akureyri eru opin okkur öllum. Það má líka segja að þetta eigi að vera gagnkvæmt en ég held að leið almennra hjúkrunarfræðinga inn í fræðimennsku sé styttri en hin leiðin. Það sem ég hef sagt á ekkert frekar við hjúkrunarfræðinga en aðrar starfstéttir, annað fólk. En það á líka við um okkur. Ég held að þær stéttir eða einstaklingar innan þeirra, sem ekki hafa þroska til að sjá út fyrir sinn eigin þrönga sjóndeildarhring, eigi eftir að daga uppi sem máttlaus hópur vanþroska sérfræðinga. Steinrunnin tröll. Ég skora á Sigríði Halldórsdóttur, prófessor við Háskólann á Akureyri, að skrifa næsta þankastrik. 182 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 76. árg. 2000

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.