Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Page 11
Jólatréð og kökuveislan í vörutjaldinu. Með mér
eru pakistanskir starfsmenn: yfirmenn vörutjalds,
ræstingar og bíla svo og skrifstofustjórinn og tveir
bílstjórar
það hafði ég líka undirbúið á íslandi. Ég
var orðin dauðþreytt eftir mikla vinnu,
óttann í kirkjunní og umsjón með þessum
hátíðahöldum og gaf mér frí til hádegis
næsta dag. Jólahald okkar á spítalanum
mæltist ekki vel fyrir hjá fólki andsnúnu
Vesturlöndum en mér var samt sagt að í
lagi væri að halda látlausu tjaldveislu og
að litríku Ijósin væru í lagi. Dönsku
skopmyndirnar af spámanninum
Múhameð, sem höfðu birst í september,
ollu óöryggi hjá okkur vestrænu sendi-
fulltrúunum. Mér var því ekki rótt og lét
taka niður Ijósin og skrautið af jólatrénu
strax á þriðja í jólum og bannaði flugelda
í húsum okkar á gamlárskvöld. Fáir
öfgamenn geta valdið miklum skaða.
Sjúklingunum úthlutuðum við fötum sem
við höfðum fengið gefins. Starfsmenn
höfðu útbúið falleg fatasett fyrir konur,
börn og menn sem þeir bundu um með
slaufu. Mig minnir að meira hafi verið lagt
í mat á afmælisdegi Jinnah (jóladag) en
að öðru leyti var ekki um hátíðahöld hjá
þeim að ræða enda eru jólin ekki hátíð
múhameðstrúarmanna. Ég vardauðþreytt
eftir þetta jólahald. Ég veiktist heiftarlega
af matareitrun strax að jólum loknum og
gat því ekki tekið mér það frí sem ég
ætlaði að taka um áramótin til þess að
hitta Valgerði hjúkrunarfræðing sem vann
í hinu sjúkrahúsi Rauða krossins í
Pakistan. Ég náði því ekki að taka neitt frí
á þessum þrem mánuðum sem ég var í
Pakistan. Ég vona að ég þurfi ekki aftur
að vera andlit jólahalds á slíku sjúkrahúsi
í múslímsku landi með kristna starfsmenn
Kirkjan gamla. Mikið grjót hefði hrunið á mig hefði
hún hrunið í jólaskjálftanum
í minnihluta og pólitíska spennu í
umhverfinu. Ég held að ég hafi gert of
mikið úr jólunum fyrir þessa fáu kristnu
starfsmenn og mun verða varkárari ef ég
kem mér aftur f svona stöðu. Svo lengi
læri sem lifir. Gleðileg jól.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007
9