Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Blaðsíða 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Blaðsíða 50
Ingibjörg Hjaltadóttir, öldrunarsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss og hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands Anna Edda Ásgeirsdóttir, næringarstofu Landspítala-háskólasjúkrahúss Borghildur Árnadóttir, öldrunarsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss Helga Ottósdóttir, öldrunarsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss Guðbjörg Jóna Hermannsdóttir, öldrunarsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss Alfons Ramel, rannsóknastofu í næringarfræði, næringarstofu Landspítala-háskólasjúkrahúss og matvæla- og næringarfræðiskor Háskóla íslands Inga Þórsdóttir, rannsóknastofu í næringarfræði, næringarstofu Landspítala-háskólasjúkrahúss og matvæla- og næringarfræðiskor Háskóla Islands MATSTÆKI TIL GREININGAR Á VANNÆRINGU ALDRAÐRA Útdráttur Tilgangur rannsóknarinnar var að útbúa hentugt skimunartæki til að greina vannæringu hjá öldruðum sem dvelja á sjúkrahúsi. Þátttakendur voru 60 sjúklingar (>65 ára) sem voru lagðir inn á öldrunarsvið Landspítala á sex mánaða tímabili. Þeir voru færir um að gangast undir líffræðilegt mat (hæð og þyngd) og þeir voru ekki með alvarlega heilabilun. Næmi og sértæki breytna voru reiknuð tíl að meta matstækin. Breytur, sem sýndu marktækan mun á vannærðum og vel nærðum sjúklingum eða höfðu sterka fylgni við fullt mat á næringarástandi, voru notaðar í jöfnu til að spá fyrir um vannæringu. Niðurstöðurnar sýndu að með þremur breytum, sem notaðar eru saman (líkamsþyngdarstuðull (hæð og þyngd), ósjálfrátt þyngdartap og nýleg skurðaðgerð), er hægt að útbúa skimunartæki sem bæði er næmt (1,00) og sértækt (0,78). Matstækið er einfalt og auðvelt í notkun og með þvf að tengja það við reglulegt RAI- mat tekur notkun þess aðeins örfáar mínútur. Lykilorð: aldraðir, kembileít, næringarástand, hjúkrun Inngangur Mikilvægt er að aldraðir nærist vel og að brugðist sé við vísbendingum um vannæringu eða hættu á vannæringu. Ýmislegt getur stuðlað að aukinni hættu á vannæringu hjá öldruðum. Sjúkdómar og öldrunarbreytingar geta haft áhrif á næringarþörf og hversu vel einstaklingnum gengur að nærast (Howell, 1999). Ákveðin lyf geta einnig valdið lystarleysi og vannæríngu, s.s. þunglyndíslyf, þvagræsilyf og ópíumskyld lyf (Neel, 2001). Með aldrinum minnkar þörf fyrir orku vegna hægari brennslu en þörf fyrir ákveðin næringarefni getur ýmist aukist eða minnkað (World Health Organisation [WHOj, 2002). Mikivægt er því að fylgjast með næríngarástandi aldraðra og hafa hentugt matstæki til að greina vannæringu. Mat á næringarástandi Engin ein mælieining er til sem metur næringarástand. Þess vegna felur fullt mat á næringarástandi í sér mat á mörgum heilsufarsþáttum, þar á meðal líkamsmælingum og lífefnafræðilegum mælingum (Thorsdottiro.fi., 2005). Nákvæmt mat á næringarástandi er tímafrekt og skýrir það að hluta hvers vegna mati á næringarástandi og næringu aldraðra á sjúkrahúsum er ábótavant (Kondrup o.fl., 2002; Rasmussen o.fl., 1999). Til þess að mat á næringarástandi sé árangursríkt ENGLISH SUMMARY Hjaltadóttir L, Ásgeirsdóttir A.E., Árnadóttir B., Ottósdóttir H., Hermannsdóttir G.J., Ramel A., Thorsdóttir I. The lcelandic Journal of Nursing (2007). 83(5) 48-56 ASSESSMENT TOOL FOR MALNUTRITION IN ELDERLY PEOPLE. The aim of this research study was to construct a new and more suitable instrument to assess nutritional status of elderly hospitalized patients. The participants were 60 elderly patients (>65 years oid) who were admitted over a six month period at the Division of Geriatric Medicine at the Landspitali University Hospital, They were able to undergo a physical test (height and weight) and they were not suffering from advanced dementia. The sensitivity and specificity of variables was calculated to assess the instruments. Variables that were significantly different between well nourished and malnourished patients or had a strong correlation with a full nutritional assessment were used to construct the equation. The findings show that by using three variables together (body mass index (height and weight), unintended weight loss, and recent surgery) it is possible to construct a sensitive (1,00) and specific (0,78) screening tool. The screening tool is both fast and simple in application and when used with the mandatory RAI assessment it only takes a few minutes to get results. Key words: elderly, screening, nutritional status, nursing. Correspondance: ingihj@lsh.is 48 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.