Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Blaðsíða 13
Gerö var eftirfarandi framkvæmdaáætlun:
• Stofna þverfaglegan vinnuhóp.
• Forgangsraða efni til að hafa á sam-
skiptaspjöldunum.
• Fá læknisfræðilegan teiknara til starfa.
• Forprófa á ákveðnum deildum.
• Meta niðurstöður og ganga frá spjöld-
unum til prentunar.
í vinnuhópnum átti sæti starfsfólk úr
ýmsum stéttum spítalans frá sjö
mismunandi deildum. Voru allir mjög fúsir
til samvinnu og fannst verkefnið brýnt.
Vinnan hófst af alvöru um haustið, gögn
voru rýnd og hugmyndafræðin rædd.
Flver og einn kannaði þörfina á sinni
deild og kom með tillögur um það sem
kæmi þeirra sjúklingum best. Fljótlega
kom í Ijós að teikningar eingöngu væru
ekki ákjósanlegasti kosturinn heldur
kæmu Ijósmyndir oft að betri notum,
m.a. vegna þess að ýmsir sjúklingahópar
ættu auðveldara með að áttá sig á
Ijósmyndum en teikningum. Var ákveðið
að fá Ijósmyndara LSFI til að vinna með
okkur og taka myndir þar sem því yrði við
komið en fá teiknarann til að teikna það
sem erfiðara væri að sýna á Ijósmynd, t.d.
margs konar líðan og ýmsar rannsóknir.
Við skiptum bókinni í kafla eftir efni
og gerðum lista yfir þau atriði sem
starfsfólk taldi brýnast. Síðan var rætt
við Ijósmyndarann, Inger H. Bóasson,
og teiknarann, Hjördísi Bjartmars Arnar-
dóttur. Voru þær báðar mjög áhugasamar
og gekk samvinnan eins og best varð
á kosið. Myndunum var síðan raðað
eftir efnisköflum og Agnes Vilhelmsdóttir,
hönnuður spítalans, setti bókina upp og
bjó hana til prentunar.
Þegar fram í sótti vildum við finna nafn á
bókinasem væri gegnsætt og þjált átungu.
Við leituðum hugmynda víða, m.a. hjá
íslenskri málstöð, hjá íslenskufræðingum
við Kennaraháskólann, hjá samstarfsfólki
sem og vinum og ættingjum. Niðurstaða
hópsins varð Mál í myndum.
Bókin er 20x20 cm að stærð, 35 síður
með sex til níu myndum á hverri síðu.
Efnisþættir eru:
U'ðan
Lyf og rannsóknir
Matur
Athafnir daglegs lífs
Fatnaður
Meðganga, fæðing, sængurlega
Stuttur orðalisti á ýmsum tungumálum
með nauðsynlegustu orðum að mati
starfsfólks
Stafrófið
Klukkan
Hver efnisþáttur er merktur með
ákveðnum lit þannig að fljótlegt sé að
finna það sem leitað er að. Blaðsíðurnar
eru plasthúðaðar þannig að auðveldlega
má þvo þær eða spritta að notkun
lokinni.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007
11