Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Síða 50
Ingibjörg Hjaltadóttir, öldrunarsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss og hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands
Anna Edda Ásgeirsdóttir, næringarstofu Landspítala-háskólasjúkrahúss
Borghildur Árnadóttir, öldrunarsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss
Helga Ottósdóttir, öldrunarsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss
Guðbjörg Jóna Hermannsdóttir, öldrunarsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss
Alfons Ramel, rannsóknastofu í næringarfræði, næringarstofu Landspítala-háskólasjúkrahúss og matvæla- og næringarfræðiskor Háskóla íslands
Inga Þórsdóttir, rannsóknastofu í næringarfræði, næringarstofu Landspítala-háskólasjúkrahúss og matvæla- og næringarfræðiskor Háskóla Islands
MATSTÆKI TIL GREININGAR Á VANNÆRINGU ALDRAÐRA
Útdráttur
Tilgangur rannsóknarinnar var að útbúa hentugt skimunartæki
til að greina vannæringu hjá öldruðum sem dvelja á sjúkrahúsi.
Þátttakendur voru 60 sjúklingar (>65 ára) sem voru lagðir inn á
öldrunarsvið Landspítala á sex mánaða tímabili. Þeir voru færir
um að gangast undir líffræðilegt mat (hæð og þyngd) og þeir
voru ekki með alvarlega heilabilun. Næmi og sértæki breytna
voru reiknuð tíl að meta matstækin. Breytur, sem sýndu
marktækan mun á vannærðum og vel nærðum sjúklingum
eða höfðu sterka fylgni við fullt mat á næringarástandi, voru
notaðar í jöfnu til að spá fyrir um vannæringu. Niðurstöðurnar
sýndu að með þremur breytum, sem notaðar eru saman
(líkamsþyngdarstuðull (hæð og þyngd), ósjálfrátt þyngdartap
og nýleg skurðaðgerð), er hægt að útbúa skimunartæki sem
bæði er næmt (1,00) og sértækt (0,78). Matstækið er einfalt og
auðvelt í notkun og með þvf að tengja það við reglulegt RAI-
mat tekur notkun þess aðeins örfáar mínútur.
Lykilorð: aldraðir, kembileít, næringarástand, hjúkrun
Inngangur
Mikilvægt er að aldraðir nærist vel og að brugðist sé við
vísbendingum um vannæringu eða hættu á vannæringu.
Ýmislegt getur stuðlað að aukinni hættu á vannæringu hjá
öldruðum. Sjúkdómar og öldrunarbreytingar geta haft áhrif á
næringarþörf og hversu vel einstaklingnum gengur að nærast
(Howell, 1999). Ákveðin lyf geta einnig valdið lystarleysi og
vannæríngu, s.s. þunglyndíslyf, þvagræsilyf og ópíumskyld
lyf (Neel, 2001). Með aldrinum minnkar þörf fyrir orku vegna
hægari brennslu en þörf fyrir ákveðin næringarefni getur ýmist
aukist eða minnkað (World Health Organisation [WHOj, 2002).
Mikivægt er því að fylgjast með næríngarástandi aldraðra og
hafa hentugt matstæki til að greina vannæringu.
Mat á næringarástandi
Engin ein mælieining er til sem metur næringarástand.
Þess vegna felur fullt mat á næringarástandi í sér mat á
mörgum heilsufarsþáttum, þar á meðal líkamsmælingum og
lífefnafræðilegum mælingum (Thorsdottiro.fi., 2005). Nákvæmt
mat á næringarástandi er tímafrekt og skýrir það að hluta
hvers vegna mati á næringarástandi og næringu aldraðra á
sjúkrahúsum er ábótavant (Kondrup o.fl., 2002; Rasmussen
o.fl., 1999). Til þess að mat á næringarástandi sé árangursríkt
ENGLISH SUMMARY
Hjaltadóttir L, Ásgeirsdóttir A.E., Árnadóttir B., Ottósdóttir H.,
Hermannsdóttir G.J., Ramel A., Thorsdóttir I.
The lcelandic Journal of Nursing (2007). 83(5) 48-56
ASSESSMENT TOOL FOR MALNUTRITION IN
ELDERLY PEOPLE.
The aim of this research study was to construct a new
and more suitable instrument to assess nutritional
status of elderly hospitalized patients. The participants
were 60 elderly patients (>65 years oid) who were
admitted over a six month period at the Division
of Geriatric Medicine at the Landspitali University
Hospital, They were able to undergo a physical test
(height and weight) and they were not suffering from
advanced dementia. The sensitivity and specificity of
variables was calculated to assess the instruments.
Variables that were significantly different between
well nourished and malnourished patients or had a
strong correlation with a full nutritional assessment
were used to construct the equation. The findings
show that by using three variables together (body
mass index (height and weight), unintended weight
loss, and recent surgery) it is possible to construct a
sensitive (1,00) and specific (0,78) screening tool. The
screening tool is both fast and simple in application
and when used with the mandatory RAI assessment it
only takes a few minutes to get results.
Key words: elderly, screening, nutritional status, nursing.
Correspondance: ingihj@lsh.is
48
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007