Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Blaðsíða 15
UNDIRBUNINGUR KJARASAMNINGA FIH
Núgildandi kjarasamningur Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga (FÍH) við fjármálaráðherra f.h.
ríkissjóðs rennur út 30. apríl 2008. Undirbúningur
að kjaraviðræðum er þegar hafinn hjá félaginu
og er stefnt að því að ná nýjum samningi áður
en núgildandi kjarasamningur við ríkið rennur út.
Laun hjúkrunarfræðinga hafa hækkað minna en
meðaltalshækkun BHM þannig að hjúkrunarfræðingar
hafa miklar væntingar til komandi samninga.
Kjaranefnd, undir forystu Unnar
Þórmóðsdóttur, fundar nú vikulega,
yfirfer samninga félagsins og samninga
annarra stétta. Grundvallarþáttur í gerð
kröfugerðar og öðrum undirbúningi
kjarasamninga er að vilji félagsmanna sé
Ijós. Til að kanna vilja hjúkrunarfræðinga
og þeirra hugmyndir fyrir næstu
kjarasamninga var sett fram könnun
á vefsvæði félagsins. Könnunin tók
m.a. til hugmynda hjúkrunarfræðinga
um laun, aðra þætti samningsins og
vilja þeirra til aðgerða ef þörf krefur.
Morgunverðarfundir með félagsmönnum
hafa einnig gefið miklar upplýsingar um
hugmyndir og viðhorf hjúkrunarfræðinga
til kjara sinna og starfsaðstæðna. Alls
komu rúmlega 300 hjúkrunarfræðingar
á morgunverðarfundina frá öllum
svæðisdeildum félagsins. Fundað hefur
verið með trúnaðarmönnum og einnig
með 4. árs hjúkrunarfræðínemum í HÍ
og er þetta þáttur í undírbúningi kjara-
viðræðnanna.
Ljóst er að hjúkrunarfræðingar hafa
miklar væntingar til komandi samninga
og að niðurstöður þeirra munu hafa
mikil áhrif á áframhaldandi störf margra
þeirra. Nú þegar hjúkrunarfræðingar
verða æ eftirsóttari til starfa utan hinnar
hefðbundnu heilbrigðisþjónustu verða
launaviðmið önnur en áður. Samkeppni
um þessa mikilvægu stétt og þeirra
þekkingu er að verða virk. Þau laun,
sem greidd eru á einkamarkaði, hafa
verið mun hærri en laun á ríkisstofnunum
og því augljóst að stjórnvöld verða að
hækka laun hjúkrunarfræðinga verulega
ef halda á úti því heilbrigðiskerfi sem við
þekkjum.
Eins og fram hefur komið hefur
samanburður á hækkunum grunnlauna
hjúkrunarfræðinga og annarra BHM-
hópa, sem sömdu í sk. samfloti 2005,
leitt í Ijós að laun hjúkrunarfræðinga
hafa hækkað minna en meðaltalshækkun
BHM-félaganna svo nemur rúmum
þremur prósentum. Hjúkrunarfræðingar
hafa því augljóslega borið minna úr
býtum í gegnum stofnanasamninga en
aðrir hópar. Það vekur athygli í þessum
samanburði að þeir hópar, sem vinna
að stærstum hluta á stofnunum heilbrigð-
isráðuneytisins, hafa hækkað minna á
samningstímanum en hópar á stofnunum
annarra ráðuneyta. Leiða má líkur að því
að fjárhagsrammi heilbrigðisstofnana sé
þrengri en annarra stofnana, og að öll
matskennd ákvæði og heimildarákvæði
um hækkanir launa (ákveðin af
forstöðumönnum stofnananna) séu
síður nýtt á heilbrigðisstofnunum en
öðrum ríkisstofnunum. Af þessu þurfa
hjúkrunarfræðingar að læra.
Við gerð kjarasamningsins árið 2005 var
mikil áhersla lögð á afslátt af vinnuskyldu
vaktavinnufólks. FÍH lagði fram tillögu
um afslátt af vinnuskyldu, tillögu sem
byggð var á þeim kerfum sem gilda
á hinum Norðurlöndunum. Þar kemur
afsláttur alls staðar til, því meiri sem
vaktavinnufyrirkomulagið verður flóknara.
Afsláttur af vinnuskyldu náðist ekki fram í
síðustu samningum en þá var þó undirrituð
yfirlýsing um að á samningstímanum skuli
fara í „gagngera endurskoðun á málefnum
vaktavinnustarfsmanna með það að
markmiði að bæta vinnufyrirkomulag
þeirra og gera vaktavinnuna
eftirsóknarverðari. Sérstaklegaskal skoða
kjör og lengd vinnutíma.“ Vinnuhópur,
skipaður fulltrúum BHM (formaður FÍH
annar þeirra) og BSRB annars vegar og
fjármálaráðherra, Reykjavíkurborgar og
launanefndar sveitarfélaga hins vegar,
hefur unnið að umræddrí endurskoðun
á samningstímanum. Hópurinn leitaði
m.a. til Rannsóknarstofu í vinnuvernd
um gerð rannsóknar á viðhorfum
vaktavinnumanna. Rannsóknarskýrslan
hefur verið birt undir heitinu Á vaktinni
- með sveigjanlegum stöðugleika. Á
samningstímanum hafa einnig verið
haldin tvö málþing á vegum vinnuhópsins.
Nú er unnið að skilgreiningum á
vinnutímakafla kjarasamningsins með
það að markmiði að einfalda kerfið og
draga fram þann hóp sem kalla má hinn
„hreina" vaktavinnuhóp. Stefnt er að því
að endurskoðun vinnutímakaflans verði
lokið fyrir áramót og þá liggi fyrir tillögur
um „hvernig gera má vaktavinnuna
eftirsóknarverðari".
Kröfugerð FÍH mun liggja fyrir í upphafi
nýs árs og öll áhersla verður lögð á að
ná nýjum samningi áður en núgildandi
kjarasamningur við ríkið rennur út.
Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að
fylgjast vel með gangi mála á vefsvæði
félagsins, mæta vel á þá fundi sem
boðað verður til, taka þátt í könnunum og
atkvæðagreiðslum og standa þétt að baki
samninganefndar félagsins og stjórnar
þess. Nú ríður á að hjúkrunarfræðingar
sýni samstöðu í baráttunni fyrir betri
og réttlátari kjörum, kjörum sem eru í
samræmi við menntun þeirra og ábyrgð.
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður FÍH
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007
13