Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Page 26
Cecilie Björgvinsdóttir hjúkrunarfræðingur, MBA, verkefnastjóri kjara- og réttindamála á skrifstofu FÍH, cissy@hjukrun.is
HVAÐ BER AÐ HAFA í HUGA VIÐ RÁÐNINGU í STARF?
Þegar við hjúkrunarfræðingar erum að ráða okkur í starf er því miður allt of algengt
að við látum úthluta okkur launum í stað þess að gera kröfur um laun. Við spyrjum
hvaða laun séu í boði í stað þess að vera búin að verðleggja okkur og gera okkur
í hugarlund hvaða laun við teljum eðlileg fyrir eðli og umfang starfsins. í Ijósi þess
skorts sem er á hjúkrunarfræðingum er samningsstaða okkar góð og því er
mikilvægt er að þekkja hvað ber að hafa í huga við þessar aðstæður.
Kynnið ykkur launatöflu kjarasamningsins sem á við þá
stofnun sem þið eruð að ráða ykkur til. Næst þarf að skoða
hvaða svigrúm stofnanasamningur stofnunarinnar hefur til
launaröðunar. Mátið ykkur því næst inn í launarammann,
annars vegar launaflokkinn og hins vegar persónubundnu
þættina. Verið búin að gera upp við ykkur hvaða laun eru
viðunandi fyrir þetta ákveðna starf og hversu eftirsóknarvert
starfið er. Eruð þið tilbúin til þess að ganga í burtu og ráða ykkur
annars staðar fáið þið ekki uppsett laun? Ef ykkur finnst erfitt
að átta ykkur á hvaða kjarasamningur er í gildi á þeirra stofnun
getið þið leitað til félagsins eftir aðstoð. Félagið gerir miðlæga
kjarasamninga við eftirfarandi vinnuveitendur: fjármálaráðherra
(rfkið), LN (Samband íslenskra sveitarfélaga), Reykjavíkurborg,
Samtök fyrirtækja í heilbrigðisrekstri, sjálfseignarstofnanir,
Tryggingastofnun og almenna markaðinn (fáir samningar).
Gerið skriflegan ráðningarsamning við vinnuveitandann þar
sem fram koma eftirfarandi upplýsingar:
• Nafn, heimilisfang og kennitala stofnunar.
• Nafn, heimilisfang og kennitala starfsmanns.
• Vinnustaður.
• Eðli starfs, starfsheiti, stutt útlistun á umfangi og ábyrgðarsviði.
• Launakjör - gott að vísa í kjarasamning svo að laun taki
samningsbundnum hækkunum.
• Vinnutímaskipulag, starfshlutfall (dagvinna, vaktavinna, bakvaktir).
• Ráðning, þ.e. hvort ráðning ertímabundin eða ótímabundin.
• Upphaf ráðningar, starfslok ef um tímabundna ráðningu er
að ræða.
• Lífeyrissjóður sem greitt er í sem og viðbótarlífeyrissparnaður.
• Stéttarfélag.
• Orlofsréttur - hægt að vísa í kjarasamning (þ.e. tekur laun skv.
kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ...)
• Gagnkvæmur uppsagnarfrestur.
• Réttur til launa í barnsburðarleyfi - hægt að vísa í
kjarasamning. (Réttur til launa í barnsburðarleyfi byggist á
lögum 95/2000.)
• Réttur til launa í veikindum - hægt að vísa í kjarasamning. (Réttur
til launa í veikindum byggist á reglugerð nr. 411/1989.)
Það er gríðarlega mikilvægt að gera skriflegan ráðningarsamning
við vinnuveitandann. Á honum byggjast öll ykkar réttindi. Gera
skal slíkan samning í tvíriti og þið haldið undirrituðu eintaki af
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007