Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Síða 28
ATHYGLISVERÐ FRÆÐSLA A AÐALFUNDI
LUNGNAHJÚKRUNARFRÆÐINGA
Aðalfundur fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga var haldinn 14.
nóvember síðastliðinn, á degi langvinnrar lungnateppu (World
COPD Day). Litlar breytingar voru á kjörnum fulltrúum nema Aldis
Jónsdóttir hætti í stjórn eftir margra ára vinnu og voru henni
þökkuð störf í þágu fagdeildar.
Þátttakendur hlustuðu af athygli á fyrirlestrunum
Eftir aðalfundarstörf var boðið upp á
nnetnaðarfulla fræðsludagskrá. Þorbjörg
Sóley Ingadóttir, sérfræðingur í hjúkrun
lungnasjúklinga og formaður fagdeildar,
kynnti niðurstöður rannsóknar á
næringarástandi lungnasjúklinga sem
hafa komið á göngudeild lungnasjúklinga.
Flún lagði áherslu á að þyngdartap,
sem er afleiðing langvinnrar lungnateppu,
er í sjálfu sér mikilvægur áhættuþáttur
sem tengist skerðingu lífsgæða og hærri
dánartíðni. Það er þess vegna mikilvægt
að vigta lungnasjúklinga reglulega,
huga að næringarráðgjöf og gæta þess
að þeir sem eru í kjörþyngd fari ekki
niður fyrir hana. Þuríður Björnsdóttir
hjúkrunarfræðingur tók í sama streng í
umfjöllun sinni um líkamsgreiningu og
þjálfun fyrir lungnasjúklinga á Reykjalundi.
Ungur lungnasjúklingur í strangri vöðva-
uppbyggingu getur þurft allt að 4000
kcal á dag til þess að halda þyngd
sinni. Einstaklingur, sem er yfir kjörþyngd
og er að reyna að létta sig, verður að
fara mjög varlega til þess að missa
ekki vöðva og orku. Á Reykjalundi er
kraftmikil fræðsla fyrir lungnasjúklinga um
næringu og gaf Aðalbjörg Albertsdóttir
hjúkrunarfræðingur dæmi um hvernig
sjúklingafræðslan er uppbyggð.
26
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007