Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Page 31
Áhyggjur
En hvað með áhyggjur sem gera okkur
lífið oft svo leitt?
Við gætum t.d. haft áhyggjur af...
• fjölskyldunni
• heilsunni
• heimsmálunum
• útlitinu
• að vera ekki nógu klár
• að standa okkur ekki nógu vel: í starfi, sem
maki, foreldri, dóttir/sonur, vinur/vinkona
• að vera ekki nógu skemmtileg
• að eiga ekki nóg af peningum
• að eiga ekki ínnri frið.
Gera áhyggjur gagn? Veita þær okkur
öryggi, von og huggun? Leysa þær úr því
sem við höfum áhyggjur af? Ekki aldeilis!
Áhyggjur gera ekkert gagn og gera oft illt
verra, þær eru andstæða trúar og trausts
og svo eru þær rammþjófóttar - stela
friði, tíma og vellíðan.
Hvað er hægt að gera tii að losna
við áhyggjur? Áhyggjuleysi er ekki það
sama og ábyrgðarleysi. Af hverju að
hafa áhyggjur af gærdeginum sem er
liðinn? Af hverju að hafa áhyggjur af
morgundeginum sem er ókominn?
Hvernig væri að reyna að njóta dagsins
í dag - grípa hann eins og fornt latneskt
máltæki segir: Carpe diem.
Að hemja hugsanir og tilfinningar
og skapa gleði
Hvemig er hægt að hemja neikvæðar
hugsanir og tilfinningar og eignast líf í
gleði? Ýmsir aðilar hafa komið með tillögur
um það.
Fyrirgefningin er lykillinn að lífsgleði okkar
(Auður Eir Vilhjálmsdóttir, 2004)
Ekki búa um sig í myrkrinu (Dómkirkjan,
2004)
Betra er að kveikja lítið Ijós en formæla
myrkrinu (kínverskur málsháttur)
Þakklátur maður er hamingjusamur
maður (sr. Þórir Stephensen, 2004)
Ekki setjast að í vanlíðaninni heldur ganga
út úr henni með því að gera eitthvað
- skapa eitthvað - búa til brauð, laga til,
fara I gönguferð, fara í heimsóknir (Auður
Eir Vilhjálmsdóttir, 2004)
Þú getur reitt þig á að þú gleymir því sem
þér leiðist ef þú leitar að því sem gleður
þig (Úr bókinni Pollýanna eftir Parker, 1945).
Trúarskáldið Hallgrímur Pétursson hefur
líka lagt orð í belg sem á nútímamáli gæti
e.t.v. heitið HP-ráðgjöf. Hann tiltekur
þakklæti, að biðja bænir, setja traust sitt
á Guð, leita ráða í vanda, bæði hjá Guði
og mönnum, varast drambsemi, varast
tímasóun, iðrast og bæta ráð sitt þegar
þörf krefur.
Fyrir nokkrum árum kom fram hugmynd
um að gott væri að eiga svokallaðan
gleðikassa. Hugmynd að innihaldi slíks
kassa gæti verið: uppbyggilegt lesefni,
uppbyggilegt efni til að hlusta á/horfa á,
eitthvað sem vekur Ijúfar minningar (gömul
bréf, teikningar frá börnum, Ijósmyndir),
áætlun til að komast út úr vanlíðanínni,
þakklætisbók og kraftaverkabók.
Þá er hægt að draga fram bókina um hana
Pollýönnu, sem margir þekkja, og beita
hennar ráðleggingum, en eins og kunnugt
er lék hún ákveðinn leik, „gleðileikinn".
Þegar erfiðleikar eða leiðindi voru fyrir
hendi reyndi hún alltaf að finna eitthvað
gleðilegt við það. Hugmyndafræðin að
baki leiknum var það sem Pollýanna
kallaði „gleðitextana" í Biblíunni en þar
kemur fram um 800 sinnum að við eigum
að gleðjast og fagna! Jólin geta verið
ákjósanlegur tími til að íhuga þetta.
Minna má á geðorðin 10 frá
Lýðheilsustöð
Hugsaðu jákvætt, það er léttara
Hlúðu að því sem þér þykir vænt um
Haltu áfram að læra svo lengi sem þú
lifir
Lærðu af mistökum þínum
Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina
Flæktu ekki líf þitt að óþörfu
Reyndu að skilja og hvetja aðra í kringum
þig
Finndu og ræktaðu hæfileika þína
Settu þér markmið og láttu drauma þína
rætast
Hvernig tökum við á móti nýjum degi?
Tökum við honum fagnandi og með
þakklæti yfir að fá að lifa enn einn dag
sem felur í sér svo mörg tækifæri til að
geta aukið eigin lífsgæði og lífsgæði
annarra, en er það ekki einmitt það sem
hjúkrun felur í sér? Eða vöknum við með
kvíðahnút í maganum yfir öllum óleystu
verkefnunum sem bíða okkar?
Mig langar aftur að vitna í Orðskviðina í
Bíblíunni en þar er sagt frá einstaklega
dugmikilli konu. Fram kemur að „kraftur
og tign er klæðnaður hennar og hún
fagnar komandi degi“
(Orðskv. 31, 25). Ég hef nú stundum
hugsað til þessarar konu þegar ég vakna
á morgnana og „set áhyggjuverksmiðjuna"
í gang eins og maðurinn minn kallar það!
í hnotskurn
Hugsanir og tilfinningar eru nátengdar og
þær hafa mikil áhrif á líðan, framkomu
og samskipti. Neikvæðar tilfinningar geta
gert gagn ef þær eru nýttar á réttan
hátt.
Hægt er að gera ýmislegt til að hemja
hugsanir og tilfinningar og skapa gleði
jafnvel við erfiðar aðstæður; temja sér að
upphefja bjartsýni, jákvæðni, þakklæti og
gleði og uppræta neikvæðni, vonleysi og
vanþakklæti.
Jólin nálgast og því vil ég minna á þann
sem kom í þennan heim á hinum fyrstu
jólum og sagðist vera kominn til að færa
okkur líf í fyllstu gnægð - líf í gleði.
Mig langar til að óska þér, lesandí góður,
gleðilegra jóla með jólaljóði sem ég samdi
við lagið Have yourself a merry little
Christmas.
Guð þér gefi sanna jólagleði.
Óskin mín er sú
að þú eignist jólin björt í von og trú.
Megir þú nú fyllast jólafriði
er hátíð að höndum fer.
Fagna komu jólanna í hjarta þér.
Jólin lýsa upp myrkrið svart
myrkrið verður bjart og hlýtt.
Jesús kominn til okkar er,
okkur til sín kallar blítt.
Jólafriður tekur engan enda
um eilífð ríkir hann.
Á dýrðardegi opnast okkur himnarann
og Drottin sjálfan sjáum birtast daginn
þann.
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007
29