Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Page 40
Ragnheiður Alfreðsdóttir, ragnalf@krabb.is
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélags íslands
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélags íslands tók til starfa í endurgerðu
húsnæði Krabbameinsfélagsins í haust sem leið en var formlega opnuð
15. nóvember. Þjónustan er fyrir þá sem greinast með krabbamein og
aðstandendur þeirra.
Starfsemi Ráðgjafarþjónustunnar er
margþætt. f fyrsta lagi eru fastráðnir
starfsmenn sem eru hjúkrunarfræðingurog
félagsráðgjafi en einnig eru aðrirfagaðilar,
eins og sálfræðingur og næringarráðgjafi,
ráðnir sem verktakar eftir því sem þörf er
á. í Ráðgjafarþjónustunni gefst tækifæri
til að hitta aðra sem greinst hafa með
krabbamein og aðstandendur með
svipaða reynslu.
í öðru lagi vinnur Ráðgjafarþjónustan
í samvinnu við stuðningshópa Krabba-
meinsfélagsins og svæðafélög um land
allt. Stuðningshóparnir hafa aðsetur í
húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar og eru
með viðveru á föstum tímum að degi
til en námskeið, fundi og uppákomur á
kvöldin og um helgar.
Tilgangur þjónustunnar er að veita upp-
lýsingar, ráðgjöf, viðtöl, andlegan og
sálfélagslegan stuðning, námskeið og
hvatningu til sjálfshjálpar. Markmiðið er
að sinna þörfum hvers og eins til að ná
jafnvægi og koma stjórn á eigið líf í því
umróti sem greining krabbameins getur
valdið.
Dagskrá Ráðgjafarþjónustunnar er fjöl-
breytt. Má þar nefna sex vikna ræðu-
og sjálfstyrkingarnámskeið, hugræna
atferlismeðferð gegn þunglyndi og kvíða
þar sem lögð er áhersla á þarfir þeirra sem
greinast með krabbamein, hugleiðslu sem
fólk getur síðan stundað heima, sálrænan
stuðning eða áfallahjálp og listmeðferð.
Einu sinni í viku er opinn umræðufundur
Ragnheiður Alfreðsdóttir, hjúkrunarfræðingur
og sviðsstjóri
í þriðja lagi er lögð áhersla á að þjónustan
er fyrir alla landsmenn óháð búsetu og því
er hægt að notfæra sér gjaldfrjálsan síma
og tölvupóst til að fá þjónustuna. Náið
samstarf er við stuðningsfélög úti um allt
land, og heimsóknir út á land með fræðslu
og fyrirlestra er hluti af þeirri þjónustu sem
er veitt. Reynslan hefur sýnt að það er
ekki eingöngu fólk búsett á íslandi sem
nýtir sér þjónustuna heldur berast einnig
fyrirspurnir frá íslendingum erlendis.
um hagnýtar upplýsingar þar sem farið er
yfir réttindamál, fjármál og endurhæfingu.
Að auki er einu sinni í viku fræðslufundur
sem kallast „Leiðir að betri líðan" en það er
samstarfsverkefni Ráðgjafarþjónustunnar
og endurhæfingardeildar eftir greiningu
krabbameins á Landspítala í Fossvogi.
Á þeim fræðslufundi er sagt frá og rætt
um þá endurhæfingu og stuðning sem er
í boði á höfuðborgarsvæðinu og úti um
land. Samstarf við fagaðila Landspítalans
er einn af máttarstólpum starfseminnar.
Bætt líðan skjólstæðinganna felst meðal
annars í því að þeir finni og geti treyst
að allir fagaðilar vinna saman að sama
marki. Samstarf við Landspítalann og
aðra fagaðila, sem vinna með þeim sem
greinast með krabbamein, er mikilvægt í
þróun starfseminnar.
Ráðgjafarþjónustan er tilraunaverkefni til
þriggja ára og er fyrirmynd þjónustunnar
meðal annars sótt til Maggie’s Center
í Skotlandi. Starfsemin er í heimilislegu
húsnæði þar sem eldhúsið er kjarninn og
aðgangur er að tölvu, prentara, sérhæfðu
bókasafni og hressingu.
Ragnheiður Alfreðsdóttir, hjúkrunar-
fræðingur og sviðstjóri hjá Krabba-
meinsfélaginu, veitir þjónustunni forstöðu
og Gunnjóna Una Guðmundsdóttir er
félagsráðgjafi. Ráðgjafarþjónustan er
opin virka daga kl. 9:00-16:30. Á kvöldin
og um helgar eru fundir og námskeið.
Ráðgjafarþjónustan er í samstarfi við
Doktor.is. Þjónustan er gjaldfrjáls og allir
eru velkomnir.
38
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007