Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Page 41

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Page 41
G. Gerður Sæmundsdóttir, ggsaem@landspitali.is Ritdómur NÝ SÝN Á HEILABILUN Fyrr á árinu kom út bókin Ný sýn á heilabilun - einstaklingurinn í öndvegi eftir breska sálfræðinginn Tom Kitwood. Það er Svava Aradóttir hjúkrunarfræðingur sem þýðir bókina á íslensku. Það er í sjálfu sér fagnaðarefni að þýða eitt af verkum þessa merka og vel þekkta fræðimanns á íslensku. Eins og fram kemur í formála er ekki mikið um lesefni á íslensku sem snýr að umönnun heilabilaðara og ber því að fagna framtaki Svövu. Persónumiðuð umönnun var þróuð í Bretlandi af Tom Kitwood ásamt hóp sem nefndur hefur verið Bradford Dementia Group. Sú aðferð tekur mið af þörfum einstaklingsins og reynir að skilja orsakir hegðunarvandans. Lagt er upp úr því að kynnast Iffssögu viðkomandi og mæta honum á hans eigin forsendum. Þessi aðferð gerir kröfur til umönnunaraðila um að kafa dýpra og leita skilnings. Bókin kom út á frummálinu árið 1997 en á þeim árum, sem síðan eru liðin, hafa orðið gífurleg straumhvörf í allri meðferð. Þær breytingar, sem hafa orðið, snúa ekki síst að umönnunarþættinum, einnig hefur öll lyfjameðferð orðið árangursríkari. Þekking og skilningur fagfólks á einkennum og afleiðingum heilabilunarsjúkdóma hefur batnað til muna. Víðtækar breytingar og úrbætur í umönnun og aðbúnaði þessa sjúklingahóps hafa verið miklar. Þeir sem vel fylgjast með í þessum málaflokki eru stöðugt að gera úrbætur. Einnig er almenningur betur upplýstur um einkenni heilabilunarsjúkdóma. Áherslur og skrif Tom Kitwood og fleiri eiga eflaust einhvern þátt í því. En þrátt fyrir aldur bókarinnar eiga nokkrir kaflar tvímælalaust erindi til þeirra sem taka þátt í umönnun heilabilaðra. Má þar nefna sérstaklega þá sem eru byrjendur á þessum vettvangi. Þetta á einkum við kaflana þar sem rætt er um skort á góðri umönnun og vanrækslu Kitwood, Tom (2007). Ný sýn á heilabilun: einstaklingurinn í öndvegi. JPV. íslensk þýðing: Svava Aradóttir. Á frummáli heitir bókin Dementia reconsidered: the person comes first, og var hún fyrst gefin út 1997 sem eykur á tilfinningalegt álag og hættu á hegðunartruflunum, þessir kaflar ættu nánast að vera skyldulesning. Þeir eiga erindi til þeirra sem láta sig velferð og vellíðan heilabilaðra varða, en því miður er of oft hætta á vanrækslu gagnvart þessum viðkvæma hópi. Textinn er aðgengilegur öllum, það á svo eftir að koma í Ijós hvernig og hvort nýyrðin eiga eftir að festast í sessi. Sum þeirra eru frekar óþjál í munni. Það er því lítíð af nýjungum í boðskap bókarinnar. Ég hef þá trú að þar sem fagleg vinnubrögð eru höfð að leiðarljósi sé nær allt ástundað sem Tom Kitwood leggur áherslu á. Má þar nefna „að viðhalda sjálfsmynd persónunnar þrátt fyrír hnignun á andlegu atgervi" (bls. 147) með því að þekkja lífssögu. Almennt gerir fagfólk sér grein fyrir að umönnun snýst ekki bara um að sinna líkamlegum þörfum, þekking á lífssögu sjúklinganna ætti a.m.k. að vera til staðar. í áranna rás hafa kenningar Kitwoods fengið góðan hljómgrunn, einkum meðal þeirra sem vilja leggja sig fram við að auka gæði umönnunar og lífsgæði sjúklinga sinna, þeirra sem vilja vera talsmenn góðrar umönnunar. Aðferðin er að vísu frekar tímafrek og krefst mikillar þjálfunar og mannafla. í dag vinna hjúkrunarfræðingar og aðrar fagstéttir út frá ýmsum kenningum sem þá gjarnan er blandað saman til að öðlast betri skilníng á hinum fjölþættu vandamálum sem hjúkrun heilabilaðra felur í sér. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007 39

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.