Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Qupperneq 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2007, Qupperneq 42
Margrét Guðmundsdóttir sagnfræðingur, mgumm@internet.is SAGA HJÚKRUNAR Á ÍSLANDI Árið 2009 kemur út bók um sögu hjúkrunar á íslandi. Tímarit hjúkrunarfræðinga mun í komandi tölublöðum birta brot úr bókinni. Fyrsta greinin fjallar um Harriet Kjær sem var fyrsti formaður Félags íslenskra hjúkrunarkenna. í árslok 2009 verða 90 ár liðin frá því sex konur komu saman í Fjalakettinum við Aðalstræti og stofnuðu Félag íslenskra hjúkrunarkvenna. Á afmælisárinu verður gefið út rit um sögu hjúkrunar hér á landi eftir undirritaða. Eitt höfuðmarkmið verksins er að búa það þannig úr garði að hjúkrunarfræðingar og allur almenningur geti haft af því bæði gagn og gaman. í ritinu verður birt töluvert af Ijósmyndum og öðru myndefni sem ætlað er að auka skilning á efninu. Bókinni er skipt í 13 meginkafla en þeim er síðan deilt í undirkafla. Aftast í ritinu verða auk þess ýmsar skrár, meðal annars til að auðvelda leit að einstökum efnisatriðum, nafngreindum einstaklingum eða heimildum. Raddir hjúkrunarkvenna og hjúkrunar- fræðinga eru auðvitað mikilvægasta uppistaðan í þeim vef sem saga hjúkrunar er. Því miður hafa ekki nema örfáar ævisögur verið ritaðar um þá sem varið hafa kröftunum í umönnun sjúklinga. Fundargerðir og bréf eru þeim mun dýrmætari gögn um viðhorf og afstöðu stéttarinnar. Persónulegar heimildir, eins og bréf, varpa iðulega einstöku Ijósi á líf og störf bréfritara. Ein gjöfulasta uppsprettulind heimilda um hjúkrun hér á landi er þvf bréfasafn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Þetta einstaka safn hefur reynst ómetanlegt við samningu verksins. Það varpar ekki aðeins Ijósi á hugmyndir einstaklinga um hjúkrun heldur glæðir söguna lífi. Fröken Harriet Kjær, yfirhjúkrunarkona á Holdsveikraspítalanum í Laugarnesi er sjónum einnig beint að aðstæðum og lífskjörum. í verkinu er leitast við að varpa Ijósi á störf þeirra - jafnt leikra sem lærðra - sem unnið hafa við umönnun sjúklinga og hjúkrun. Þau störf hvíldu nær eingöngu á herðum kvenna fram yfir miðja 20. öld. Saga hjúkrunar er þar af leiðandi tengd stöðu og hlutverki kvenna. Bókin fjallar einnig um uppbyggingu heilbrigðisþjónustu á íslandi og þátt hjúkrunarkvenna og hjúkrunarfræðinga í henni. Vinna, kjör, félagsstörf og menntun eru í brennidepli verksins. Erfitt er að lýsa svo yfirgripsmiklu riti í fáum orðum en lesendum tímaritsins verður gefinn kostur á að kynnast einstökum þáttum í næstu tölublöðum. Stuttir kaflar úr bókinni verða birtir hér í blaðinu. Það er við hæfi að hefja leikinn með því að bregða upp mynd af fyrsta formanni Félags íslenskra hjúkrunarkvenna. Úr sögu hjúkrunar á íslandi Ritinu er valið vítt sjónarhorn. Umfjöllun Og svo einn bjartan vordag 1917 er ekki einskorðuð við uppbyggingu og gekk ég inn að Laugarnesi, hálfhikandi þróun stéttarfélagsins eða fagsins heldur samt. Þegar þangað kom tók ég í langan streng, sem hringdi bjöllu inni á spítalanum. Að vörmu spori er hurðin opnuð og andspænis mér stendur fröken Harriet Kjær, yfirhjúkrunarkona spítalans. Hún kannaðist við mig, því hún hafði séð mig á fundum í Guðspekihúsinu. Ég spurði hana hvort hugsanlegt væri að ég gæti fengið að tala við Sigurð Kristófer Þétursson. Hún kvaðst skyldi spyrja hann að því. Hún kom að vörmu spori aftur og tjáði mér að Sigurður Kristófer Pétursson væri fús að veita mér viðtal (Sören Sörensson, 1987). Gesturinn, sem tók í bjöllustrenginn á Holdsveikraspítalanum, var 17 ára piltur, Sören Sörenson að nafni. Heimsóknin varð örlagarík því Sigurður Kristófer, fræðimaðurog rithöfundur, varð „andlegur bjargvættur" piltsins. Títtnefndur Sigurður var á svipuðum aldri og gesturinn þegar hann kom á spítalann haustið 1898. Þar varði hann ævi sinni og ávann sér nafn fyrir ritstörf. Sigurður Kristófer Péturssonar eignaðist einnig bjargvætt í Laugarnesi, Harriet Kjær yfirhjúkrunarkonu. Unglingspilturinn Sigurður Kristófer varð að yfirgefa móður sína og systkini þegar hann var sendur á spítalann í Laugarnesi en faðir hans hafði látist fimm árum fyrr úr holdsveiki. Framtíðin blasti sannarlegaekki við piltinum og sjálfum fannst honum „líf sitt verra en dauðinn". Sigurður Kristófer var þjakaður af tómlæti og átti jafnvel enga von lengur. Fröken Kjær kom fljótlega auga á þá hæfileika sem blunduðu í piltinum. Jakob Kristinsson prestur lýsti síðar þeim áhrifum sem yfirhjúkrunarkonan hafði á Sigurð Kristófer og sagði: 40 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 5. tbl. 83. árg. 2007

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.