Svava - 01.07.1902, Síða 53
SVAVA
49
líminn leið. Magnús hertogi og Eiríkur bróðir hans
lentu í Svíþjóð, með her jjann er Danakonungur léði
þeim.
Menn vita ekki með vissu hvar þeir lentu, en það
er vist, að þeir stofndu til Vestur-Gautlands. Margir
svenzkir riddarar gengu í lið með þeim ásamt sveinum
sínum, eða réttara, í lið með Magnúsi, því allir fj'rir-
litu Eirík.
Valdimar yar í Stokkhólmi. Hann hafði líka dreg-
ið að sér lið, en flest voru það bændur.
í janúarmánuði 1275, lcom sendiboðinn aftur frá
páfanum, en ekkert bréf fékk Valdimar. Páfmn hafði
þvert á móti skrifað biskupum sínum í Svíþjóð, og skip-
að þeim að sætta þá brœöur, en það var þýðingarlaust.
Valdimar hafði sætst við drotningu sína að nafninu.
Það var einn dag í júní, að Valdimar var að ganga
ura gólf í herbergi sínu, og hugsa um hættu þá er yfir
honum vofði.
Drotningin var þar inni, fáeinar hrtðmeyjar og þrír
eöa fjórir riddarar. Einn þeirra var Eiríkur ívarsson.
„Þér megið ekki vera svona huglaus, lierra konungur,
sagði Eiríkur. „Tímarnir eru auðvitað erfiðir, en málstað-
ur yðar er réttur og guð mun gefa vopnum yðar sigur“.