Morgunblaðið - 24.05.2018, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
Octavia Limo G-Tec Sjálfskiptur
Listaverð: 3.550.000 kr.
Afsláttur: -360.000 kr.
Verð frá: 3.190.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum www.skoda.is
Nú bjóðum við takmarkað magn valdra bíla frá ŠKODA á frábæru tilboðsverði. Stundum þarf maður ekki að hugsa sig
tvisvar um – gríptu þetta einstaka tækifæri og náðu þér í nýjan ŠKODA á snilldarverði. Hlökkum til að sjá þig!
5
ár
a
áb
yr
g
ð
fy
lg
ir
fó
lk
sb
ílu
m
H
E
K
LU
að
up
p
fy
llt
u
m
ák
væ
ð
u
m
áb
yr
g
ð
ar
sk
ilm
ál
a.
Þ
á
er
að
fi
nn
a
á
w
w
w
.h
ek
la
.is
/a
b
yr
g
d
Šumarverð ŠKODA
ŠKODA Superb Limo Ambition
Listaverð: 5.060.000 kr.
Afsláttur: -480.000 kr.
Verð frá: 4.580.000 kr.
ŠKODA Á SNILLDARLEGU SUMARTILBOÐI!
Kíktu á hekla.is/skodas
umar
og sjáðu öll sumartilboð
in!
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þjóðkirkjan er skyldug til að greiða
Stórólfshvolssókn 10 milljóna króna
styrk vegna undirbúnings kirkju-
byggingar í miðbæ Hvolsvallar,
samkvæmt dómi Héraðsdóms
Reykjavíkur. Þjóðkirkjan hafði
veitt styrk til undirbúnings og
byggingar kirkjunnar en dró loforð
sitt síðar til baka og neitaði
greiðslu.
Sóknarnefnd Stórólfshvolssóknar
hefur í allnokkur ár verið að undir-
búa byggingu nýrrar kirkju á
Hvolsvelli. Sveitarfélagið tók frá lóð
við þjóðveginn í gegnum þorpið, við
hlið félagsheimilisins Hvols, og
byrjað var að teikna kirkjubygg-
ingu. Sóknarnefndin fékk 4,5 millj-
óna króna styrk frá Þjóðkirkjunni
fyrir sjö árum. Kirkjan lofaði 10
milljónum króna til viðbótar til und-
irbúnings úr jöfnunarsjóði kirkna
og samtals 80 milljóna króna fram-
lagi til byggingar kirkjunnar.
Undirbúningsstyrkurinn átti að
greiðast á árinu 2011 og framlög til
byggingarinnar á árunum 2012 til
2015, 20 milljónir á ári.
Á milli nefnda og dómstóla
Þegar stóð á greiðslum frá kirkj-
unni krafðist sóknarnefndin þess
formlega í byrjun árs 2015 að
undirbúningsframlagið yrði greitt.
Kirkjan neitaði að greiða og sagði
að skilyrði sem sett voru fyrir út-
hlutun fjárins hefðu ekki verið upp-
fyllt. Sóknarnefndin mótmælti því
sem röngu og skaut málinu til
úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar. Í
kjölfarið ákvað kirkjuráð að fella
niður 10 milljóna króna undirbún-
ingsframlagið og 20 milljóna króna
styrk til byggingar, samtals 30
milljónir kr.
Úrskurðarnefndin komst að
þeirri niðurstöðu að kirkjuráð
skyldi greiða 10 milljóna króna
styrkinn. Kirkjuráð vildi ekki una
því og skaut niðurstöðunni til áfrýj-
unarnefndar þjóðkirkjunnar sem
sneri við úrskurði úrskurðarnefnd-
arinnar.
Málið fór því næst fyrir héraðs-
dóm. Hann komst að þeirri nið-
urstöðu að ágalli hefði verið á skip-
an áfrýjunarnefndarinnar, ekki
hefðu verið kallaðir til tveir sér-
fróðir nefndarmenn til viðbótar
þeim þremur sem fast sæti eiga í
nefndinni. Var úrskurður áfrýjunar-
nefndarinnar felldur úr gildi og
kirkjunni gert að greiða Stórólfs-
hvolssókn 700 þúsund kr. í máls-
kostnað.
Staðan er því sú að úrskurður úr-
skurðarnefndarinnar er aftur kom-
inn í gildi en samkvæmt honum bar
þjóðkirkjunni að greiða 10 milljóna
króna styrk. Kirkjan hefur þá kosti
að greiða styrkinn, áfrýja dómnum
til Hæstaréttar eða skipa áfrýjun-
arnefnd á réttan hátt og leggja
málið fyrir hana að nýju.
Undirbúningur liggur niðri
Á meðan þessar deilur hafa stað-
ið yfir hefur undirbúningur að
kirkjubyggingu legið niðri. „Við
bíðum og sjáum hvað kirkjan ger-
ir,“ segir Berglind Hákonardóttir,
gjaldkeri sóknarnefndar Stórólfs-
hvolskirkju. Hún reiknar frekar
með að þjóðkirkjan skipi áfrýjunar-
nefndina upp á nýtt.
Sóknarnefndin er að íhuga það að
hefja að nýju umsóknarferli um
styrk úr jöfnunarsjóði kirkna, þrátt
fyrir að hún telji að þjóðkirkjan
hafi ekki staðið við loforð sín.
Kirkjan dæmd til að greiða út styrk
Bygging nýrrar kirkju á Hvolsvelli enn í biðstöðu Þjóðkirkjan stóð ekki við loforð um að styðja
undirbúning og byggingu kirkjunnar Sóknarnefndin íhugar að hefja nýtt umsóknarferli
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hvolsvöllur Nýja kirkjan á að rísa á græna svæðinu aftan við félagsheimilið Hvol og gamla Landsbankahúsið sem
standa hinum megin Hringvegar, vinstra megin á myndinni. Veitingastaður N1, Hlíðarendi, er til hægri á myndinni.