Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 39
áfram að forgangsraða í þágu skóla- starfs og í þágu velferðar.“ Innheimta hæstu skattana Eyþór biður svo um orðið: „Ég vil fá að bregðast við þessu. Ef borgar- stjóri heldur því fram að álögur hafi lækkað þá er ég Lísa í Undralandi. Vegna þess að fasteignaskattar hafa hækkað um 50% á fjórum árum. Í mínum huga er 50% hækkun ekki lækkun. Númer tvö er að útsvarið var hækkað í botn af borgarstjóra þegar hann var formaður borgar- ráðs og ekkert sveitarfélag á höf- uðborgarsvæðinu innheimtir jafn háa útsvarsprósentu á launað fólk. Þessar hækkanir, auk annarra, til dæmis hjá Orkuveitunni, þar sem gjöld eru núna til dæmis hærri en í Mosfellsbæ, eru ekki lækkanir.“ Sendu borgarbúum reikning – Þá spyr ég þig, Eyþór. Þið eruð líka með fjölda kosningaloforða. Það á að hækka lægstu laun á leik- skólum, hækka niðurgreiðslu til dagforeldra, byggja Sundabraut, eyða biðlistum eftir dagvist, fella niður fasteignaskatta á 70 ára og eldri, efla heimaþjónustu við eldri borgara og efla strætisvagnakerfið, svo eitthvað sé nefnt. Hvað mun það kosta borgina að efna öll þessi lof- orð? Hver er heildartalan? „Varðandi úrbætur í gatnakerfinu yrði þetta samstarf við ríkið, við Sundabraut og annað. Aðalatriðið í því efni er að borgin sé tilbúin að breyta og setja þessar framkvæmdir af stað. Varðandi Sundabrautina hefur borgin með [skipulagi byggðar í] Vogabyggð hreinlega lagt 10-15 milljarða reikning á herðar borgar- búum með því að útiloka hagkvæm- asta kostinn. Vegagerðin hefur sent bréf til borgarstjóra um það. Við viljum fara hagkvæmari leiðir. Við viljum líka fara raunhæfar leiðir í úrbótum í vegamálum og teljum að við getum gert það með Vegagerð- inni án þess að það íþyngi borginni. Varðandi það að lækka gjöld á íbúana eru menn að horfa til þess að við höfum misst gríðarlegan fjölda útsvarsgreiðenda til annarra sveitarfélaga. Það er ekki svo að við töpum alltaf tekjum með því að bjóða betur. Við sjáum að í Reykja- vík eru hæstu álögur en samt bætir borgin við sig skuldum í borgarsjóð og íbúarnir eru óánægðir. Við viljum horfa til annarra sveitarfélaga þar sem þetta hefur verið gert. Þá til dæmis sveitarfélaga í kringum okkur eins og Garðabæjar, Kópa- vogs og fleiri sveitarfélaga. Þar er reksturinn með þeim hætti að það þarf ekki að vera með okurverð á byggingarrétti eða of háar álögur. Þannig að þetta borgar sig upp til lengri tíma.“ – Þá eru það menntamálin. Leik- skólar og grunnskólar heyra undir borgina. Þið lofið báðir aðgerðum í þágu grunnskólanna. Hverjar eru áherslur ykkar í grunnskólunum? Eyþór verður fyrri til svara: „Það er merkilegt að núna, örfáum dögum fyrir kosningar, er ekki búið að semja við Félag grunnskólakennara. Það er ekki búið að ljúka mennta- stefnu Reykjavíkurborgar og það er ekki búið að jafna þann kvóta sem þarf til þess að styðja við börn af er- lendum uppruna. Þetta eru þrjú stórmál í grunnskólunum sem ég hefði talið að hefði átt að ljúka fyrir kosningar. En það hefur ekki tekist hjá þessari borgarstjórn. Það er dæmi um að það er mikið talað en ekki mikið klárað.“ Þverpólitísk stefnumótun Dagur tekur svo til máls: „Við náðum viðsnúningi í rekstri borgarinnar um mitt þetta kjör- tímabil. Og það fyrsta sem við gerð- um var að bæta inn fjármunum, bæði í skólakerfið og velferðina. Þetta hefur skipt verulegu máli. Samhliða höfum við farið í þver- pólitíska vinnu við að móta mennta- stefnu til langs tíma. Þar höfum við kallað alla að, fagfólkið, foreldrana, skólasamfélagið. Það er rétt hjá Ey- þóri að við tókum þá ákvörðun að klára ekki menntastefnuna heldur leggja hana fram í drögum núna fyrir kosningar og klára hana þá í haust. Það er einmitt vegna þess að okkur finnst skipta máli að það sé ákveðin festa í sýninni á skólakerfið og að þetta verði ekki gert að flokks- pólitísku þrætuepli í aðdraganda kosninga. Þetta er í raun of mikil- væg vinna til þess að eiga það á hættu. Því ég finn það hvar sem ég kem að það er svo mikilvægt að okk- ur hafi takist að snúa vörn í sókn í skólamálum. Að fólk hafi trú á fram- tíðinni. Við erum að mörgu leyti að ala upp einhverja efnilegustu kynslóð sem hefur alist upp í þessari borg. Maður sér það á svo mörgu þegar maður hittir krakkana og sér hvað þau eru að skapa og afreka í lífi sínu og starfi. En við verðum líka að hlúa að kennurum og skólasamfélaginu þannig að nýsköpun og deigla geti blómstrað. Við erum að búa sam- félagið allt undir miklar breytingar á næstu árum. Það er mjög mikil- vægt að skólakerfið sé í lykilhlut- verki við það annars vegar og hins vegar við að rækta jöfnunarhlutverk sitt; tryggja að öll börn fái tækifæri til að komast til manns og nýta hæfi- leika sína, á hvaða sviði sem þeir kunna nú að liggja,“ segir Dagur. Juku við fjárveitingarnar – Síðustu ár hefur metfjöldi er- lendra ríkisborgara flutt hingað til lands. Þótt aldursdreifing liggi ekki fyrir hjá Hagstofunni má ætla að mörg börn séu að flytja hingað. Hvernig ætlið þið að tryggja að börn af erlendum uppruna nái árangri í skólakerfinu? „Við greindum þetta á þessu kjör- tímabili og þarna eru stór viðfangs- efni,“ segir Dagur. „Bæði varðandi læsisþáttinn og annan aðbúnað. Þannig að í kjölfarið jukum við fjár- veitingar. Við settum upp nýtt kerfi farkennara til þess að leggja inn móðurmálskennslu. Því að hættan er sú að ef þú kannt ekki þitt móður- mál, sama hvert það er, verðurðu kannski hálftyngdur á því, og átt erfiðara með að læra íslensku. Sem er algjör lykill að þessu samfélagi, að sjálfsögðu … Þetta er eitt af for- gangsmálum í menntamálum.“ Sláandi tölfræði Eyþór verður næst til svara. „Það eru sláandi tölur, þegar borinn er saman námsárangur barna innflytj- enda við önnur börn, að það er 26% munur á meðaleinkunnum. Sem er mesti munur sem er mældur innan OECD. Það er því ljóst að núverandi stefna, eða framkvæmd hennar, hef- ur brugðist þessum börnum. Þessi vandi hefur aukist og sérstaklega í þeim hverfum þar sem flestir inn- flytjendur búa. Þannig að það er löngu tímabært að leysa þessi mál. Þótt það sé gott að vita að það sé bú- ið að kryfja og greina málið er mikil- vægara að leysa það. Annað er að aðgengi barna innflytjenda að öðrum þáttum eins og íþróttum og tónlist er minna, sem og þátttakan. Þar viljum við auka upplýsingagjöf inn í skólana. Foreldrar sem ekki hafa alist upp við frístundakort, eða íþróttir eða tónlistarskóla, þurfa meiri stuðning og upplýsingagjöf. Svo þarf að vera tækifæri til að stunda til dæmis listir, en á það skortir í mörgum hverfum borgar- innar.“ Öll börnin fari í leikskóla – Þá eru það leikskólarnir. Sam- kvæmt tölum sem komu úr borgar- kerfinu í apríl eru rúmlega 1.600 börn á biðlista í leikskólunum. Þá spyr ég þig, Dagur, hvernig á að stytta þessa biðlista? „Já, þessi 1.600 barna tala hefur verið svolítið nefnd. En hún er af- skaplega úrelt. Vegna þess að hún byggir á fyrirspurn sem var gerð vikuna áður en bréf voru send út vegna inntöku í haust. Þannig að allt bendir til þess að öll þessi börn kom- ist inn á leikskóla í haust. Það er nú svona takturinn í þessu. Það fara út bréf á vorin til leikskólabarna. Við höfum fjölgað ungbarnadeildum og gerum það aftur í haust. Þannig að í haust ættum við að geta tekið inn yngri börn en áður. Síðan höfum við sett fram áætlun um hvernig við fjölgum leikskólum með sérstökum viðbótardeildum og ungbarnadeild- um til þess að ná að brúa bilið milli Farið yfir málin Eyþór varar við áhættu í fjármálastöðu borgarinnar. Dagur segir stöðuna eftirsóknarverða. Ólík framtíðarsýn Dagur segir skipulagshugmyndir Eyþórs vera úreltar. Eyþór segir stefnu Dags tefja umferð.  SJÁ SÍÐU 40 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.