Morgunblaðið - 24.05.2018, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Fimmaurabrandarakeppni K100
heldur áfram. Keppnin var spenn-
andi en Konráð Jónsson kom vel
undirbúinn og heillaði dómnefnd
með lúmskum bröndurum, sem
margir voru jafnvel rúmlega fim-
maur. Konráð er svo sem enginn
nýgræðingur og var einn af frum-
kvöðlum í fimmaurabloggi með síð-
una Konráð undir rifi hverju. En
hér gildir að vera fljótur að hugsa
og ná að heilla dómara.
Ragnar Eyþórsson var búinn að
vinna þrisvar. Fyrst Ólaf Teit
Guðnason, svo Baldvin Jónsson og
loks Einar Bárðarson.
Fyrsti brandari Konráðs var
nokkuð lúmskur.
„Vælubíllinn er dottinn úr tísku.
Nú hringja menn bara í varðskipið
Ægi.“
Ragnar svaraði um hæl:
„Það er verið að frumsýna Star
Wars. Ég var að komast að því að
Chewbacca á bróður sem fæddist
sama dag. Tvíbacca.“
Konráð: „Myndirðu segja að blað
hafi verið brotið með stofnun papp-
írsskutlufélags Íslands?“
Ragnar: „Ég er mikið í fjár-
hættuspilum á netinu. Hef verið að
veðja á hagyrðingamót. Það eru svo
góðir stuðlar.“
Konráð: „Ég rakst óvart í caps
lock á lyklaborðinu. Shift happens.“
Ragnar: „Ég opnaði einu sinni
strípibúllu fyrir múmíur. Það fór
allt úr böndum.“
Konráð: „Ef þróunarkenningin
hefur kennt okkur eitthvað þá vitum
við að bald eagle var einu sinni re-
ceding hairline eagle.“
Ragnar: „Ég hef verið í heim-
spekilegum pælingum. Ætli Grýla
hlusti einhverntímann á barnið í
sjálfri sér?“
Konráð: „Af hverju er sandur allt í
kring í þessari eyðimörk? Er að
spyrja fyrir vin.“
Ragnar: „Ég ætla að búa til
íþróttakeppni fyrir sjúklinga. Veik-
leikarnir.“
Konráð: „Hvað sagði björg-
unarsveitarmaðurinn sem var ný-
sestur við sprengidagsmatinn? Salt-
kjöt og baunir – útkall.“
Ragnar: „Vitið af hverju Ástríkur
og Steinríkur eru svona svangir?
Þeir eru garnagaulverjar.“
BAMM. Hér fékk Ragnar ekki
stig og Konráð því kominn með for-
ystuna.
Konráð: „Baldvin Zeta kvik-
myndaleikstjóri var að taka baðher-
bergið sitt í gegn. Hann heitir núna
Baldvin Hæglokandi Zeta.“
Ragnar: „Það er nektarnýlenda
útá tanga. Þar er bara ein sósa Ber-
nes.“
Konráð: „Ég var í erfiðri kynleið-
réttingaraðgerð. Er alveg frau eftir
þetta.“
Ragnar: „Ég fór einu sinni með
vampíru í vínsmökkun. Meiri svona
blóðprufur.“
Konráð: „Þessi er meira fyrir þá
sem hafa séð Lethal Weapon. I’m
getting to old for this sheet.“
Ragnar: „Vitið þið hvernig kebab-
hákarlinn í Jaws borðar alltaf? Dur-
um, durum, durum.“
Hér var Konráð kominn í þá
stöðu að hann þurfti bara einn góð-
an í viðbót til að tryggja sér sigur
og fyrsta Íslandsmeistaratitilinn á
ævinni. Það var gríðarleg spenna í
loftinu:
„Ég fór á Keflavíkurflugvöll um
daginn. Ég komst ekki í Saga lo-
unge. Ég stóðst ekki loungehæf-
ismat.“
Þar með var hann búinn að
tryggja sér titilinn og glæsilegan
farandbikar. En hann þarf að verja
titilinn að tveimur vikum liðnum. Þá
mætir hann Erni Úlfari Sævarssyni.
Það væri hræðilegt að missa af því!
Þess má geta að hægt er að halda
áfram að fylgjast með listsköpun
Ragnars á Twitter þar sem hann
kallar sig @raggiey.
logibergmann@k100.is
Konráð Íslandsmeistari
Konráð Jónsson er Ís-
landsmeistari í fimm-
aurabröndurum eftir
æsilega keppni við þre-
faldan meistara, Ragnar
Eyþórsson, í morg-
unþættinum Ísland
vaknar á K100.
K100/Rikka
Brandarakarlar Konráð Jónsson og Ragnar Eyþórsson þurftu að vera fljótir að hugsa og heilla dómarana.
Logi Pedro gaf nýverið
út sína fyrstu sólóplötu,
Litlir svartir strákar.
Spurður um nafnið á plöt-
unni og hvort þetta hrein-
lega megi í dag, segir Logi
Pedro: „Það er nú stóra
spurningin. Allt má ef
rétta manneskjan kemur
því rétt frá sér. Þessi titill
var stríðni fyrst. Mér
fannst fyndið að snúa á
menningarvita. Þetta er
blanda af Litlum sætum
strákum sem Megas söng
um og 10 litlum negrast-
rákum,“ segir Logi en
bætir við að platan sé til-
einkuð syni sínum sem
hann eignaðist fyrir nokkr-
um mánuðum.
En hvernig var að verða
pabbi?
„Þetta var ótrúlegt ferli.
Eftir 14 vikna sónarinn fór
eitthvert „krukk“ í gang í
hausnum á mér. Við barns-
móðir mín erum ekki sam-
an og vorum ekki saman
þegar hún var ólétt og það mótar
allt ferlið líka. Þetta er búið að vera
ótrúlegt ferðalag, ég er eins ánægð-
ur og ég get verið með son minn.“
Logi Pedro segir að sér séu kyn-
þáttamálin hugleikin. „Við búum lík-
lega í hvítasta landi í heiminum. Það
er lítið af útlendingum og lítið af lit-
uðu fólki. En það er mjög gott að
vera hérna og lítið af rasisma. Það
er gott að búa á Íslandi.“
Spurður um hvort hann sé póli-
tískur segir hann svo vera og hefur
ungliðahreyfing Sjálfstæðisflokks-
ins, SUS, fengið aðeins að kenna á
því frá Loga. „Ég trúi á ákveðin
gildi og margir af SUS-urunum hafa
aðrar skoðanir. Ef þú elst upp í
Garðabænum færðu kannski aðra
lífssýn en þegar þú elst upp í Breið-
holtinu. Og það er ekkert að því, ég
er ekki að segja að eitt sé betra en
annað. En svo er ég kannski einhver
svona kampavínssósíalisti,“ segir
Logi og brosir.
Logi segist hafa verið stressaður
yfir nýju plötunni en þetta er í
fyrsta sinn sem hann gerir plötu
einn síns liðs. Gömlu félagarnir úr
101 Boys komu samt eitthvað að
vinnunni með honum. „Við vinnum
allir saman allan daginn, þetta er
teymi, ein stór fjölskylda,“ segir
Logi og bætir við að hann óttist
stöðugt að fólk muni ekki fíla það
sem hann er að gera. „Markmið
mitt í lífinu er að setja ekki öll eggin
í sömu körfuna og huga að fleiri
hlutum en að standa á sviði,“ segir
Logi sem hefur menntað sig í hljóð-
tækni og langar að fara meira út í
að semja tónlist fyrir sjónvarps- og
kvikmyndir.
Hægt er að hlusta á viðtalið við
Loga Pedro í heild á k100.is.
runarfreyr@k100.is
Það er gott að
búa á Íslandi
Tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Logi Pedro
gaf út plötu á dögunum en hún ber heitið Litlir
svartir strákar. Þetta er fyrsta sólóplata Loga en
hann hefur fram að þessu verið í hljómsveitinni
Retro Stefson og auk þess unnið með Sturlu Atlas
og 101 Boys. Logi spjallaði við þau Loga, Rikku og
Rúnar Frey í þættinum Ísland vaknar í gærmorgun.
Markmiðin „Það þarf að huga að fleiru en að
standa á sviði,“ segir Logi Pedro.
K100/Rikka