Morgunblaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 62
Andrea Eyland Sóleyjar- og Björg-
vinsdóttir fæddi sitt fjórða barn hinn
4. maí síðastliðinn; gullfallegan hár-
prúðan son sem vó 3.770 grömm og
var 52 cm. Hún á að auki þrjú stjúp-
börn með kærasta sínum Þorleifi
Kamban. Andrea og Þorleifur eyddu
obbanum af fæðingunni heimavið
ásamt dætrum sínum, foreldrum og
ljósmæðrum Bjarkarinnar. Undir
lokin var ákveðið að klára ferlið á
fæðingardeild Landspítalans því litli
drengurinn kom skakkur niður sem
tafði komu hans í heiminn. Andrea,
sem hér segir fæðingarsögu sína, er
höfundur Kviknar, bókar um getnað,
meðgöngu, fæðingu og sængurlegu,
sem hún lýsir sem tímalausu upp-
flettiriti, samblandi af fræðilegum
upplýsingum, reynslusögum og svör-
um við algengum spurningum. Nán-
ari upplýsingar á kviknar.is.
Heimafæðing skipulögð
Sonur okkar Þorleifs var hjart-
anlega velkominn í legi mínu og öll
meðgangan einkenndist af þakklæti,
jafnvægi og mikilli væntumþykju
gagnvart lífinu. Ég stundaði jóga hjá
yndislegu Auði síðustu þrjá mánuðina
og vegna þess fann ég fyrir enn meiri
ást gagnvart líkama mínum og
barninu sem ég var að skapa innan í
mér. Ég þurfti að komast yfir ákveð-
inn ótta sem laumaði sér stundum inn
í hugsanir mínar úr fortíðinni en með
því að sinna sjálfri mér á þennan hátt
og treysta ferlinu fann ég meira jafn-
vægi í tilverunni en nokkurn tíma áð-
ur.
Við vorum sammála um að eignast
ungann okkar heima, þekkjum ljós-
mæðurnar, treystum foreldrum okk-
ar meira en nokkrum öðrum og trúð-
um að börnin okkar myndu upplifa
eitthvað einstakt og stórkostlegt.
Ákvörðunin var hárrétt, þessi dagur
var það besta sem við höfum gengið í
gegnum sem fjölskylda, bönd okkar í
milli styrktust á ólýsanlegan hátt – ég
fann hjarta mitt stækka við hverja
hvatningu og faðmlag sem í gegnum
daginn urðu óteljandi. Það voru
ákveðin vonbrigði að klára ekki síð-
ustu 40 mínúturnar heima með þeim
öllum en allt fór nákvæmlega eins og
það átti að gera, klárum þetta bara
saman næst.
Aðfaranótt föstudagsins 4. maí
(komin 40 plús 5) var ég töluvert vak-
andi vegna óreglulegra verkja en þar
sem ég hafði upplifað slíka tvisvar áð-
ur þá vikuna var ég alveg slök með að
eitthvað væri að gerast. Þegar krakk-
arnir voru farnir í skóla náði ég að
leggja mig í smástund (gjöf sem allar
óléttar konur eiga að gefa sjálfum sér
sem oftast alla meðgönguna, sér-
staklega síðasta mánuðinn) en vakn-
aði síðan um tíu til að finna verkina
buna á mér með átta mínútna milli-
bili. Skrapp á salerni og mér til mik-
illar gleði var blóðlitað í pappírnum
(tók mynd og allt) en þessi dásamlegi
slímtappi hefur kíkt í klóið rétt fyrir
allar mínar fæðingar.
Ég hvatti Þorleif minn samt til að
fara í vinnuna, „kannski er þetta síð-
asti dagurinn í bili, ástin mín“ sagði
ég, full vantrúar á að nú væri sonur
okkar í raun byrjaður ferðalag sitt í
heiminn. Hann lét nú ekki plata sig
og dokaði við meðan hann fylgdist
með mér leggjast oftar og oftar með
andlitið í koddann til að komast í
gegnum síharðnandi hríðarnar. Um
hádegi vorum við farin að takast á við
hverja hríð saman. Hann kreisti sam-
an á mér mjaðmirnar aftan frá eins
og við lærðum á parakvöldinu hjá
Auði og þvílíkur léttir! Bilið á milli
var fljótt orðið fimm mínútur en samt
vildi ég ekki boða fjölskyldu né ljós-
mæður heim strax, ef allt skyldi nú
detta niður.
Ljósmæður fylla húsið af enn
meiri ást
Svo var nú aldeilis ekki. Sonur okk-
ar var tilbúinn og ákveðinn í að koma
í heiminn þennan dag. „Held það væri
fínt ef þið gætuð farið að kíkja á okk-
ur, hún er komin með svakalega
mikla verki“ sendi Þorleifur í skila-
boðum til ljósmæðranna kl. hálftvö og
óð svo beint í að blása upp laugina
(með rafmagnspumpu samt) og kalla
út mæður okkar beggja. Þær voru
ekki lengi á staðinn enda búnar að
bíða spenntar í startholunum dag eft-
ir dag. Inn komu þær og fylltu húsið
af enn meiri ást og tóku svo á móti
hverri stelpunni á fætur annarri úr
skóla, ljósmæðrunum tveimur, Aldísi
ljósmyndara og pabba mínum og
saman gerðu þau öll heimilið að einu
stóru fæðingarherbergi, spiluðu tón-
list, spjölluðu, borðuðu góðan mat,
færðu mér orkudrykki og nutu þess
að vera saman, að vera hjá mér, að
vera til.
Ljósmæðurnar athuguðu útvíkkun
við komuna og mér til mikillar ham-
ingju var hún orðin 5-6! Ég trúði því
loksins að fæðing væri hafin. Ég beið
Ljónynjan rymur
Andrea Eyland Sóleyjar-
og Björgvinsdóttir fæddi
sitt fjórða barn fyrir
tæpum þremur vikum
en hún eyddi obbanum
af fæðingunni heimavið
ásamt kærastanum sín-
um, dætrum, foreldrum
og ljósmæðrum Bjark-
arinnar. Andrea gaf Fjöl-
skyldunni leyfi til að
birta fæðingasögu sína
ásamt stórkostlegum
myndum ljósmyndarans
Aldísar Pálsdóttur.
Ljósmynd/Aldís Pálsdóttir
Þakklæti „Takk elsku litli unginn minn fyrir að koma í heiminn, við pabbi þinn og fjölskylda öll elskum þig. Takk alheimur.“
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018