Morgunblaðið - 24.05.2018, Qupperneq 80

Morgunblaðið - 24.05.2018, Qupperneq 80
80 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 2018 VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Ég tel þetta vera óvenjulegt sjónar- horn á heiðursmorð, að fá viðhorf morðingjans,“ segir norska blaða- konan Lene Wold, en bók hennar, Heiðra skal ég dætur mínar, kom ný- verið út í íslenskri þýðingu. Í bókinni greinir Wold frá rannsókn sinni á heiðursmorðum í Jórdaníu, en hún eyddi þremur árum í að rannsaka hvað lægi að baki slíkum morðum og kynnti sér mörg slík mál í þaula. Eitt þeirra stóð þó upp úr, þar sem Wold gat rætt ekki bara við gerandann, sem hún nefndi Rahman, heldur einnig aðra af tveimur dætrum hans, sem hann hafði reynt að myrða heið- ursins vegna. Þannig fékk hún sýn á báðar hliðar málsins, jafnframt því sem hún kynntist ýmsum hliðum jórdansks samfélags, góðum sem slæmum. Heilluð af arabískri menningu Wold segir að reynsla sín af Jórd- aníu sé almennt séð sú að það sé mjög opið og vinsamlegt land gagn- vart ferðamönnum. „Ég er heilluð af arabískri menningu, sér í lagi gest- risninni. Fólkið þar er mjög vin- gjarnlegt og sér vel um þig sem gest,“ segir Wold og bætir við að hún eigi marga vini þar eftir dvöl sína í landinu. „En svo er auðvitað frekar myrk hlið samfélagsins sem ég greini frá. En samfélagið hefur einnig marga góða kosti, eins og öll önnur lönd.“ -En það er kannski ekki mikið fjallað um hinar jákvæðu hliðar Mið- Austurlanda þessi misserin? „Nei, við hneigjumst til þess að skrifa frekar um neikvæðu hliðarnar, og þess vegna er ég einnig að reyna að sýna víðari mynd af samfélaginu í bókinni minni.“ Ein leiðin sem Wold fer til þess er að lýsa æsku Amínu, en svo nefndi Wold dótturina sem lifði af banatilræði föður síns, og uppvexti hennar í Amman, höfuðborg Jórd- aníu. Í þeirri lýsingu kemur glöggt fram hversu mikil ást ríkti í fjöl- skyldu hennar og hversu sterk fjöl- skylduböndin voru áður en hinir skelfilegu atburðir gerðust. Forvitnileg staða hinseginfólks Það sem helst rak Rahman til þess að myrða dætur sínar var sú stað- reynd að Aisha, eldri dóttir hans, var samkynhneigð, en staða hinsegin- fólks í Mið-Austurlöndum er almennt séð frekar lök. Wold segir það vera eitt af því sem geri Jórdaníu svo áhugaverða. „Sumir segja að landið sé mjög vinsamlegt gagnvart hin- seginfólki, og sama gildir um Líb- anon. Það eru til dæmis engin lög í Jórdaníu sem fordæma samkyn- hneigð, hún er ekki ólögleg þar, en engu að síður er viðhorfið þannig að það er talið mjög smánarlegt og van- virðing við fjölskyldu sína ef maður velur að lifa samkynhneigðu lífi,“ segir Wold. Hún nefnir sem dæmi að sumt af fólkinu sem hún hafi kynnst í Jórd- aníu sé samkynhneigt, en að það muni gifta sig og lifa gagnkyn- hneigðu lífi út á við en allt öðru lífi inn á við, þar sem kröfur samfélags- ins neyði það til þess að vera í skápn- um. „Þetta fólk er að reyna að gera bæði foreldrum sínum til hæfis og sínum eigin þörfum. Ég sá til dæmis eitt par, þar sem bæði voru samkyn- hneigð. Þau búa saman sem hjón og eiga börn saman til þess að geðjast fjölskyldum sínum, en eiga bæði í samböndum við einstaklinga af eigin kyni. Þetta hafa þau samið um á milli sín og þegar ég spurði þau hvort þau væri ekki að lifa í lygi sögðu þau að það myndi vera ótrúlega eigingjarnt af þeim að lifa opinberlega sem sam- kynhneigð í jórdönsku samfélagi.“ Samfélagið framar öllu Segja má að þessi áhersla á sam- félagið, fjölskylduna og heiður séu meginþemu bókarinnar, en Wold segir fjölskylduheiðurinn skipta meginmáli í arabísku samfélagi. „Á Vesturlöndum er svo mikil áhersla á að við uppfyllum eigin þarfir og að við verðum það sem við viljum vera, en í arabaheiminum er það talið mikilvægara að sjá um fjölskylduna og vera góður og gegn samfélags- þegn.“ Þá kemur skýrt fram í bókinni sú skoðun Wold að fyrirbærið heiðurs- morð sé ekki tengt íslam sem trú, heldur sé það frekar afurð samfélags sem leggi svo mikla áherslu á heiður fjölskyldunnar. „Heiðursmorð snú- ast mun meira um hefðir og venjur en trúarbrögð og það sést á því að heiðursmorð fyrirfinnast einnig í samfélögum kristinna manna og hindúa.“ Wold segir þetta einn mikil- vægasta punkt bókarinnar. „Áður fyrr, þegar samfélagið hafði ekki rík- ið eða lögregluna til að verja sig, var nauðsynlegt að stjórna fjölskyldunni og verja hana. Þær hefðir eru enn svo áberandi í jórdönsku samfélagi því það byggir svo mjög á valdi fjölskylduföðurins.“ – En að hvaða marki hefur íslam þá mótað þessi samfélög? „Auðvitað hefur trú mikil áhrif á þær hefðir sem skapast innan sam- félagsins, því þau gildi sem láta þess- ar fjölskyldur myrða ættingja koma frá trúarbrögðunum, en á sama tíma er ekkert í íslam sem skipar þér að myrða dætur þínar eða systur, ekki með þeim hætti eins og gert er í dag,“ segir Wold. Hún bendir á máli sínu til stuðnings að vissulega sé í Kóraninum fjallað um kynlíf fyrir hjónaband og framhjáhald sem óæskilegt. „En fólk er jafnvel myrt í Jórdaníu í dag vegna orðróms. Það sem sagt er vanvirða heiður fólks gæti jafnvel verið eitthvað svo sak- leysislegt, svo sem að ganga um með andlitsfarða, og þar koma hefðirnar inn sem tæki samfélagsins til þess að stjórna ungum konum og stúlkum.“ Þróunin er í rétta átt Spurð hvernig megi takast á við heiðursmorð og breyta þessum hefð- um og venjum segir Wold að ým- islegt hafi þegar breyst. „Síðan ég skrifaði bók mína og hún kom á prent hafa jórdönsk stjórnvöld verið beitt miklum alþjóðlegum þrýstingi. Árið 2016 fjölgaði heið- ursmorðum gríðarlega, um 20 slík morð voru framin á hverju ári en þetta ár stökk talan upp í 38, sem varð til þess að blaðamenn víðs vegar um veröldina fjölluðu um þessi mál.“ Eitt af því sem hafi þá komist í há- mæli hafi verið sú staðreynd að í Jórdaníu væru margar ungar konur í fangelsi, að sögn til þess að verja þær fyrir ofbeldi ættingja sinna. „Ég hef nú fjallað um þessi mál í fimm ár og lögreglan hefur alltaf sagt við mig að í bígerð sé að opna neyðarskýli fyrir þessar konur svo þær þurfi ekki að vera í fangelsi, en þegar ég bað um að fá að sjá skýlin var viðkvæðið allt- af að það þyrfti að bíða lengur,“ segir Wold. Þeirri bið er nú lokið, því að slíkt skýli var opnað í nú apríl. Þá hafi grasrótarsamtök í Jórd- aníu þrýst á um að breyta lögunum um heiðursmorð, þar sem gerend- urnir í þessum málum gátu áður fyrr fengið mun vægari dóma en aðrir morðingjar, kannski þrjá til sex mán- uði, en aðrir fengu kannski 20 til 30 ára dóm. Wold segir að nýlega hafi verið dæmt í tveimur málum í Jórd- aníu, þar sem heiðursmorðingjar hafi einmitt fengið langan fangelsisdóm. „Þetta breytir stöðunni því að þegar þessir menn myrða reikna þeir með því að þeir geti afplánað nokkurra mánaða dóm, en ef þeir þurfa að vera í nokkra áratugi í fangelsi er útlitið allt í einu orðið dekkra.“ Wold segir að ein ástæðan fyrir því sé einfaldlega sú að þeir sem stundi heiðursmorð líti á sig sem nokkurs konar „forráðamenn“ og fyrirvinnur fjölskyldunnar. „Ef þeir myrða ein- hvern og þurfa að fara í fangelsi í 20- 30 ár munu eiginkonur þeirra og börn svelta, þar sem þau hafa enga peninga,“ segir Wold, en slíkt sé í raun jafnvel enn meiri skömm fyrir þá. Jákvæð teikn eru því á lofti um að samfélagið geti breyst og tekið á málum þannig að heiðursmorð muni á endanum heyra sögunni til. Fékk að heyra báðar hliðar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Heiðursmorð Norska blaðakonan Lene Wold kynnti sér í þaula heiðursmorð og þær ástæður sem liggja að baki þeim.  Norska blaðakonan Lene Wold rannsakaði heiðursmorð í Jórdaníu í þrjú ár  Segir heiðursmorð vera afurð hefða og venja frekar en trúarbragða  Bók hennar er nýkomin út í íslenskri þýðingu Laugavegur 61 I Kringlan I Smáralind I sími 552 4910 I www.jonogoskar.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.