Skírnir - 01.09.2006, Page 187
hluta tilfinningalegar og myndu varða hugmyndir fólks um vel-
sæmi. Almennt mætti þó segja að augljósustu ástæðurnar fyrir því
að hafna þessari leið til að bæta efnahag landsins væru siðferðileg-
ar. Það er sama um hvað menn gætu samið og hvernig hægt væri
að breyta lögum til að láta slíka samninga ganga upp. Þrælasala er
siðferðilega óréttlætanleg hvernig sem á það er litið. Þó að dæmið
sé fráleitt er þess virði að hugsa um það til að fá skýrari sýn á þau
rök sem mest ber á í málflutningi umhverfisverndarsinna. Þau eru
siðferðileg í svipuðum skilningi og hin augljósu rök fyrir því að
við getum ekki selt einstaklinga í þrældóm. Eins geta varanleg
spjöll á náttúru eða lífríki verið fórn sem rangt er að færa, sama
hvaða gróða menn eiga í vændum.
Gagnrýni á hina tæknilegu orðræðu, sem leggur áherslu á
djúpt siðleysi hennar, er um leið tilraun til afhjúpunar. Á meðan
tæknileg orðræða hefur sinn gang, rétt eins og hún sé eina leiðin
til að taka á þeim spurningum sem vakna um ákvarðanir stjórn-
valda, er siðferðilegt réttmæti hennar einfaldlega ekki dregið í efa.
Það er ekki embættismaðurinn sem kemst að þeirri niðurstöðu við
arðsemismat á kynbótastarfi og þrælasölu að hún sé siðlaus, held-
ur er það sá sem á horfir. Það skiptir í sjálfu sér ekki máli með
hvaða hætti siðleysið er afhjúpað — með rökræðum, mótmælum,
hópaðgerðum af einhverju tagi, jafnvel spellvirkjum — það er
sama siðleysið hvernig sem á er litið. Mótmæli í einhverri mynd
fara yfirleitt út fyrir ramma hins lögmæta eða eðlilega og réttlæt-
ingin á því er að orðræðan sjálf rúmi ekki leiðir mótmælandans til
að hafa áhrif. Mótmæli eru birtingarmynd raka sem finna sér ekki
stað innan hinnar leyfðu umræðu, eða er markvisst ýtt út úr henni.
Það mætti orða þetta öðruvísi og halda því fram að tæknileg orð-
ræða sé alltaf líkleg til að geta af sér andstæðu sína. Þegar tækni-
legri orðræðu er mótmælt er það ekki gert í því skyni að leiðrétta
smávægileg atriði heldur eru mótmælin árás á sjálfan hugsunarhátt
hins tæknilega og öll mótmæli, jafnvel í hófstilltustu mynd sinni,
snúast um að sýna grundvallarmun á mótmælendunum og and-
stæðingum þeirra.
Þeir sem skipulögðu gönguferðir á Kringilsárrana síðastliðið
sumar lögðu til dæmis áherslu á lífsstíl og heildstæða sýn á náttúr-
siðfræði andstöðunnar 433skírnir
Skírnir haust nota-1 13.11.2006 15:56 Page 433