Skírnir - 01.09.2006, Page 196
Þannig verður til bræðingshugmynd um efnahagslegan veru-
leika samfélagsins sem krefst annarsvegar sérhæfingar og hinsveg-
ar þess að sérhæfingin sé bundin við að framleiða efnislegar
(áþreifanlegar eða ætar) afurðir. Leigubílstjórinn sem Andri Snær
segir frá í byrjun bókarinnar er hinn dæmigerði fulltrúi þessara
viðhorfa, en þau er að finna miklu víðar. Þeim fylgir andúð á hug-
myndum og lítilsvirðing á huglægum verðmætum á borð við
menntun, listir og jafnvel vísindi. Öll menningarleg gildi eru talin
afleidd af áþreifanlegum eða ætum verðmætum. Sú þröngsýni sem
þessu fylgir er líklega meginástæða þess algenga viðhorfs stjórn-
málamanna sem Andri Snær dregur hressilega fram í bókinni, að
engir aðrir möguleikar séu í stöðunni, þegar horft er til framtíðar
íslensks efnahags, en að einbeita sér að því sem svo augljóslega er
hægt að framleiða úr landsins gæðum: orku og aftur orku.
Til þess að geta nýtt sér það frelsi sem frjáls markaður getur
veitt, er nauðsynlegt að geta beitt ímyndunaraflinu — nauðsynlegt
að skilja mátt hugmyndanna. Mótmæli Andra Snæs gegn virkjana-
framkvæmdum á hálendinu og gegn byggingu álvera og annarra
stóriðjuvera eru á vissan hátt mótmæli mótmælanna vegna. Spurn-
ingin er ekki fórn eða fórnarkostnaður heldur er meginspurning-
in annarsvegar um valkosti, hinsvegar um varanleg verðmæti. Til-
gangur bókarinnar er að hvetja lesandann til að hugsa þessi mál í
því samhengi sem þau eiga skilið, en ekki eins og Óskar Valtýsson
heldur fram í grein sinni í Lesbók Morgunblaðsins, „að hræða og
mana almenning til fylgilags við tilteknar skoðanir, … svolítið
þröngsýnar og öfgakenndar [með bölmóði um hnignun náttúru
og samfélags]“.14
Ævintýrið mikla
Í lítilli bók, Æfintýrinu um áætlunina miklu, sem kom út í Sovét-
ríkjunum árið 1930 og setti hugsunarhátt og lífsorku sovésku iðn-
væðingarinnar í ferskt og næstum heillandi samhengi er komist
svona að orði á einum stað:
jón ólafsson442 skírnir
14 Óskar Valtýsson, „Máttur matraða“, Lesbók Morgunblaðsins, 22. júlí 2006.
Skírnir haust nota-1 13.11.2006 15:56 Page 442