Skírnir - 01.09.2006, Page 259
Vélarsýn og Þráhyggja
um sporbauginn
Steina Vasulka
Steina Vasulka er án efa þekktasti myndbandslistamaður Ís-
lendinga. Ásamt eiginmanni sínum, Tékkanum Woody Bohuslav
Vasulka, var hún meðal helstu frumkvöðla þessarar hálfrar aldar
gömlu listgreinar og hefur æ síðan haft mikil áhrif á alþjóðlega
þróun hennar. Haustið 1975 tók hún til við að setja saman mynd-
bandsverk í fimm hlutum sem hún nefndi Machine Vision, eða
Vélarsýn. Hlutarnir voru fimm sjálfstæð verk, From Cheektowaga
to Tonawanda, frá júní 1975, Signifying Nothing, sömuleiðis frá
júní 1975, Sound and Fury, frá október sama ár, Switch! Monitor!
Drift!, frá nóvember 1976 og Snowed Tapes, frá febrúar 1977. Í
tengslum við þennan samsetning kom Steina fyrir mismunandi
vélbúnaði með kjarna, sem hún kallaði Allvision eða Alsýn. Það
var spegilfægður málmhnöttur, sem tyllt var á miðja stöng sem
snerist lárétt líkt og hreyfill. Á hvorn enda stangarinnar var kom-
ið fyrir upptökuvélum, sem fylgdust stöðugt með kúlulaga skugg-
sjánni og miðluðu upplýsingunum til baka á tveim skjám. Við
gerð sjónglerja í vélbúnaðinn naut Steina aðstoðar Josefs Krames,
þekkts tékknesks sjónglerjafræðings sem verið hafði rektor Tækni-
háskólans í Vínarborg. Vélbúnaðinn fékk Steina mestmegnis úr
fórum eiginmanns síns og samstarfsmanns, vélaverkfræðingsins
og kvikmyndagerðarmannsins Woodys Vasulka.
Hugmyndir um alsjáandi auga, sem tæki fram ófullkominni
skynjun mannsins voru engin nýlunda. Þær voru samofnar hug-
myndum listamanna um ofurskynjun sem tæki fram venjulegri
skynjun og væri forsenda framþróunar allra sjónlista. Án þess að
sjá betur og lengra en gengur og gerist var borin von að menn
gætu orðið leiðandi á því sviði. Eflaust hefur Steina skilið slíkar
kröfur betur en margur sökum uppruna síns sem fiðluleikara. Í
Skírnir, 180. ár (haust 2006)
MYNDLISTARMAÐUR SKÍRNIS
Skírnir haust nota-1 13.11.2006 15:56 Page 505