Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1946, Side 37

Breiðfirðingur - 01.04.1946, Side 37
breiðfirðingur 27 horf æskueðlisins: Hið ókunna, ókomna, hillingarnar hið ytra, vaxtarólgan, næmleikinn, lieiðríkjan hið innra. Þá eru æskustöðvarnar sjálfar, þar sem þetta viðhorf myndaðist, einkum náttúran, svipur hennar og seiður i hlíðu og stríðu. í þriðja lagi mannheimur og öll þau tengsl við hann, sem þá mynduðust og mörg endast til æfiloka. Hið fyrsta viðhorf er mikilvægara og endist lengur en flesta grunar. Það mun vera mjög almenn regla, að maður ekki segi algild, að þá er manni finnst lífið af einhverjum ástæðum verða dapurlegt eða ógnandi, þá leitar hugurinn til haka á lífsleiðinni, á þær stöðvar þar sem bjartara var umhorfs, reynir að einhverju leyti að lifa sig inn í hlæ liðinna liamingjusamari stunda. Það þarf ekki að vera að menn leiti að ákveðnum minn- ingum; aðalatriðið er að þeir leita að sérstakri út- sýnisbirtu í liugarheimi sínum, til þess að reyna að fá hjarma hennar á nútíðina. Þetta innra hátterni er svo ósjálfrátt og óafvitandi hjá flestum, að þeir kunna að vera reiðubúnir að af- neita því. Margir munu þó fljótt átta sig á því, er þeir beina athyglinni að innra lifi sínu. Má vafalaust skoða það sem eitt af hentugum og heilbrigðum andsvörum manneðlisins. Hugurinn er þá eins og herforingi, sem híður ósigur á fremstu víglínu og dregur sig um stund til baka á öruggari stöðvar, unz hann liefur fengið lið- styrk til nýrrar framsóknar. (Aðeins í bernskunni og æskunni sjálfri er þetta viðbragð varliugavert, enda varla til komið þar nema fyrir einhver áföll eða of mikla hörku lífsins. Þar er að baki umkomuleysi og ósjálfstæði frumbernskunnar, og svo langt má ekki flýja frá veruleikanum, ef ekki á að vera hætta á fulln- aðarósigri). Aftur í hugarheim barnsins og unglingsins sækja menn í sig veðrið seinna í lífinu, ekki sízt þegar í harð- bakka slær. Það veltur því mikið á bernsku- og upp-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Breiðfirðingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.