Breiðfirðingur - 01.04.1998, Page 30
28
BREIÐFIRÐINGUR
Eiríksstaðanefnd hélt veislu á uppgraftarsvæðinu með öll-
um úr sveitinni. þar sem vel var veitt og fluttar snjallar ræður.
Kristmundur Jóhannesson á Giljalandi fjallaði um Eiríks sögu
rauða, Guðmundur Ólafsson um rannsóknina, séra Óskar Ingi
Ingason kynnti nefndina og starfsemi hennar auk þess sem
útlenskur fomleifafræðingur, sem nefnir sig Eirík rauða, og
kona hans Bóthildur, settu skemmtilegan svip á samkvæmið.
Þau klæddust sem fornmenn og sýndu víkingaaldar hannyrðir
og hvernig eldur var gerður með því að slá eldstáli við tinnu.
Jaspís kemur þar að sama haldi, en jaspísmolar voru einu
munimir sem fundust í skálanum. Allt bendir til að þeir hafi
verið sóttir í gil ofan við bæinn Hamra í öndverðum dalnum.
Engin furða er, þótt ekki fyndust gripir á Eiríksstöðum, eins
oft og þar hefur verið grafið. Athygli vekur hins vegar, að þess
er heldur ekki getið að neinir munir hafi fundist við hinar fyrri
rannsóknir. Þess er ef til vill ekki að vænta í húsarústum frá
10. og 11. öld að þau geymi marga gripi, en æði fátæklegt
verður að teljast að moldin skili ekki svo sem einu brýni eða
kljásteini. Slíkir smámunir vilja þó tapast ef grafið er rösk-
lega. Á þeim tíma sem Þorsteinn Erlingsson rannsakaði Ei-
ríksstaði þótti ástæðulaust að rýna eftir smælki og eyða mikl-
um tíma í uppgröftinn. Þá var það mokað með skóflu, sem nú
er skafið með múrskeið. Ýmislegt smálegt kann því að hafa
legið í gólfskáninni, en lent í uppmokstri utan við veggi.
Reyndar þarf alls ekki að vera að margt hafi týnst. Gripa-
fæðin kann blátt áfram að benda til þess að einungis hafi verið
búið skamma hríð á þessum bæ og hann verið í eyði síðan.
Þótti nú einboðið að ráðast í fornleifagröft á öllum skálan-
um.
Eiríksstaðanefnd hóf framkvæmdir í því augnamiði að bæta
aðgang að rústunum og snemmsumars 1998 var gert bílaplan
við veginn þar fyrir neðan.
Heildarrannsókn fornleifadeildar Þjóðminjasafnsins hófst
10. ágúst það ár og nú með allmörgum starfsmönnum, bæði
íslenskum og erlendum. Flett var ofan af allri rústinni og
hulunni svipt af leyndardómum skriðunnar dularfullu. I ljós