Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Síða 9
18. maí 2018 fréttir 9
Hundarnir eins og börn
Í ákærunni frá 10. apríl síðastliðn-
um kemur fram að þann 6. mars
2016 hafi hann hótað starfsmönn-
um Dýralæknamiðstöðvarinnar.
Ingvar hefur átt nokkra hunda og
elskar þá eins og börnin sín:
„Það bendir allt til þess að
dýraspítalinn í Grafarholti hafi
sýnt vanrækslu í starfi þegar
Gloria mín fór í allsherjar skoðun
þar fyrir þremur vikum og ef svo er
sem ég mun komast í fyrramálið,
munið þið ekki sjá mig á faceinu
næstu daga. Ég ætla að stúta þess-
um læknabeljum [með] kreppt-
um hnúum og þungum höggum
og senda 5 sprautusjúklinga til að
kveikja í þessari dýraníðsholu til
að bjarga hinum dýrunum. ÉG ER
SVO BRJÁLAÐUR NÚNA AÐ SÉ
JAILTIME FRAMUNDAN, DREP
ÞETTA HELVÍTIS PAKK OG ÞAÐ Í
FYRRAMÁLIÐ.“
„Ég er brjálaður“
Eftir hvatningarorð frá vini kvaðst
Ingvar brotinn á sál og líkama.
Greindi hann jafnframt frá því að
hann hefði skrifað niður nöfnin á
öllum dýralæknum í Grafarholti og
væri að undirbúa hefndaraðgerðir.
„Fylgstu með
vísir.is og mbl
á morgun […]
Ég er að fara
að kýla þess-
ar kellingarherfur og dýraníðinga
í klessu og þetta er loforð, ég er
brjálaður“
Ástæðuna fyrir þessu uppþoti
Ingvars útskýrði hann á þá leið að
hann hefði farið með smáhund-
inn Gloriu í allsherjarskoðun og
óskað sérstaklega eftir að hjarta
dýrsins yrði rannsakað gaumgæfi-
lega. Hafði hann miklar áhyggjur
af heilsu hundsins.
„Það var byrjað að gefa sig
meira dag frá degi og þessir níð-
ingar hefðu getað sett hana á
hjartalyf og þá væri hún í góðu lagi
í dag en þeir fokkuðu þessu upp
og í staðinn ætla ég að kýla dýra-
lækningahóruna sem sinnti henni
sundur og saman og síðan ætla ég
að senda 5 djönkara sem ég þekki
til að brenna þetta skítaplace til
að bjarga greyið dýrunum sem
eru send á þetta fokkings helvítis
skítaplace.“ Þá sagði Ingvar:
„Það fær einhver að brenna illa
fyrir kvalirnar á dóttur minni á
morgun, það er á hreinu.“
Við það að tapa glórunni af sorg
Ljóst er að veikindi Gloriu hafi
fengið mikið á Ingvar sem opnaði
sig um að hann hefði rústað öllu á
heimilinu og væri búinn að tapa
vitinu. Hann væri sár og í grimmi-
legum hefndarhug. Hann ætti eft-
ir að taka ákvarðanir sem myndu
koma honum í klandur og sagði:
„ … but fuck it þetta er litla
barnið mitt sem ég elska út af líf-
inu og ef einhver læknir fokkar
dóttur minni upp, þá kála ég hon-
um á morgun.“
Ingvar bætti svo við að hann
hefði farið upp í Grafarholt með
boxhanska því þá myndi sjást minna
á dýraníðingunum eins og hann
uppnefndi dýralæknana. Ingvar var
ósofinn, illur í skapi og hafði að eig-
in sögn neytt mikils magns af kóka-
íni. Kvaðst hann gjörsamlega vera
að tapa glórunni af sorg.
„Gloria mín er að deyja og það
þýðir refsing og grimmileg hefnd.
Það þýðir ekkert að stoppa mig.“
Ingvar fór síðan með Gloriu á
annan spítala þar sem hann var
afar ósáttur með þjónustuna.
Sterar og byssur
Ingvar er einnig eins og áður seg-
ir ákærður fyrir fleiri brot. Þann 3.
mars var hann stöðvar í
Leifsstöð með sjö ampúl-
ur af lyfseðilsskylda lyfinu
HCG-M 5000. Ingvar er
ákærður fyrir að hafa flutt
vopn til landsins en það
var 22. ágúst í fyrra.
Vopnin voru skamm-
byssa af gerðinni Zorak
Mod 918, eitt stykki riffill
og magasín fyrir riffil, eitt
stykki piparúði – 80 ml,
eitt stykki piparúði – 50 ml
af sömu gerð og sjö pakkar
af skotfærum, samtals 350
stykki.
Héraðsdómur krefst þess
að Ingvar verði dæmdur
til refsingar og greiði allan
sakarkostnað, að framan-
greind vopn og lyf verði einnig
gerð upptæk.
Handteknir á margra
milljón króna glæsikerru
DV óskaði eftir upplýsingum um
handtökuna í Hafnarfirði þar sem
Ingvar var stöðvaður ásamt félaga
sínum á hinum glæsilega sport-
bíl sem kostar um átta milljónir
króna nýr.
Lögregla verst allra fregna af
málinu en þó fengust þær upp-
lýsingar að lögregla hafi veitt
mönnunum eftirför frá Kópa-
vogi þar til þeir voru handteknir í
Hafnarfirði.
Miðlæg rannsóknardeild er
skráð fyrir málinu og því ljóst að
rannsóknin snýr að alvarlegu af-
broti. Margeir Sveinsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn neitaði
alfarið að tjá sig um málið. n
„Ég er að
fara að
kýla þessar
kellingarherfur
og dýraníðinga í
klessu og þetta
er loforð, ég er
brjálaður.
Gloría „Elsku fallega gloria mín er svo veik er svo erfitt að geta ekkert gert fyrir litlu stelpuna mina,“ skrifar Ingvar á Instagram.
Tveir voru í bílnum og
var félaga Ingvars líka
skellt í járn.