Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Qupperneq 14
14 18. maí 2018fréttir V ið Ásvallagötu 8 í mið- bæ Reykjavíkur stendur hvítt, tæplega þrjú hund- ruð fermetra einbýlishús. Húsið var reist árið 1926. Það lif- ir í hjörtum margra kvikmyndaá- hugamanna og vakti mikinn óhug hjá stórum hluta landsmanna á níunda áratugnum, em segja má að það hafi verið skærasta stjarn- an í kvikmyndinni Húsið – Trún- aðarmál sem leikstýrt var af Agli Eðvarðssyni. Kvikmyndin var gefin út árið 1983 og er fyrst íslenskra hrollvekja í flokki svonefndra „geiramynda“. Hrollur myndarinnar byggist á dulmögnuðu andrúmslofti, flökt- andi skuggum og undarlegum draumum. Sagan segir frá Pétri og Björgu, ungu pari sem flytur inn í gamalt hús í Reykjavík. Fljótlega fara undarlegir hlutir að gerast. „Við vildum gera borgar- mynd,“ segir Egill í samtali við DV. „Á þessum tíma var ekki búið að gera margar ís- lenskar kvikmyndir en allar áttu það sameiginlegt að vera tekn- ar upp utandyra og sáust yfirleitt hestar í þeim öllum. Við vildum sýna að það þyrfti ekki að fara út á „location“ til þess að gera kvik- mynd hér á landi. Við settum okk- ur þá reglu að það væri bannað að vera með landslög eða hesta á tökustað.“ Þau Lilja Þórisdóttir og Jóhann Sigurðsson fóru með aðalhlutverk- in en þau voru bæði nýgræðingar í leiklist þegar tökur fóru fram. Jó- hann og Lilja leika Pétur og Björgu. Hann er tónlistarmaður og hún kennari í skóla fyrir heyrnarlausa. Skömmu eftir að parið flytur inn verður Björg vör við drungalegar raddir í fyrstu og síðan stigmagn- ast óhugnaðurinn. „Öll myndin var í rauninni áskorun fyrir alla aðstandendur myndarinnar. Við vildum kanna hvort við gætum gefið út framb- ærilega mynd þar sem myndavél- in væri sögumaðurinn,“ segir Egill og bætir við að einn af sínum upp- áhaldsþáttum við gerð myndar- innar hafi verið kvikmyndatakan og er hann stoltur af henni enn í dag. Fyrst sinnar tegundar Egill skrifaði handritið með Birni Björnssyni og Snorra Þórissyni, en hver þeirra gegndi fleiru en einu hlutverki í framleiðslunni. Björn var hönnuður leikmynd- ar og sá Snorri um stjórn kvik- myndatöku ásamt klippingu með Agli. Stór hluti myndarinnar var tekinn í Reykjavík. Auk þess fóru tökur fram í Keflavík, á Húsavík og í Vínarborg. Mikil vinna var lögð í undirbúning myndarinnar, þar sem meðal annars var byggð gríðarstór leikmynd en sá hluti var allur tekinn í stúdíói. Egill tekur fram að Húsið hafi verið fyrsta ís- lenska kvikmyndin sem tekin var upp í stúdíói. Segja má að Húsið sé fyrsta mynd sinnar tegundar á ýmsum sviðum, eins og með því að vera fyrsta og eina kvikmyndin frá Ís- landi þar sem persónur tala með íslensku táknmáli. Enn fremur er þetta fyrsta íslenska kvikmyndin sem notaðist við áhættuleikara í tökum og sú fyrsta til þess að vera hljóðunnin í Dolby-Stereo. Miklar væntingar og týndu eintökin Hrollvekja Egils og félaga kostaði fjórar milljónir króna á sínum tíma og þurfti um 60 þúsund áhorf- endur til að framleiðslan myndi standa undir kostnaði. Það þýddi að fjórði hver Íslendingur myndi kaupa sér miða á myndina. Aðstandendur urðu rólegir við fyrstu sýningarhelgi Hússins en þá voru strax yfir tíu þúsund manns sem sáu hana og var reglulega fullt út að dyrum í þeim kvikmynda- húsum sem sýndu hana. Myndin sló í gegn og þegar talið var upp úr kössunum kom í ljós að 80 þúsund höfðu keypt sér miða. Egill bendir á að sjaldgæft sé í dag að hryllingsmyndir nái slíkum vinsældum. „Það var yfirleitt fullt hús um helgar og oft þúsund mið- ar seldir fram í tímann,“ segir hann og minnist þeirra tíma þegar hann kíkti í kvikmyndahús borgarinn- ar um helgar til þess að sjá hvern- ig salurinn upplifði myndina. „Í flestum tilfellum hló fólk á réttum stöðum, því var brugðið, öskraði og svo kom kannski dauðaþögn.“ Hafa sögur gengið að börn á níunda áratugnum hafi sérstak- lega fundið fyrir öflugum áhrifum af húsinu draugalega og átt erfitt með svefn. Þess má geta að í dag er Húsið – Trúnaðarmál hvergi fáanleg í stafrænum eintökum, sem sumir kvikmyndaspekúlant- ar segja að sé draugagangi líkast að myndin hafi nánast gufað upp. Leikstjórinn tekur undir það. Tæknibilanir og draugagangur „Við létum reyndar gera þessa mynd upp og hún var endurunnin í stafrænu formi,“ tekur Egill fram spurður um hvort hafi einhvern tí- mann komið upp að gefa myndina út á ný, en því getur Egill ekki svar- að. „Það er reyndar gaman að segja frá því að við fengum sýningu fyr- ir starfsfólk og leikara myndarinn- ar í Álfabakka. Þá var allt önnur mynd sem við sáum heldur en sú sem við gerðum, okkur til mikill- ar gleði,“ bætir hann við. „Hún er mikið barn síns tíma, þessi mynd, og það eru nokkrir hlutir tengd- ir henni sem mér þykir mjög vænt um.“ Egill hefur staðfest að efni myndarinnar byggist ekki að- eins á dularfullum atvikum, held- ur kom ýmislegt dularfullt upp þegar myndin var í vinnslu. Við samsetningu myndar var einn kafli sem kom ekki fram á sýn- ingu. Sú sena var vitnun í mið- ilsfund en við rennsli filmunnar stöðvuðust tækin og mynd datt út en hljóðið hélt áfram. Það sama varð upp á teningnum í myndinni þegar einnig var fjallað um trúar- leg atriði. Flúðu eftir nokkra mánuði „Þarna var mjög laglegt hús sem við gerðum ljótt,“ segir Egill um húsið á Ásvallagötunni. „Eigend- urnir leyfðu okkur að mála tvær hliðar upp á nýtt. Það stóð þarna hvítt og fínt en við vildum hafa það grátt og ljótt.“ Jóhann Páll Valdimarsson, sem stýrði Forlaginu og JPV í fjölda ára, er fyrrverandi eigandi hússins. Hann lánaði Agli það í tökur. Jóhann Páll bjó þar ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Sig- fúsdóttur. Í samtali við DV seg- ir Jóhann Páll: „Konan mín hefur alltaf talað um að það væru vond- ir andar í húsinu en ég reyni að leiða drauga hjá mér,“ segir hann. Jóhann og Guðrún lánuðu hópn- um heimilið á meðan þau fóru í frí til Bandaríkjanna. Þau hjón bjuggu á Ásvallagöt- unni í tæp fimm ár og segir Jó- hann Páll að Egill og félagar hafi hrifist svo mikið af húsinu á sín- um tíma að annað kæmi ekki til greina en að nota það fyrir kvik- myndina, en sögusagnir um draugagang hefðu ekki sakað upp á andrúmsloftið að gera. Nú er Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, búsettur í hinu meinta draugahúsi með fjöl- skyldu sinni og hefur gert í 14 ár. Bendir það til þess að friður hafi ríkt í húsinu og að draugagangur- inn hafi mögulega yfirgefið húsið með stafrænu öldinni. n Undarlegir atburðir í drauga- húsinu við Ásvallagötuna n Undarlegir atburðir á tökustað n Börnin skelfingu lostin n Draugalegasta kvikmynd Íslandssögunnar„Konan mín hef- ur alltaf talað um að það væru vondir and- ar í húsinu en ég reyni að leiða drauga hjá mér. Tómas Valgeirsson tomas@dv.is Eitt mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir faratækja ALLIR ÚT AÐ HJÓLA MEÐ TUDOR Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta Bíldshöfða 12 577 1515 / skorri.is TUDOR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.