Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 31
Sumarnámskeið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ
Reiðskóli ReykjavíkuR:
Reiðnámskeið lykillinn að ógleymanlegu sumri
Reiðskóli Reykjavíkur hefur verið starfandi frá árinu 2001. eigendur skólans eru hjónin
edda Rún Ragnarsdóttir og sigurður
vignir Matthíasson. Þau hafa stund-
að hestamennsku frá blautu barns-
beini, fyrst sem áhugamál og síðan
sem aðalatvinnu.
samhliða starfsemi Reiðskóla
Reykjavíkur reka hjónin hestamið-
stöðina Ganghestar, þar sem þau
bjóða upp á þjónustu við hestafólk,
t.d. kaup og sölu á hrossum, reið-
kennslu, frumtamningar og þjálfun á
kynbóta- og keppnishrossum.
edda Rún og sigurður halda fjöl-
mörg reiðnámskeið um allan heim og
fara reglulega til Noregs, Hollands,
svíþjóðar, Belgíu og Þýskalands.
Reiðskóli Reykjavíkur er með aðset-
ur að Fákabóli 3, 110 Reykjavík, sem
er staðsett fyrir framan Félagsheimili
Fáks í víðidal.
Mynda náin tengsl við hestinn
Reiðnámskeið Reiðskóla Reykjavíkur
hefjast á vorin þegar skóla lýkur og
eru frábær tilbreyting frá skólanáminu
enda fátt hollara börnum en að kynn-
ast þeim gáfuðu dýrum sem hestar
eru, njóta útiveru í góðum félags-
skap og rækta með sér það frábæra
áhugamál sem hestamennskan er.
Námskeiðin eru fyrir aldurshópinn
6 til 15 ára. Hver nemandi er með
sama hestinn út námskeiðið – nema
ef samið er um annað. Með þessu
móti myndar barnið náin tengsl við
dýrið. Nemendur sem eiga eigin hesta
geta tekið þá með sér á námskeiðið
ef þeir kjósa svo.
kennslan í reiðskólanum skiptist
í verklega og bóklega kennslu en er
mest byggð upp á verklega þættin-
um þannig að nemandinn öðlist
leikni og hæfni í að sitja og stjórna
hestinum. einnig kynnast nemendur
helstu gangtegundum hestsins, læra
undirstöðuatriði í umhirðu hestsins og
hvernig á að leggja á bak og beisla
hest.
í lok reiðnámskeiðsins er sýning hjá
þeim sem eru í tveimur fyrstu hópun-
um og er foreldrum og forráðamönn-
um boðið að koma og sjá hvað barnið
hefur lært á námskeiðinu. jafnframt
fær hver nemandi afhent viðurkenn-
ingarskjal með mynd af sér á hestin-
um sínum. Hvert námskeið endar
síðan á grillveislu.
ítarlegar upplýsingar er að finna
um námskeiðin á vefsíðunni reidskoli.
is og þar er jafnframt hægt að bóka
námskeið.
Þrátt fyrir að listskautar falli undir vetraríþrótt er ekki svo að skautar séu ekki stundaðir árið
um kring, en í sumar er boðið upp á
sumarskautaskóla fyrir krakka á aldrin-
um 4–11 ára. sumarskautaskólinn er
leikjanámskeið og er áhersla á að ná
grunnfærni á ísnum á fjölbreyttan og
skemmtilegan hátt, unnið er í gegnum
leik bæði á svellinu og utan þess.
í skautahöllinni í laugardal æfa að
jafnaði um 280
krakkar á öllum
aldri listhlaup á
skautum. yngsti
iðkandinn í
vetur var ekki
nema 3 ára
og sá elsti á
miðjum aldri,
það er nefni-
lega aldrei of
seint að byrja
að skauta.
Hjá skauta-
félgaginu eru
skautarar
sem eru rétt að stíga sín fyrstu spor á
ísnum og iðkendur sem eru komnir svo
langt að vera að keppa með lands-
liðinu og þar með fyrir íslands hönd á
alþjóðlegum skautamótum, en iðk-
endum er skipt í hópa eftir getu og má
finna hóp við hæfi fyrir alla.
afreksskautarar félagsins æfa um
það bil 10 sinnum í viku á ísnum, en
auk þess mæta
skautarar líka í
þrekæfingar og dans svo eitthvað sé
nefnt. suma daga er bæði æft fyrir og
eftir skóla. Þeir iðkendur eiga það allir
sameiginlegt að vera mjög metnaðar-
fullir, stefna langt í sinni íþrótt og elska
að skauta. skautararnir okkar hafa
náð mjög góðum árangri á erlend-
um mótum og stefnan er sett á að
innan fárra ára eigi ísland fulltrúa á
heimsmeistaramóti unglinga.
Gleðin ríkir svo sannarlega í sumar-
sólinni og kuldanum í skautahöllinni í
laugardal!
Nánari upplýsingar á fristund.is/
namskeid/skautanamskeid
Skráning fer fram á skautafelag.
felog.is
suMaRNáMskeið skautaFélaGs ReykjavíkuR:
Gleðin ríkir í Skautahöllinni
í Laugardal í sumar!