Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Side 34
Sumarnámskeið 18. maí 2018KYNNINGARBLAÐ
SumarnámSkeið Ír:
Skemmtileg sumarnámskeið
fyrir alla krakka
Íþróttafélag reykjavíkur (Ír) býður upp á fjölbreytt sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum sex til sext-
án ára. Fyrir yngsta aldurshópinn
er boðið upp á Sumargaman, þar
sem tvær brautir eru í boði og fyrir
þau eldri eru sérhæfðari deildaskipt
námskeið.
SUMARGAMAN fyrir börn á
aldrinum 6–9 ára
á námskeiðunum geta börnin valið
um tvær brautir:
Íþróttabraut: iðkendur munu með-
al annars stunda handbolta, fótbolta,
körfubolta, fimleika og frjálsíþróttir.
Lista- og sköpunarbraut: Brautin
samanstendur af hreyfingu og úti-
veru, leikjum, göngutúrum, hjólaferð-
um, ævintýradögum, söng-og leiklist,
föndurdögum, sundferðum, vett-
vangsferðum og dansi.
Báðar brautir fara saman í all-
ar ferðir, svo sem ævintýraferðir,
hjólaferðir, sundferðir og bæjarferðir.
námskeiðin eru fyrir börn fædd
2009–2012 og hefjast 11. júní og
síðasta námskeið er 7.–10. ágúst.
námskeiðin fara fram á Ír svæðinu
við Skógarsel 12 og er íþróttafræði-
neminn Ísak Óli Traustason yfirstjórn-
andi námskeiðanna.
Gæsla er í boði án endurgjalds fyrir
og eftir námskeið og boðið er upp á
systkinaafslátt.
allar nánari upplýsingar um tíma-
setningar og verð má finna á ir.is.
SÉRHÆFÐARI DEILDASKIPT
NÁMSKEIÐ
Fyrir eldri börnin býður Ír upp á sér-
hæfð deildanámskeið.
Knattspyrnuskóli ÍR
knattspyrnuskóli Ír er fyrir börn fædd
2006–2012 og verður starfræktur
á Ír-svæðinu við Skógarsel. Boð-
ið er upp á gæslu fyrir námskeiðin.
Skólastjórar eru þrautreyndir og vel
menntaðir þjálfarar, kristján Gylfi
Guðmundsson og Stefán Þór Jóns-
son.
Í skólanum verður unnið í grunn-
tækni þáttum íþróttarinnar með
einstaklingsmiðaða nálgun að
leiðarljósi. áhersla verður lögð á að
iðkendur snerti boltann oft, æfi knatt-
stjórnun, snúninga, móttöku á bolta,
sendingar,
skotæfingar,
spilæfingar og
ýmsar tækni-
æfingar. mark-
miðið er að allir
auki knattfærni
sína að nám-
skeiði loknu.
Handboltaskóli ÍR
Handboltaskóli Ír
er fyrir börn fædd
2002–2007 og verður
starfræktur í austur-
bergi. Börnunum er skipt í
tvo aldurshópa. Skólastjóri á
námskeiðinu er Davíð Georgs-
son, íþróttafræðingur og leikmaður
Ír.
markmannsþjálfun og fræðandi
fyrirlestur verður á sínum stað. meist-
araflokksleikmenn koma í heimsókn
og spjalla við krakkana.
Fimleikanámskeið ÍR
Sumarnámskeið í fimleikum fyr-
ir börn fædd 2007–2011 fer fram í
Breiðholtsskóla. Þjálfarar verða þær
elíana Sigurjóns-
dóttir og Tiana Ósk
Whitworth auk gesta-
kennara.
námskeiðið hentar
bæði byrjendum sem
og þeim sem hafa áður
æft með deildinni.
Körfuknattleiksnám-
skeið ÍR
Sumarnámskeið
körfuknattleiksdeildar Ír er
fyrir börn fædd 2006–2010
og fara þau fram í Seljaskóla.
námskeiðin hefjast 11. júní og lýkur
17. ágúst. Yfirþjálfari er Brynjar karl
Sigurðsson.
allar upplýsingar um sérhæfðari
námskeiðin má finna á ir.is
Fleiri spennandi námskeið verða
í boði hjá Ír í sumar.
allar upplýsingar um námskeið
Ír og skráningu á námskeið má
finna á www.ir.is.