Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Side 42
Sumarnámskeið 18. maí 2018KYNNINGARBLAÐ Söngskólinn er í örum vexti og hér ættu allir að finna söngnám við sitt hæfi. Námskeiðin eru sniðin að þörfum hvers og eins og nemendur þjálfa sína einstöku rödd í heimilislegu og upp- byggilegu umhverfi. Við kenn- um alla raddstíla svo sem jazz, klassík, popp, rokk, þungarokk og söngleikjastíl og hentar CVT-tæknin í alla þessa stíla,“ segir Sólveig Unnur Ragnarsdóttir sem stofnaði söngskólann Vocalist á Laugavegi í ársbyrjun 2014 en skólinn hefur nú flutt aðsetur sitt að Síðu- múla 8. Hvað er CVT? „Við kennum eftir frábærri tækni sem kallast Complete Vocal Teqnique eða CVT sem er geysivinsæl um alla Evrópu bæði meðal atvinnusöngv- ara og leikmanna, enda gefur tæknin góðan og fljótvirkan árangur,“ segir Sólveig. CVT byggir á rannsókn- um Cathrine Sadolin í lífeðlisfræði og hljóðfræði. Hugmyndafræðin er meðal annars sú að það á ekki að vera erfitt að syngja og allir geta lært það. Tæknin er þekkt fyrir að vinna bug á hæsi, raddþreytu og öðrum raddtengdum vandamálum. Vocalist býður upp á ýmis söngnám- skeið fyrir nær alla aldurshópa og er CVT-tæknin notuð í þeim flestum enda fjölbreytilegt og nothæft tæki fyrir alla söngvara, unga sem aldna, reynda sem óreynda. „Vocalist býður upp á tólf vikna grunnnámskeið í CVT fyrir fólk á aldr- inum 16 ára og upp úr, fyrir byrjendur og lengra komna. Námskeiðið er í senn fjórir einkatímar og átta hóp- tímar. „Við bjóðum upp á tólf vikna ung- linganámskeið fyrir 12–16 ára krakka sem eru að byrja að syngja og þá sem hafa áður verið í tónlistarnámi,“ segir Sólveig. Kennt er í 4–6 manna hópum einu sinni í viku. „Svo erum við að bjóða upp á tólf vikna námskeið fyrir 8–12 ára krakka. Börnin kynnast eigin rödd betur auk þess að fá þjálfun í túlkun, tjáningu og framkomu. Þau læra að syngja í míkrófón og kynnast mismunandi tónlistarstílum,“ segir Sólveig. Kennt er í 6–8 manna hópum, einu sinni í viku. Lokatónleikar eru haldnir eftir hverja önn og fá allir tækifæri til að láta ljós sitt skína. Kvennakór Vocalist Kvennakór Vocalist hóf starfsemi sína í október 2015 og æfir saman á þriðjudagskvöldum kl. 19-21 og verða áheyrnarprufur haldnar í haust. „Við syngjum létt og skemmtileg lög, popp og dægurlög,“ segir Sólveig. Kórinn er opinn öllum konum á aldrinum 18–65 ára; þeim sem eru í söngnámi hjá Vocalist og einnig er hægt að vera bara með í kórnum. Einkatímar „Að auki bjóðum við upp á einkatíma sem sniðnir eru að þörfum hvers og eins því það er svo einstaklingsbundið hvar raddvandamálin liggja,“ segir Sólveig. Hver tími er 45 mínútur og hægt er að kaupa bæði staka tíma og söngkort. Næstu námskeið hefjast um miðjan september. Skólinn er staðsettur í fallegu og björtu húsnæði á 2. hæð að Síðu- múla 8. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu skólans, vocalist.is. Hægt er að hafa samband í síma 694-3964 eða með því að senda tölvupóst á netfangið vocalist@ vocalist.is Kenna söng í björtu og uppbyggjandi umhverfi Allir fá sitt tækifæri til að skína.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.