Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 42
Sumarnámskeið 18. maí 2018KYNNINGARBLAÐ
Söngskólinn er í örum vexti og hér ættu allir að finna söngnám við sitt
hæfi. Námskeiðin eru sniðin
að þörfum hvers og eins og
nemendur þjálfa sína einstöku
rödd í heimilislegu og upp-
byggilegu umhverfi. Við kenn-
um alla raddstíla svo sem jazz,
klassík, popp, rokk, þungarokk
og söngleikjastíl og hentar
CVT-tæknin í alla þessa stíla,“
segir Sólveig Unnur Ragnarsdóttir
sem stofnaði söngskólann Vocalist á
Laugavegi í ársbyrjun 2014 en skólinn
hefur nú flutt aðsetur sitt að Síðu-
múla 8.
Hvað er CVT?
„Við kennum eftir frábærri tækni
sem kallast Complete Vocal Teqnique
eða CVT sem er geysivinsæl um alla
Evrópu bæði meðal atvinnusöngv-
ara og leikmanna, enda gefur tæknin
góðan og fljótvirkan árangur,“ segir
Sólveig. CVT byggir á rannsókn-
um Cathrine Sadolin í lífeðlisfræði
og hljóðfræði. Hugmyndafræðin er
meðal annars sú að það á ekki að
vera erfitt að syngja og allir geta
lært það. Tæknin er þekkt fyrir að
vinna bug á hæsi, raddþreytu og
öðrum raddtengdum vandamálum.
Vocalist býður upp á ýmis söngnám-
skeið fyrir nær alla aldurshópa og
er CVT-tæknin notuð í þeim flestum
enda fjölbreytilegt og nothæft tæki
fyrir alla söngvara, unga sem aldna,
reynda sem óreynda.
„Vocalist býður upp á tólf vikna
grunnnámskeið í CVT fyrir fólk á aldr-
inum 16 ára og upp úr, fyrir byrjendur
og lengra komna. Námskeiðið er í
senn fjórir einkatímar og átta hóp-
tímar.
„Við bjóðum upp á tólf vikna ung-
linganámskeið fyrir 12–16 ára krakka
sem eru að byrja að syngja og þá
sem hafa áður verið í tónlistarnámi,“
segir Sólveig. Kennt er í 4–6 manna
hópum einu sinni í viku.
„Svo erum við að bjóða upp á tólf
vikna námskeið fyrir 8–12 ára krakka.
Börnin kynnast eigin rödd betur auk
þess að fá þjálfun í túlkun, tjáningu
og framkomu. Þau læra að syngja
í míkrófón og kynnast mismunandi
tónlistarstílum,“ segir Sólveig. Kennt
er í 6–8 manna hópum, einu sinni í
viku.
Lokatónleikar eru haldnir eftir
hverja önn og fá allir tækifæri til að
láta ljós sitt skína.
Kvennakór Vocalist
Kvennakór Vocalist hóf starfsemi
sína í október 2015 og æfir saman á
þriðjudagskvöldum kl. 19-21 og verða
áheyrnarprufur haldnar í haust. „Við
syngjum létt og skemmtileg lög, popp
og dægurlög,“ segir Sólveig. Kórinn er
opinn öllum konum á aldrinum 18–65
ára; þeim sem eru í söngnámi hjá
Vocalist og einnig er hægt að vera
bara með í kórnum.
Einkatímar
„Að auki bjóðum við upp á einkatíma
sem sniðnir eru að þörfum hvers og
eins því það er svo einstaklingsbundið
hvar raddvandamálin liggja,“ segir
Sólveig. Hver tími er 45 mínútur og
hægt er að kaupa bæði staka tíma og
söngkort.
Næstu námskeið hefjast um miðjan
september.
Skólinn er staðsettur í fallegu og
björtu húsnæði á 2. hæð að Síðu-
múla 8.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðu skólans, vocalist.is.
Hægt er að hafa samband í síma
694-3964 eða með því að senda
tölvupóst á netfangið vocalist@
vocalist.is
Kenna söng í björtu og
uppbyggjandi umhverfi
Allir fá sitt tækifæri til að skína.