Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Side 49
Barnið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ
sjálf menntaður nuddari frá Nudd-
skóla Íslands en ungbarnanuddið
lærði hún í Bretlandi hja International
Association of Infant Massage (IAIM)
en það eru elstu alþjóðlegu samtökin
ásamt því að vera þau stærstu sem
sérhæfa sig eingöngu í ungbarna-
nuddi.
Námskeiðið fer þannig fram að
foreldri/ar nudda barnið sitt á meðan
leiðbeinandi sýnir nuddformið á
dúkku. Barnið er ávallt beðið um leyfi
áður en byrjað er að nudda það og
fylgt er þeirra líðan. Þannig er byggt
upp traust og barninu sýnd virðing
sem er nauðsynlegt fyrir góð sam-
skipti á milli foreldra og barns.
Tímarnir eru hugsaðir sem gæða-
stund og gefur foreldrum tækifæri
til þess að ræða sín á milli. Nudd-
strokur eru endurteknar hverja viku
og æ fingablað fylgir hverjum tíma til
að nota heima við á milli námskeiðs-
daga.
Öll börn eru velkomin. Námskeiðið
er fyrir börn 1 árs og yngri. Foreldr-
ar þurfa ekki að hafa
áhyggjur af því að
barnið gráti í tím-
anum, næri sig eða
jafnvel sofi af sér
tímann.
Hvaða gagn
hefur barnið af
námskeiðinu?
n Gefur barninu
aukið öryggi
n Minnkar grát
og tilfinningalegt
uppnám
n Eykur slökun
n Eykur líkamsvitund
n Dregur úr loftmyndun, maga-
krampa og hægðatregðu
Hvað gerir námskeiðið fyrir for-
eldra?
n Myndar sterkari tengsl við barnið
n Eykur skilning á þörfum barnsins
n Gefur gæðastund í gegnum
nærandi snertingu
Fæðingarfræðslunámskeið
Fæðingarundirbúningur fyr-
ir verðandi foreldra. Námskeiðið
er í höndum ljósmæðranna Elínar
Örnu Gunnarsdóttur, Guðrúnar
I. Gunnlaugsdóttur, Höllu Bjargar
Lárusdóttur og Maríu Rebekku Þór-
isdóttur. Þær starfa allar einnig við
fæðingar.
Á námskeiðunum leggjum við
aðallega áherslu á fæðinguna sjálfa,
hvað sé að gerast í líkamanum þegar
fæðingin hefst og þau bjargráð sem
konan getur nýtt sér. Það að vita
hvað sé að gerast í líkamanum þegar
fæðingin fer af stað, þ.e. hvað það
þýðir þegar hríðaverkir byrja,
hjálpar konunni að ráða við þá
verki sem fylgja fæðingunni.
“Það er nefninlega tilgang-
ur með þessu öllu saman”.
Þetta er í flestum tilfellum
eðlilegt ferli og við leggjum
áherslu á að horfa á það
þannig. Það er hvetjandi fyrir
konuna þegar hún er meðvit-
uð um það sem er að gerast
í líkamanum og hver sé til-
gangurinn
með öllu þessu erfiði sem lagt er á
okkur konur í fæðingu. Þeim mun bet-
ur sem konan þekkir líkama sinn og í
þeim mun betra jafnvægi sem hún er
í, þá á hún auðveldara með að takast
á við fæðingarverkina og að jafna sig
að henni lokinni. Með góðan stuðning
með sér, maka eða fæðingarfélaga,
verður konan sterk. Við leggjum því
áherslu á að verðandi móðir komi
með maka með sér á námskeiðið en
ef hann er ekki til staðar að vera þá
með einhvern annan nákominn sem
mun vera með henni í fæðingunni. Við
ræðum um mikilvægi stuðningsað-
ilans og hvernig og hvað hann getur
gert til að auðvelda konunni þetta
ferli sem fæðingin er.
Lögð er áhersla á öndunartækni,
nudd, slökun sem og aðrar verkja-
meðferðir.
Mikilvægt er að reyna að efla
sjálfsöryggi og sjálfshjálp verðandi
foreldra, hvað þau geta sjálf gert til
að þeim líði sem best í fæðingunni.
Við viljum að þau öðlist hagnýta
þekkingu á ferlinu og geti valið á milli
ýmissa valkosta sem þeim býðst í
fæðingunni.
Á námskeiðinu förum við líka inn á
umönnun nýburans fyrstu dagana í
lífi þess og ræðum mikilvægi tengsla-
myndunar.
Við mælum með að koma eftir
32. viku meðgöngu. Námskeiðin eru
vinsæl og því mikilvægt að skrá sig á
þau með góðum fyrirvara. Aðeins eru
6–7 pör á hverju námskeiði. Við bjóð-
um upp á notalegt umhverfi, fámenn-
an hóp og faglega og reynslumikla
leiðbeinendur. Rannsóknir hafa sýnt
að folk meðtekur frekar upplýsingar
þegar meiri nálægð er við leiðbein-
andann og umhverfið og fjöldinn á
námskeiðinu er ekki mikill.
Við reynum að
hafa svona
„stofustemmn-
ingu“ á
námskeiðinu,
þ.e. að við sitjum meira og spjöllum
saman heldur en að vera með nám-
skeiðið á fyrirlestrarformi.
Hvert námskeið er eitt skipti í 3
klst. og hægt að velja á milli þess að
koma eina kvöldstund á virkum degi
kl. 18.00–21.00 eða á laugardegi kl.
11.00–14.00
Almennt hefur verið mikil ánægja
með þennan fæðingarundirbúning
og höfum við fengið mörg jákvæð
ummæli frá þeim sem sótt hafa þessi
námskeið. Verðandi feður hafa verið
sérstaklega ánægðir með nám-
skeiðin og finnst hlutverk þeirra verða
skýrara og þeim finnst þeir vita meira
hvað í vændum er. Einn hafði á orði
við okkur að svona námskeið ætti
í raun að vera skylda fyrir alla nýja
verðandi feður. Eflaust margir sam-
mála honum um það.
Brjóstagjafanámskeið 9 mánaða
Brjóstagjöfin er ein sú besta gjöf sem
okkur hefur verið gefin og er óviðjafn-
anleg aðferð til samskipta milli móður
og barns. Mikilvægt er að leggja góð-
an grunn að brjóstagjöfinni og ætti
því gott námskeið á meðgöngunni
að veita verðandi foreldrum aukinn
styrk til að takast á við það verk-
efni sem brjóstagjöfin er. Hún krefst
þolinmæðis, sérstaklega á fyrstu
vikunum eftir fæðingu. Þess vegna er
nauðsynlegt að gefa sér þann tíma
sem þarf til að brjóstagjöfin nái að
fara vel af stað. Reynslan af fyrstu
brjóstagjöf virðist vera sá grundvöllur
sem konan byggir á með næstu börn
sín.
Í hverjum mánuði er haldið nám-
skeið í brjóstagjöf og leiðbeinandi á
því námskeiði er Ingibjörg Eiríksdóttir,
ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi
IBCLC.
Nálastungur
EigendurUngbarnanudd
Nuddarar