Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Síða 64
64 18. maí 2018
E
ina nótt á milli jóla og nýárs
árið 1996 skaut ungur Hafn-
firðingur Hlöðver S. Aðal-
steinsson til bana við Krýsu-
víkurveg. Þeir þekktust en höfðu
ekki talast við lengi og atvikið var
uppgjör vegna misnotkunar sem
Hlöðver beitti hinn unga mann
á árum áður, meðal annars við
Krýsuvík.
Hringdi og hlóð haglabyssu
Laugardagskvöldið 28. desem-
ber árið 1996 bauð 25 ára gamall
Hafnfirðingur vinum sínum heim
í samkvæmi. Þar var drukkið og
skemmt sér og einhver stakk upp
á því að gera símaat í Hlöðveri S.
Aðalsteinssyni, 55 ára, en hann var
alræmdur í bænum og sagður eiga
við unga stráka ásamt yngri bróð-
ur sínum, Árna. Nokkrir úr sam-
kvæminu hringdu í hann og fífluð-
ust og klukkan eitt um nóttina var
haldið á skemmtistað.
Hafnfirðingurinn ungi varð
mjög ölvaður þetta kvöld og
þegar skemmtistaðnum var lok-
að gekk hann einn heim. Þar hr-
ingdi hann aftur í Hlöðver og bað
hann að hitta sig. Klukkan fjögur
um nóttina lagði Hlöðver af stað á
bílnum sínum, hvítri Lödu Sport,
og á meðan ungi maðurinn beið
hlóð hann Remington-haglabys-
su.
Ungi maðurinn var einn til frá-
sagnar um þessa örlagaríku nótt.
Það var hlýtt en slagveðursrign-
ing þegar hann gekk út í bíl til
Hlöðvers með hlaðna byssuna og
settist í farþegasætið. Hann bað
Hlöðver að aka suður úr bænum í
átt að Krýsuvík og á afleggjaranum
þar staðnæmdist bíllinn.
Hvarf særður út í svartnættið
Við afleggjarann barst talið að for-
tíðinni, nánar tiltekið tólf árum
fyrr þegar Hlöðver hafði tælt hinn
unga mann og vini hans með
áfengi og tóbaki og misnotað þá í
kjölfarið. Samkvæmt manninum
var samtal þeirra rólegt og yfir-
vegað í byrjun en æstist svo þegar
Hlöðver gerði lítið úr upplifun
mannsins og falaðist eftir frekara
samræði. Hann gekk út til að kasta
af sér vatni og Hlöðver gekk út á
eftir, mjög æstur.
Þá sneri maðurinn sér við og
hleypti skoti af sem hæfði Hlöðver
í hægri handlegginn, rétt ofan
við olnboga. Hlöðver tók á rás
og hljóp yfir götuna og faldi sig í
svartnættinu bak við vegarbrún.
Ungi maðurinn fór inn í Löduna
og ók henni aftur í bæinn.
Rétt fyrir klukkan ellefu um
morguninn fannst lík Hlöðvers,
um þrjú hundruð metrum norð-
ar á veginum. Tveir lögreglumenn
og sjúkrabíll með lækni mættu á
svæðið og var Hlöðver úrskurðað-
ur látinn á staðnum. Æðar höfðu
farið í sundur og blóðmissirinn
svo mikill að hann fór í lost og síð-
an lést hann.
Sleppt úr haldi
Hlöðver var með símanúmerabirti
þar sem sást að hringt hafði verið
í hann af heimili unga mannsins
um nóttina. Heima hjá Hlöðveri
fannst blað þar sem á stóð nafn
unga mannsins og símanúm-
er. Leit hófst að bifreiðinni sem
fannst loks síðdegis bak við fisk-
verkunarhús við Herjólfsgötu í
Hafnarfirði.
Rannsóknin beindist strax að
unga manninum og var hann
handtekinn samdægurs. Hann
vísaði lögreglu á Remington-
haglabyssuna en neitaði að hafa
framkvæmt verknaðinn. Þá fannst
önnur haglabyssa, rússnesk að
gerð, við húsleit hjá honum og
nokkur haglaskot. Dómari féllst
hins vegar ekki á gæsluvarðhald
og var manninum því sleppt. En
lögreglan hafði hann þó enn grun-
aðan og rannsókn málsins miðað-
ist við það.
Lögreglan hafði ýmis gögn til
rannsóknar. Í Lödunni fannst sí-
garettustubbur sem einhver
hafði drepið í á mælaborðinu og
var hann sendur út til Noregs til
DNA-rannsóknar. Niðurstöðurn-
ar sýndu að 99 prósent líkur væru
á því að munnvatnið í stubbnum
n Níddust á drengjum í 20 ár n Uppgjör í Lödu Sport n Refsilækkun vegna geðshræringar
DV 13. nóvember 1992.
Drap níðing sinn
í Hafnarfirði