Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Page 68
68 bleikt - heilsa 18. maí 2018
„Hvað ef annað okkar
fílar þetta en hitt ekki?“
Halla er á leið til Amsterdam:
Sæl, Ragga.
Ég er rúmlega fertug og
það er ekki í raun fyrr en núna
að ég er farin að leyfa mér
að vera ég sjálf í kynlífi. Ég
held að ég eigi meira inni, ef
svo má að orði komast. Þess
vegna ætla ég að koma til þín
á námskeiðið Konur og kynlíf
á þessu ári.
En að málinu: Ég og mað-
urinn minn stundum gott
og fjölbreytt kynlíf þó svo að
inn á milli komi daufir kaflar.
Ég er búin að lesa greinarnar
þínar um swing og er nokkuð
spennt fyrir heimsókn í slík-
an klúbb. Það vill svo vel til að
ég og maðurinn minn erum
að fara til Amsterdam og við
erum byrjuð að ræða hvort
við eigum að stíga þetta skref.
Okkur finnst margt spennandi
í þessum efnum en líka eitt
og annað sem hræðir okk-
ur, enda er þetta skref út fyr-
ir þægindarammann. Núna
eftir að ég las skrifin þín fær-
ist ég nær hugmyndinni, sér-
staklega vegna þess að hingað
til hef ég ekki vitað hvert við
ættum að leita en ég ímyndaði
mér líka að þetta væri mögu-
lega sóðalegt.
1. Ef við förum á swing-klúbb
verðum við þá að stunda kyn-
líf með öðrum? Megum við
vera bara tvö saman í kynlífi
eða þarf að þiggja boð eða
bjóða öðrum? Má kannski
láta duga bara að horfa á í
fyrsta sinn?
2. Eru allir að drekka áfengi
á slíkum klúbbi eða er fólk
edrú? Maðurinn minn
smakkar það stundum lítil-
lega en ég drekk ekki.
3. Mæti ég snyrtilega klædd
í fallegum undirfötum og er
svo bara á þeim þegar sá tími
kemur?
4. Hvað ef annað okkar er að
fíla þetta en hitt ekki? Eru þá
líkur á að þetta geti skaðað
samband okkar?
5. Þurfum við ekki að vera
búin að ræða okkar á milli
hvað er í boði og hvað má
ganga langt eða gerast
hlutirnir bara?
6. Hverjar eru líkurnar á að
smitast af kynsjúkdómi eða
húðsjúkdómi og þarf ég að
koma með verjur og eitthvað
undir mig eða er allt til alls á
staðnum?
Kveðja, Halla.
Kæra Halla
Takk fyrir frábærar spurningar
og vertu velkomin á námskeið
hjá mér. Næstu dagsetningar fyr-
ir Konur og kynlíf verða auglýstar
í ágúst.
Það er greinilegt að áhugi á
lífsstílnum leynist víða meðal ís-
lenskra góðborgara. Fjöldi Ís-
lendinga á swing-samfélagsvefn-
um SDC hefur rokið upp úr öllu
valdi.
1. Þið verðið hvorki eitt né
neitt þó að þið stígið inn í klúbb.
Nema að fylgja reglum klúbbs-
ins auðvitað. Best er að kynna
sér reglur hvers staðar fyrir sig,
en þær er að finna á heimasíð-
um klúbbanna. Almennt má
segja að reglurnar séu svipaðar;
ákveðins klæðnaðar er krafist,
vímuefni umfram áfengi eru ekki
leyfð, gestir eru beðnir að ganga
vel um, skilja símana eftir í skáp-
um í búningsklefa, já og auðvitað
viðhafa kurteisi í samskiptum.
Þið ráðið alveg með hverj-
um þið stundið kynlíf og getið af-
þakkað allt sem stendur til boða.
Fólk sem stundar þessa senu er
vant því að fá neitun og móðgast
ekki. Það er ekkert að því að mæta
á svæðið eingöngu til að upp-
lifa stemninguna og kynorkuna í
loftinu, fá að ganga um meðal fá-
klæddra og eiga samskipti við fólk.
Pör mæta líka til að stunda kyn-
líf saman, jafnvel með áhorfend-
ur, eða meðal annarra para sem
líka eru að stunda kynlíf. Þetta fer
allt eftir smekk og því sem ykkur
finnst þægilegt.
Pör sem vilja stunda kynlíf með
öðrum hafa ýmsa möguleika til
að láta það rætast. Margir kunna
best við að byrja á spjalli við bar-
inn, eða í setustofu, ef vel fer á
með fólki má svo stinga upp á að
færa partíið yfir á leiksvæðið. Ef
þið eruð tvö í leik á opnu svæði og
sjáið álitlegt par nálgast með bros
á vör og lostafullt blik í augum gæti
verið viðeigandi að senda þeim
spurnarbendingu með höfði eða
höndum, bjóða þeim þátttöku.
Ef þið sjáið ómótstæðilegt par í
leik og langar að taka þátt en náið
ekki augnsambandi, má tylla sér á
rúmbríkina og strjúka handarbaki
spurnarlega um læri eða upphand-
legg. Ef svarað er með brosi, eða
kolli er kinkað, er málið að kasta
sér í leikinn. Ef höndin þín er hins
vegar færð í burtu af líkamshlutan-
um þýðir það venjulega að nærveru
þinnar í leiknum sé ekki óskað.
Gestir nota bæði tal og sam-
skipti án orða til að tjá sig, en sú
meginregla gildir að þú demb-
ir þér ekki í hrúgu nakinna, eða
stingur líkamshluta inn í líkamsop
án þess að leyfi hafi verið veitt.
2. Klúbbar af þessu tagi eru yf-
irleitt ósköp svipaðir öðrum dans-
klúbbum og diskóbörum. Fyrir
utan kynlífsherbergin, búnings-
herbergin og klæðaburð fólks-
ins. Dansgólfið er á sínum stað,
barinn, og stundum eru veitingar
í boði, sófar og svæði til að eiga
samskipti við aðra gesti. Sumir
gestir drekka, aðrir ekki.
3. Flestir staðir eru með klæðar-
eglur sem taka gildi þegar klukkan
slær eitthvað ákveðið. Í Fata morg-
ana í Hollandi er leyfilegt að vera
í borgaralegum klæðnaði til klukk-
an 21 á föstudagskvöldum, eft-
ir það fækkar fólk fötum og klæð-
ist einhverju efnisminna. Konur
eru gjarnan í nærfötum og karlar
á sæmilega útlítandi nærbuxum.
Sumir velja líka að vera kviknakt-
ir og það má!
4. Frábær spurning! Það getur
vel verið að annað ykkar muni fíla
sig í botn en hitt ekki. Þegar pör
fara út í svona áhugamál saman
þurfa samskipti að vera skýr og
opin. Það er ekki gott að annað
ykkar upplifi óþægilega pressu.
Meðal annars þess vegna er best
að fyrsta heimsókn ykkar í klúbb
sé án væntinga, að þið farið til að
skoða, upplifa stemninguna og
kanna hvernig ykkur líður í um-
hverfinu.
5. Ég ráðlegg ykkur eindregið
að vera búin að ræða saman um
mögulegar aðstæður sem geta
skapast. Í fyrstu upplifun af kyn-
lífi með aukaleikurum getið þið
ekki mögulega vitað hvernig ná-
kvæmlega ykkur mun líða við að
sjá makann þiggja munngælur frá
einhverjum öðrum. Gott er að þið
búið til ramma eða samkomulag
ykkar á milli. Leiðirnar eru ótal-
margar – þið gætuð ákveðið að
kelerí við aðra sé í lagi, en ekki
samfarir. Kannski finnast ykkur
munngælur í lagi en ekki kossar.
Mögulega viljið þið vera saman
allan tímann í klúbbnum og sjá
hinn aðilann njóta, frekar en að
skipta liði. Best er að hafa sam-
skiptin opin – enda er líklegt að
þið munið endurskoða fyrirkomu-
lagið ykkar reglulega.
6. Í flestum klúbbum sem ég hef
heimsótt eru smokkar og hand-
klæði til nota fyrir gesti. Ég mundi
þó kanna þetta á heimasíðu hvers
klúbbs fyrir sig. Einu sinni hef
ég komið á klúbb þar sem bréf-
þurrkur voru í boði en ekki hand-
klæði – það var ekki nógu lekkert.
Í klúbbum er líka hægt að kom-
ast í steypibað milli atriða, og al-
mennt hefur mér sýnst fólk ljóm-
andi hreinlegt.
Þið setjið ykkar reglur um
smokka, hvort þið notið þá í sam-
förum eða líka við munngælur. Eins
og þú eflaust veist getur þú smitast
af herpes þrátt fyrir smokkanotkun
– þá er ágætt að muna eftir því að
flestir fullorðnir einstaklingar bera
annaðhvort Herpes 1 eða 2 veiruna
í sér, þó að margir hafi aldrei fengið
einkenni. Að mínu mati mætti al-
veg tóna niður dramatíkina í um-
ræðu um kynfæraherpes – óþægi-
legt vissulega í þeim tilfellum
sem útbrot birtast, en við fyrstu
einkenni má taka lyf sem stytta
óþægindatímann, svo að þetta þarf
ekki að vera mikið meira mál en að
fá ennisholubólgu.
Þið eruð fullorðið fólk og þurfið
að vega og meta þetta sjálf!
Ragnheiður Eiríksdóttir
er hjúkrunarfræðingur og
kynlífsráðgjafi hjá Áfalla- og
sálfræðimiðstöðinni, Hamraborg
11 raggaeiriks@gmail.com
www.raggaeiriks.com