Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 4
4 25. maí 2018fréttir
Þ
að eru væringar á fjölmiðla-
markaði, um það þarf vart
að fjölyrða. Líkast til mun
miðlum halda áfram að
fækka hér á landi næstu misserin.
Eitt þekktasta vikublað þjóðar-
innar, sem þó kemur ekki lengur
út, var Helgarpósturinn. Það blað
skók stoðir samfélagsins eins og
sagt var fyrr á tíð, frægast varð það
auðvitað vegna Hafskipsmálsins.
Athygli vekur að útvarpsdrottn-
ingin Arnþrúður Karlsdóttir, sem
kennd er við Útvarp Sögu, er eig-
andi vörumerkisins Helgarpóst-
Að meðaltali
fær hver
maður 7.200
fullnægingar
um ævina.
Það er staðreynd
að …
Klukka Lundúna, Stóri
Ben, er þekkt fyrir ná
kvæma tímasetningu.
Árið 1945 seinkaði
klukkan sér um fimm
mínútur. Það gerðist
þegar hópur starra
settist á mínútu
vísinn.
Allir ísbirnir eru
örvhentir.
Hreint kókaín var selt í Harrods
versluninni í London til upphafs 20.
aldar.
Dag hvern andar þú að þér um þús
und rúmsentimetrum af prumpufýlu
annarra.
Við fæðumst
hnéskelja
laus. Þær
myndast við þriggja til
fjögurra ára aldurinn.
Hver er
hún
n Hún á afmæli í
dag og er fædd árið
1984. Hún starfar í dag
sem lögfræðingur.
n Hún er mikil áhuga
manneskja um dans og hesta.
Þá starfaði hún eitt sumar sem
lögregluþjónn.
n Móðir hennar var þekkt fyrirsæta
og tók þátt í Ungfrú Ísland árið
1983 og sigraði. Hún var ólétt þegar
hún tók þátt í keppninni.
n Hún ber nafn móður sinnar. Hún
tók einnig þátt í Ungfrú Ísland.
n Hún var valin fegurst kvenna í
heimi árið 2005, þá 22 ára gömul.
UnnUr Birna Vilhjálmsdóttir
É
g byrjaði að hafa áhuga á
fluguveiði þegar ég fór að
vinna við skipulagningu
veiðiferða. Það má
eiginlega segja að ég
hafi dottið á kaf
í veiðiheim-
inn, því við
hjónin störf-
um bæði
við þetta og
vinir okk-
ar og sam-
starfsfólk er
flest á kafi í
sportinu.“
Þetta segir
Harpa Hlín Þórðar-
dóttir sem er sérfræðingur
í stang- og skotveiði. Hún hefur fellt
elg í Eistlandi og sauðnaut á Græn-
landi. Þá hefur hún stofnað veiði-
klúbb fyrir konur, en nýjasta afrek
Hörðu er að hún er nú í undanúr-
slitum í Extreme Huntress en um er
að ræða bandaríska þætti um veiði-
konur. Í þáttunum spreyta konurn-
ar sig í ýmsum þrautum. Vonast
Harpa til að standa uppi sem sig-
urvegari og hljóta titilinn Extreme
Huntress 2019.
DV lék forvitni á að vita hvernig
áhuginn á skotveiði er til kominn
og hvert sé eftirminnilegasta eða
stærsta dýr sem hún hafi fellt.
„Ég drakk í mig þekkingu
reyndra manna en engra kvenna
því veiðikonur voru bara ekki í
kringum mig. Það var eðlilegt
framhald af stangveiðinni að
prófa skotveiði en það er erfitt
að útskýra fyrir þeim sem ekki
hafa prófað hvernig veiðin gríp-
ur mann. Fyrir mig þá er eins og
það hafi kviknað á nýjum skiln-
ingarvitum. Ég finn sambland af
spennu, afslöppun, tengingu við
náttúruna og svo fer ég upp og
niður allan tilfinningaskalann. Þú
finnur fyrir spennu, vonbrigðum,
gleði, smá öfund, að gleðjast með
öðrum, svefnleysi og mér finnst ég
hafa kynnst sjálfri mér upp á nýtt.“
Harpa var óviss um hvort hún
ætti að prufa skotveiði en sagði við
sjálfa sig að ef henni þætti
óþægilegt að fella dýr með
skotvopni væri alltaf hægt
að hætta við. „Þegar ég skaut fyrsta
dýrið þá leið mér svipað og þegar
ég veiddi fyrsta laxinn. Ég fylltist
stolti og fannst þetta aldrei rangt,
ég legg mikla áherslu á að borða
hreinan mat og nýta það sem nátt-
úran gefur.“
Sumir þeirra sem stunda fisk-
veiðar telja skotveiði eða jaðarveiði
þar sem dýr á borð við sauðnaut eru
felld, af hinu slæma. Harpa bendir
á að allt sé nýtt af skepnunni.
„Mín upplifun er sú að þú finn-
ur ekki meiri náttúru- og dýra-
verndunarsinna en einmitt veiði-
menn. Ég veit mörg dæmi þess að
veiðifólk bjargar dýrum úr ógöng-
um, girðingum eða upp úr vatni
og lagfæra umhverfi þeirra.“‘
Eftirminnilegasta veiðiferðin
Harpa segir ánægjulegast að fara í
veiðiferðir með fólki sem sé að taka
sín fyrstu skref í skotveiði. „Gleðin
er svo einlæg þegar fólk nær að
skilja náttúruna og umhverfi sitt
betur og að veiða fyrsta dýrið er
eitthvað sem allir muna eftir,“ segir
Harpa en aðspurð um eftirminni-
legustu bráðina svarar hún: „Vænt-
anlega fyrsta dýr-
ið sem ég skaut í
Skotlandi og stóri
hreindýrstarfurinn
sem ég fékk í Græn-
landi. Annars för-
um við reglulega
fjölskyldan að veiða
gæs upp á Melum
en þá tökum við
oft eitt barna okkar
með en þeim finnst
áhugavert að taka
þátt í þessu með
okkur.“
Gefandi að veiða
með konum
Harpa bætir við
að hún veiði eingöngu dýr þar
sem kjötið sé nýtt. Hún fer reglu-
lega með öðrum konum í veiði-
hópnum T&T international í ferð-
ir erlendis en hópurinn stefnir til
Eistlands í haust. „Það er virki-
lega gefandi að veiða með öðrum
konum og gaman að læra hver af
annari.“
Harpa er, eins og áður seg-
ir, í undanúrslitum í Extreme
Huntress. Ef þú vilt hjálpa Hörpu
að komast áfram í úrslit, þá er
hægt að kjósa hana áfram hér. n
Harpa drap sauð-
naut á Grænlandi
n Slær í gegn í Bandaríkjunum n Allt kjöt nýtt n Tengist náttúrunni
auður Ösp Guðmundsdóttir
Kristjón Kormákur Guðjónsson
audur@dv.is / kristjon@dv.is
Harpa Hlín Þórðardóttir með hreindýrinu sem hún felldi á Grænlandi. Er Harpa afar stolt af þessari veiði en hún veiddi hreindýr á Grænlandi árin 2012 og 2013.
Hvað segir Magnús geir?
Magnús geir eyjólfsson, fyrrverandi ritstjóri Eyjunnar, upplýsir um líklega atburðarás á kosninganótt.
Magnús hefur mikla þekkingu á hinu pólitíska landslagi en hann segir:
„Það hefur ekkert komið mér á óvart á kosninganótt síðan Valgerður Sverrisdóttir steig línudans í beinni
hér um árið. Það var epískt. Vigdís Hauks er sú eina sem er líkleg til að toppa Valgerði enda rekið hressari og
popúlískari kosningabaráttu en borgarstjóraefni í Medellín. Kannanir sýna að það sé lítið að fara að breytast í
stjórn borgarinnar þannig að helsta spennan er hvort Facebook-költið hans Gunnars Smára skili inn manni.
Og ef það gerist ekki, hvaða költ stofnar hann næst?“
Kaffistofan Hver á eiginlega Helgarpóstinn?
urinn. Hefur heyrst af útgáfupæl-
ingum hennar undanfarið, enda
nokkuð sótt að stöðinni sem á sér
þó sinn fasta aðdáendahóp.
Lénið helgarposturinn.is er
hins vegar ekki eign Arnþrúðar.
Þegar rýnt er í gögn Isnic kemur í
ljós að eigandi lénsins er enginn
annar en Jón Kaldal, fyrrverandi
ritstjóri Fréttablaðsins og síðar
Fréttatímans.
Spurningin er hvort þeirra verð-
ur á undan að endurvekja gamla
góða Helgarpóstinn.